{"id":102,"date":"2022-03-28T20:10:15","date_gmt":"2022-03-28T20:10:15","guid":{"rendered":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=102"},"modified":"2022-04-12T17:21:59","modified_gmt":"2022-04-12T17:21:59","slug":"2-skaldskapur-halldors-laxness-yfirlit","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=102","title":{"rendered":"Sk\u00e1ldskapur Halld\u00f3rs Laxness \u2013 yfirlit"},"content":{"rendered":"\r\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" width=\"897\" height=\"1024\" class=\"wp-image-103\" src=\"https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-Eftir-1990.-Baekur-Halldors-Laxness-i-erlendum-utgafum100-897x1024.jpg\" alt=\"\" srcset=\"https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-Eftir-1990.-Baekur-Halldors-Laxness-i-erlendum-utgafum100-897x1024.jpg 897w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-Eftir-1990.-Baekur-Halldors-Laxness-i-erlendum-utgafum100-scaled-600x685.jpg 600w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-Eftir-1990.-Baekur-Halldors-Laxness-i-erlendum-utgafum100-263x300.jpg 263w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-Eftir-1990.-Baekur-Halldors-Laxness-i-erlendum-utgafum100-768x877.jpg 768w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-Eftir-1990.-Baekur-Halldors-Laxness-i-erlendum-utgafum100-1345x1536.jpg 1345w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-Eftir-1990.-Baekur-Halldors-Laxness-i-erlendum-utgafum100-1794x2048.jpg 1794w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-Eftir-1990.-Baekur-Halldors-Laxness-i-erlendum-utgafum100-scaled.jpg 2242w\" sizes=\"(max-width: 897px) 100vw, 897px\" \/>\r\n\r\n<\/figure>\r\n\r\n\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r Laxness ber h\u00f6fu\u00f0 og her\u00f0ar yfir a\u00f0ra \u00edslenska rith\u00f6funda \u00e1 20. \u00f6ld. Hann var afkastamikill \u00e1 l\u00f6ngum ferli, skrifa\u00f0 \u00ferett\u00e1n st\u00f3rar sk\u00e1lds\u00f6gur, fimm leikrit og leikger\u00f0 a\u00f0 einni sk\u00e1lds\u00f6gunni, fyrir utan sm\u00e1sagnas\u00f6fn, greinas\u00f6fn og endurminningarb\u00e6kur. S\u00ed\u00f0asta minningasagan kom \u00fat meira en sext\u00edu \u00e1rum eftir a\u00f0 fyrsta sk\u00e1ldsaga hans kom \u00fat. En magni\u00f0 segir fr\u00e1leitt allt. Halld\u00f3r hlaut margv\u00edslegar vi\u00f0urkenningar erlendis og ber \u00fear a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u h\u00e6st N\u00f3belsver\u00f0launin \u00ed b\u00f3kmenntum \u00e1ri\u00f0 1955 en margir kalla \u00feau \u00e6\u00f0stu vi\u00f0urkenningu sem rith\u00f6fundi getur hlotnast \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legum vettvangi. B\u00e6kur hans hafa veri\u00f0 \u00fe\u00fdddar \u00e1 43 tungum\u00e1l og komi\u00f0 \u00fat \u00ed meira en 500 \u00fatg\u00e1fum. \u00de\u00e6r hafa selst \u00ed miklum uppl\u00f6gum um allan heim, t.d. \u00ed hundru\u00f0um \u00fe\u00fasunda eintaka \u00ed Bandar\u00edkjunum. Ferill hans er einstakur, fj\u00f6lbreytni verka hans \u00e1 s\u00e9r f\u00e1ar hli\u00f0st\u00e6\u00f0ur og m\u00e1 segja a\u00f0 me\u00f0 hverri b\u00f3k hafi hann komi\u00f0 a\u00f0 lesendum s\u00ednum \u00far \u00f3v\u00e6ntri \u00e1tt.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Loksins, loksins<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r Gu\u00f0j\u00f3nsson f\u00e6ddist 23. apr\u00edl \u00e1ri\u00f0 1902 \u00ed Reykjav\u00edk. Hann kenndi sig s\u00ed\u00f0ar vi\u00f0 \u00e6skuheimili sitt \u00ed Mosfellssveit og nefndi sig Halld\u00f3r Laxness og \u00feegar hann t\u00f3k ka\u00fe\u00f3lska tr\u00fa b\u00e6ttist d\u00fdrlingsnafni\u00f0 Kiljan vi\u00f0. Halld\u00f3r ger\u00f0i uppreisn gegn hinu hef\u00f0bundna formi sk\u00e1lds\u00f6gunnar \u2011 rauns\u00e6isep\u00edkinni \u2013 en s\u00e6ttist s\u00ed\u00f0an vi\u00f0 \u00fea\u00f0, \u00e1n \u00feess a\u00f0 ver\u00f0a r\u00edgbundinn hef\u00f0inni. Segja m\u00e1 a\u00f0 hann gerist n\u00fdsk\u00f6punarma\u00f0ur innan rauns\u00e6ishef\u00f0ar. \u00deannig \u00fer\u00f3ar hann rauns\u00e6issk\u00e1lds\u00f6guna \u00e1fram \u00e1n \u00feess a\u00f0 raska jafnv\u00e6gi hennar.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrstu sk\u00e1lds\u00f6gur Halld\u00f3rs, <em>Barn n\u00e1tt\u00farunnar<\/em> (1919) og <em>Undir Helgahn\u00fak<\/em> (1924) eru sveitas\u00f6gur \u00ed g\u00f6mlum st\u00edl og m\u00e6tti nefna \u00fe\u00e6r \u00e6skuverk. \u00de\u00e1 tekur vi\u00f0 fram\u00farstefnuskei\u00f0 og <em>Vefarinn mikli fr\u00e1 Kasm\u00edr<\/em> ver\u00f0ur til (1927). \u00cd <em>Vefaranum<\/em> tekst Halld\u00f3r \u00e1 vi\u00f0 samt\u00edma sinn, b\u00f3kin s\u00fdnir sundra\u00f0a heimsmynd. Halld\u00f3r reynir ekki a\u00f0 samr\u00e6ma raddirnar sem birtast \u00ed s\u00f6gunni, \u00ed henni er engin ritst\u00fdring \u00ed \u00fe\u00e1gu \u00e1kve\u00f0ins bo\u00f0skapar. Sagan birtir margar l\u00edfssko\u00f0anir og eru allar jafn r\u00e9tth\u00e1ar. \u00deannig er sagan fj\u00f6lradda verk. H\u00fan vakti misj\u00f6fn vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi en fr\u00e6gust eru umm\u00e6li Kristj\u00e1ns Albertssonar sem sag\u00f0i: \u201eLoksins, loksins tilkomumiki\u00f0 sk\u00e1ldverk, sem r\u00eds einsog hamraborg upp \u00far flatneskju \u00edslenskrar lj\u00f3\u00f0a\u2011 og sagnager\u00f0ar s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ra! \u00cdsland hefur eignast n\u00fdtt st\u00f3rsk\u00e1ld \u2013 \u00fea\u00f0 er bl\u00e1tt \u00e1fram skylda vor a\u00f0 vi\u00f0urkenna \u00fea\u00f0 me\u00f0 f\u00f6gnu\u00f0i.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>A\u00f0 vera sk\u00e1ld \u00ed heiminum<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir <em>Vefarann<\/em> skrifar Halld\u00f3r s\u00f6gur \u00far samt\u00edmanum sem kalla m\u00e1 f\u00e9lagslegar s\u00f6gur. 1931-32 kom <em>Salka Valka<\/em> \u00fat en \u00fear er rakin saga S\u00f6lku V\u00f6lku sem kemur me\u00f0 m\u00f3\u00f0ur sinni til \u00d3seyrar vi\u00f0 Axlarfj\u00f6r\u00f0 og sagt fr\u00e1 kynnum hennar af Arnaldi, hugsj\u00f3namanninum unga sem \u00e6tlar a\u00f0 bylta heiminum. Tveimur \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar kom <em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/em> \u00ed tveimur hlutum, hi\u00f0 mikla sk\u00e1ldverk um Bjart \u00ed Sumarh\u00fasum, manninn sem s\u00e1\u00f0i \u00ed akur \u00f3vinar s\u00edns allt sitt l\u00edf, dag og n\u00f3tt. \u00c1 \u00e1runum 1937-40 sendi Halld\u00f3r <em>Heimslj\u00f3s<\/em> fr\u00e1 s\u00e9r, s\u00f6guna um \u00d3laf K\u00e1rason Lj\u00f3sv\u00edking sem er einna sm\u00e6stur me\u00f0br\u00e6\u00f0ra sinna, fyrirlitinn sk\u00e1ldsnillingur, krossberi sem \u00fej\u00e1ist fyrir a\u00f0ra. Hann \u00fer\u00e1ir fegur\u00f0ina og getur aldrei teki\u00f0 fullan \u00fe\u00e1tt \u00ed mannl\u00edfinu en hann segir \u00e1 einum sta\u00f0: \u201e\u00dea\u00f0 er n\u00fa einu sinni svo, a\u00f0 \u00fea\u00f0 er miklu erfi\u00f0ara a\u00f0 vera sk\u00e1ld og yrkja um heiminn en vera ma\u00f0ur og lifa \u00ed heiminum.\u201c \u00c1ri\u00f0 1948 kom <em>At\u00f3mst\u00f6\u00f0in<\/em> \u00fat en h\u00fan var innlegg \u00ed eldheitar deilur \u00fej\u00f3\u00f0arinnar um afst\u00f6\u00f0una til veru erlends herli\u00f0s \u00ed landinu. \u00cd \u00feessum f\u00e9lagslegu s\u00f6gum \u00far samt\u00edmanum deilir Halld\u00f3r m.a. mj\u00f6g \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0skipulagi\u00f0, ranglega skiptingu au\u00f0s, s\u00f6lu landsins, enda var hann \u00fe\u00e1 or\u00f0inn sannf\u00e6r\u00f0ur s\u00f3s\u00edalisti.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Leit a\u00f0 parad\u00eds \u00e1 j\u00f6r\u00f0<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um \u00feetta leyti sneri sk\u00e1ldi\u00f0 s\u00e9r sm\u00e1m saman a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 semja s\u00f6gulegar sk\u00e1lds\u00f6gur sem bygg\u00f0ar eru \u00e1 ritu\u00f0um heimildum. <em>\u00cdslandsklukkan<\/em> kom \u00fat \u00e1 \u00e1runum 1943-46 en h\u00fan gerist \u00e1 einhverju mesta ni\u00f0url\u00e6gingarskei\u00f0i \u00fej\u00f3\u00f0arinnar, 17. \u00f6ld. \u00dear segir fr\u00e1 leit J\u00f3ns Hreggvi\u00f0ssonar b\u00f3nda \u00e1 Rein a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti eftir a\u00f0 hafa stoli\u00f0 sn\u00e6ri. Bar\u00e1ttusaga hans fl\u00e9ttast inn \u00ed \u00f6rlaga\u00ferungna \u00e1stars\u00f6gu Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ar \u00cdslandss\u00f3lar og Arnasar Arn\u00e6usar. \u00deau eru elskendur en um lei\u00f0 andst\u00e6\u00f0ingar \u00ed bar\u00e1ttu um hei\u00f0ur og v\u00f6ld.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1ri\u00f0 1952 sendi Halld\u00f3r <em>Gerplu<\/em> fr\u00e1 s\u00e9r. \u00dear r\u00e9\u00f0st hann \u00ed \u00fea\u00f0 st\u00f3rvirki a\u00f0 skrifa \u201e\u00cdslendingas\u00f6gu\u201c. Sagan er framan af h\u00e1\u00f0s\u00e1deila sem stefnt er gegn hetju- og ofbeldisd\u00fdrkun \u00deorgeirs H\u00e1varssonar og \u00deorm\u00f3\u00f0s Kolbr\u00fanarsk\u00e1lds en \u00feegar h\u00e1\u00f0inu sleppir tekur harmleikurinn vi\u00f0. \u00c1tta \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar kom \u00f6nnur s\u00f6guleg sk\u00e1ldsaga fr\u00e1 Halld\u00f3ri, <em>Parad\u00edsarheimt<\/em>, sem segir fr\u00e1 Steinari b\u00f3na \u00ed Steinahl\u00ed\u00f0um sem fer yfir h\u00e1lfan hn\u00f6ttinn \u00ed leit a\u00f0 parad\u00eds \u00e1 j\u00f6r\u00f0. Hann sn\u00fdr a\u00f0 lokum aftur til heimahaganna, margs fr\u00f3\u00f0ari um hugsj\u00f3nir og t\u00e1l heimsins.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd \u00feessum s\u00f6gum m\u00e1 segja a\u00f0 sk\u00e1ldi\u00f0 r\u00e6\u00f0i vi\u00f0 samt\u00ed\u00f0 s\u00edna me\u00f0 s\u00f6gum \u00far fort\u00ed\u00f0inni en jafnframt greindu menn n\u00fdjan t\u00f3n \u00ed \u00feeim. \u00c1\u00f0ur haf\u00f0i hann bo\u00f0a\u00f0 s\u00f3s\u00edalisma af miklum \u00e1kafa, hyllt lei\u00f0toga Sov\u00e9tr\u00edkjanna en n\u00fa var eins og hann v\u00e6ri b\u00fainn a\u00f0 f\u00e1 sig fullsaddan af kenningum og mj\u00f6g farinn a\u00f0 efast um s\u00e6lur\u00edki\u00f0. Sama t\u00f3n m\u00e1 greina \u00ed <em>Brekkukotsann\u00e1l<\/em> sem hann sendi fr\u00e1 s\u00e9r 1956, \u00e1ri eftir a\u00f0 hann f\u00e9kk N\u00f3belsver\u00f0launin \u00ed b\u00f3kmenntum. \u00c1lfgr\u00edmur Hansson segir \u00fear s\u00f6gu s\u00edna, \u00f6mmu sinnar og afa og st\u00f3rs\u00f6ngvarans Gar\u00f0ars H\u00f3lm. Hann langar a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 syngja og finna hinn hreina t\u00f3n. Fyrirmynd hans er Gar\u00f0ar H\u00f3lm sem hefur h\u00f6ndla\u00f0 fr\u00e6g\u00f0ina, a\u00f0 sagt er, en ekki er eins v\u00edst a\u00f0 hann hafi fundi\u00f0 t\u00f3ninn hreina. \u00cd <em>Brekkukotsann\u00e1l<\/em> m\u00e1 segja a\u00f0 Halld\u00f3r fjalli um og upphefji heim einfaldleikans.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Bo\u00f0flenna \u00ed sk\u00e1lds\u00f6gum<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir <em>Parad\u00edsarheimt<\/em> li\u00f0u \u00e1tta \u00e1r \u00fear til Halld\u00f3r Laxness sendi fr\u00e1 s\u00e9r n\u00fdja sk\u00e1lds\u00f6gu. Hann sneri s\u00e9r a\u00f0 leikritun, a\u00f0 eigin s\u00f6gn vegna upp\u00e1\u00ferengjandi bo\u00f0flennu \u00ed s\u00f6gum hans sem hann kallar Pl\u00fas Ex. \u201eHver er \u00feessi Pl\u00fas Ex?\u201c, spyr hann \u00ed greinasafninu <em>Upphaf mann\u00fa\u00f0arstefnu<\/em> og svarar: \u201e\u00dea\u00f0 er s\u00fa bo\u00f0flenna me\u00f0 aungu nafni og \u00f3gl\u00f6ggu vegabr\u00e9fi sem \u00e6vinlega er vi\u00f0st\u00f6dd l\u00edkt og gluggag\u00e6gir hvar sem gripi\u00f0 er ofan\u00ed sk\u00e1lds\u00f6gu. \u00deessi herra er aldrei svo sm\u00e1\u00fe\u00e6gur a\u00f0 setjast aftastur \u00ed pers\u00f3nur\u00f6\u00f0inni, heldur s\u00e6ttir sig ekki vi\u00f0 anna\u00f0 en \u00f6ndvegi n\u00e6r mi\u00f0ju fr\u00e1sagnarinnar, jafnvel \u00ed s\u00f6gu \u00fear sem h\u00f6fundur gerir s\u00e9r \u00fe\u00f3 alt far um a\u00f0 samsama ekki sj\u00e1lfan sig s\u00f6gumanninum.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Leikritin <em>Silfurt\u00fangli\u00f0<\/em> (1954), <em>Strompleikurinn<\/em> (1961), <em>Prj\u00f3nastofan S\u00f3lin<\/em> (1962) og <em>D\u00fafnaveislan<\/em> (1966) eiga margt sameiginlegt. \u00c1\u00f0ur haf\u00f0i Halld\u00f3r skrifa\u00f0 leikriti\u00f0 <em>Straumrof<\/em> (1934) og sami\u00f0 leikger\u00f0 a\u00f0 <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em> (1950) en \u00feau eru af \u00f6\u00f0rum toga. \u00cd \u00feessum s\u00ed\u00f0ari leikritum s\u00ednum fj\u00f3rum etur Halld\u00f3r saman fulltr\u00faum tveggja heima. \u00deetta eru hinn \u00f3menga\u00f0i og upprunalegi heimur n\u00e6gjusemi, hversdagsleika og l\u00edtill\u00e6tis annars vegar og hins vegar heimur si\u00f0g\u00e6\u00f0isblindu, s\u00f6lumennsku og efnalegra allsn\u00e6gta. Og fer ekki \u00e1 milli m\u00e1la a\u00f0 s\u00e1 fyrri \u00e1 sam\u00fa\u00f0 og s\u00e1l h\u00f6fundar.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Kve\u00f0ur vi\u00f0 n\u00fdjan t\u00f3n<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1ri\u00f0 1968 kva\u00f0 enn vi\u00f0 n\u00fdjan t\u00f3n hj\u00e1 Halld\u00f3r Laxness \u00ed <em>Kristnihaldi undir J\u00f6kli<\/em>. \u00dear er hinni svok\u00f6llu\u00f0u endurspeglun veruleikans a\u00f0 nokkru leyti varpa\u00f0 fyrir r\u00f3\u00f0a og \u00fev\u00ed leyft a\u00f0 nj\u00f3ta s\u00edn sem ekki ver\u00f0ur sk\u00fdrt me\u00f0 r\u00f6klegum h\u00e6tti. \u00c1 \u00e1runum \u00e1 undan h\u00f6f\u00f0u \u00edslenskir rith\u00f6fundar teki\u00f0 til vi\u00f0 a\u00f0 sprengja hi\u00f0 hef\u00f0bunda sk\u00e1ldsagnaform. N\u00fa l\u00e9t N\u00f3belssk\u00e1ldi\u00f0 ekki sitt eftir liggja og t\u00f3k a\u00f0 nokkru leyti upp \u00fer\u00e1\u00f0inn fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00fear sem honum sleppti \u00ed <em>Vefaranum mikla fr\u00e1 Kasm\u00edr<\/em> \u00e1ratugum fyrr. \u00cd s\u00f6gunni segir fr\u00e1 umbo\u00f0smanni biskups sem reynir a\u00f0 f\u00e1 botn \u00ed st\u00f6rf s\u00e9ra J\u00f3ns pr\u00edmusar og kristnihald undir J\u00f6kli. Gagnr\u00fdnendur t\u00f3ku b\u00f3kinni fagnandi og veittu sk\u00e1ldinu Silfurlampann, b\u00f3kmenntaver\u00f0laun dagbla\u00f0anna, fyrir. \u00c1ri s\u00ed\u00f0ar, 1969, sendi Halld\u00f3r fr\u00e1 s\u00e9r sk\u00e1lds\u00f6guna <em>Innansveitarkroniku<\/em>. \u00deetta er fr\u00e1s\u00f6gn af kirkjustr\u00ed\u00f0i \u00ed Mosfellssveit og sty\u00f0ur \u00fe\u00e1 hugmynd a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 sj\u00e1lft geti veri\u00f0 fr\u00e1sagnarver\u00f0ara, sk\u00e1ldlegra og skemmtilegra en nokkur tilb\u00faningur. H\u00fan er skrifu\u00f0 \u00ed st\u00edl \u00edslenskra fr\u00f3\u00f0leiksmanna \u00e1 fyrri h\u00f6ldum en \u00fe\u00f3 leynir handbrag\u00f0 sk\u00e1ldsins s\u00e9r ekki.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Fari\u00f0 um v\u00ed\u00f0an v\u00f6ll<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1ri\u00f0 1972 kom n\u00fd sk\u00e1ldsaga fr\u00e1 Halld\u00f3ri Laxness, <em>Gu\u00f0sgjafa\u00feula<\/em> \u00fear sem hann kemur aftur a\u00f0 g\u00f6mlu yrkisefni, s\u00edldarspek\u00falanti, eins og hann haf\u00f0i fjalla\u00f0 um \u00ed <em>S\u00f6lku V\u00f6lku<\/em> \u00e1 fj\u00f3r\u00f0a \u00e1ratugnum. N\u00fa voru efnist\u00f6kin \u00f6nnur, hann horfir ekki \u00e1 \u00cdslands-Bersa \u00ed <em>Gu\u00f0sgjafa\u00feulu<\/em> s\u00f6mu augum og Bogesen kaupmann \u00ed <em>S\u00f6lku<\/em>, hin p\u00f3lit\u00edsku vi\u00f0mi\u00f0 eru horfin.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir \u00feetta t\u00f3k sk\u00e1ldi\u00f0 a\u00f0 rita minningas\u00f6gur sem komu \u00fat \u00e1 \u00e1runum 1975-1980 en \u00fe\u00e6r nefnast <em>\u00cd t\u00faninu heima <\/em>(1975), <em>Sj\u00f6meistarasagan <\/em>(1978)<em>, \u00dangur eg var <\/em>(1976), og <em>Grikklands\u00e1ri\u00f0 <\/em>(1980).<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lj\u00f3\u00f0ager\u00f0 Halld\u00f3rs hefur \u00e6vinlega sta\u00f0i\u00f0 \u00ed skugga af sk\u00e1lds\u00f6gum hans. Engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur er h\u00fan merkur \u00fe\u00e1ttur \u00ed h\u00f6fundarverki hans, t.d. er \u201e\u00dangl\u00edngurinn \u00ed sk\u00f3ginum\u201c fr\u00e1 \u00feri\u00f0ja \u00e1ratugnum byltingarkennt kv\u00e6\u00f0i \u00fear sem er a\u00f0 finna fyrstu merki um s\u00farrealisma \u00ed \u00edslenskum sk\u00e1ldskap.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r Laxness fer um v\u00ed\u00f0an v\u00f6ll \u00ed sk\u00e1ldskap s\u00ednum. Sagt hefur veri\u00f0 a\u00f0 hann sveiflist fr\u00e1 ka\u00fe\u00f3lsku til s\u00f3s\u00edal\u00edskrar r\u00f3tt\u00e6kni, fr\u00e1 Len\u00edn til Laotse, fr\u00e1 brei\u00f0um ep\u00edskum sk\u00e1lds\u00f6gum til abs\u00fard leikrita, fr\u00e1 s\u00farreal\u00edskum lj\u00f3\u00f0um til vi\u00f0kv\u00e6mra \u201eessay-r\u00f3mana\u201c um bernskuna. Hann var lengi mj\u00f6g umdeildur h\u00f6fundur, ekki s\u00edst vegna p\u00f3lit\u00edskra sko\u00f0ana hans. Menn fylgdu honum e\u00f0a ekki, l\u00e9tu sig hann var\u00f0a, engum st\u00f3\u00f0 \u00e1 sama um hann. Eftir a\u00f0 hann hlaut N\u00f3belsver\u00f0launin 1955 m\u00e1 \u00fe\u00f3 segja a\u00f0 hann hafi veri\u00f0 tekinn \u00ed s\u00e1tt.<\/p>\r\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Halld\u00f3r Laxness ber h\u00f6fu\u00f0 og her\u00f0ar yfir a\u00f0ra \u00edslenska rith\u00f6funda \u00e1 20. \u00f6ld. Hann var afkastamikill \u00e1 l\u00f6ngum ferli, skrifa\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[6],"tags":[],"class_list":["post-102","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-yfirlit"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/102","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=102"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/102\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":104055,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/102\/revisions\/104055"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=102"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=102"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=102"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}