{"id":39,"date":"2022-03-22T20:14:25","date_gmt":"2022-03-22T20:14:25","guid":{"rendered":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=39"},"modified":"2022-04-12T17:28:19","modified_gmt":"2022-04-12T17:28:19","slug":"3-islandsklukkan-fyrirlestur-i-verslo","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=39","title":{"rendered":"\u00cdslandsklukkan \u2013 fyrirlestur fyrir nemendur \u00ed Verzlunarsk\u00f3la \u00cdslands"},"content":{"rendered":"\r\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"691\" class=\"wp-image-21\" src=\"https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/3-1955.-Halldor-kemur-heim-eftir-Nobel.-okt.-195520-1-1024x691.jpg\" alt=\"\" srcset=\"https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/3-1955.-Halldor-kemur-heim-eftir-Nobel.-okt.-195520-1-1024x691.jpg 1024w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/3-1955.-Halldor-kemur-heim-eftir-Nobel.-okt.-195520-1-scaled-600x405.jpg 600w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/3-1955.-Halldor-kemur-heim-eftir-Nobel.-okt.-195520-1-300x202.jpg 300w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/3-1955.-Halldor-kemur-heim-eftir-Nobel.-okt.-195520-1-768x518.jpg 768w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/3-1955.-Halldor-kemur-heim-eftir-Nobel.-okt.-195520-1-1536x1036.jpg 1536w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/3-1955.-Halldor-kemur-heim-eftir-Nobel.-okt.-195520-1-2048x1381.jpg 2048w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/3-1955.-Halldor-kemur-heim-eftir-Nobel.-okt.-195520-1-scaled.jpg 2560w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/>\r\n\r\n<\/figure>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um \u00e1ratuga skei\u00f0 sigldi Gullfoss me\u00f0 far\u00feega milli \u00cdslands, Leith \u00ed Skotlandi og Kaupmannahafnar. Fastagestur um bor\u00f0 var Halld\u00f3r Laxness en hann vildi \u00f3gjarnan flj\u00faga. Hann var flughr\u00e6ddur. \u00cd einni fer\u00f0inni, \u00feegar Gullfoss staldra\u00f0i vi\u00f0 \u00ed Leith, st\u00f3\u00f0 Halld\u00f3r \u00fati \u00e1 dekki \u00ed bl\u00ed\u00f0skaparve\u00f0ri. \u00de\u00e1 s\u00e1 hann hvar hafnarverkama\u00f0ur var vi\u00f0 vinnu s\u00edna \u00e1 bryggjunni \u2013 algj\u00f6rlega tannlaus. \u00deetta vakti forvitni N\u00f3belssk\u00e1ldsins og ba\u00f0 hann skipverja a\u00f0 kalla \u00e1 \u00feennan mann svo hann g\u00e6ti tala\u00f0 vi\u00f0 hann. \u00deegar skoski verkama\u00f0urinn var kominn til Halld\u00f3rs spur\u00f0i sk\u00e1ldi\u00f0: \u201eEr ekki vont a\u00f0 vera svona tannlaus? Af hverju f\u00e6r\u00f0u \u00fe\u00e9r ekki falskar tennur?\u201c Verkama\u00f0urinn svara\u00f0i \u00fe\u00e1: \u201e\u00dea\u00f0 er n\u00fa svo a\u00f0 konan m\u00edn er me\u00f0 tennurnar \u00e1 daginn en \u00e9g f\u00e6 \u00fe\u00e6r \u00e1 pubinn \u00e1 kv\u00f6ldin.\u201c \u00de\u00e1 var\u00f0 Halld\u00f3ri Laxness a\u00f0 or\u00f0i: \u201e\u00deetta hl\u00fdtur a\u00f0 vera gott hj\u00f3naband.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi litla saga s\u00fdnir margt sem einkenndi Halld\u00f3r Laxness. Hann l\u00e9t sig var\u00f0a hag n\u00e1ungans, ekki s\u00edst \u00feeirra sem minna mega s\u00edn, hann s\u00e1 hlutina oft \u00f6\u00f0rum augum en vi\u00f0 hin og honum var einkar lagi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 hinar k\u00f3m\u00edskari hli\u00f0ar mannl\u00edfsins. Alla \u00feessa \u00fe\u00e6tti getum vi\u00f0 s\u00e9\u00f0 \u00ed verkum hans, \u00fear \u00e1 me\u00f0al <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em> sem \u00e9g \u00e6tla a\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a um vi\u00f0 ykkur h\u00e9r \u00ed dag.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r skilst \u00e1 kennurum ykkar a\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e9u\u00f0 or\u00f0in s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar \u00ed Halld\u00f3ri Laxness og verkum hans, amk. var tali\u00f0 \u00f3\u00fearft a\u00f0 gefa eitthvert almennt yfirlit yfir feril hans, \u00fei\u00f0 v\u00e6ru\u00f0 me\u00f0 \u00fea\u00f0 allt \u00e1 hreinu. Eins og \u00fei\u00f0 viti\u00f0 \u00fe\u00e1 var Halld\u00f3r gr\u00ed\u00f0arlega afkastamikill \u00e1 l\u00f6ngum ferli, skrifa\u00f0i \u00ferett\u00e1n st\u00f3rar sk\u00e1lds\u00f6gur, fimm leikrit og leikger\u00f0 a\u00f0 einni sk\u00e1lds\u00f6gunni, fyrir utan sm\u00e1sagnas\u00f6fn, greinas\u00f6fn og endurminningarb\u00e6kur. S\u00ed\u00f0asta minningasagan kom \u00fat meira en sext\u00edu \u00e1rum eftir a\u00f0 fyrsta sk\u00e1ldsaga hans kom \u00fat.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e6kur Halld\u00f3rs hafa veri\u00f0 \u00fe\u00fdddar \u00e1 43 tungum\u00e1l og komi\u00f0 \u00fat \u00ed meira en 500 \u00fatg\u00e1fum. B\u00e6kurnar hafa selst \u00ed miklum uppl\u00f6gum um allan heim, t.d. \u00ed hundru\u00f0um \u00fe\u00fasunda eintaka \u00ed Bandar\u00edkjunum. Ferill hans er einstakur, fj\u00f6lbreytni verka hans \u00e1 s\u00e9r f\u00e1ar hli\u00f0st\u00e6\u00f0ur og m\u00e1 segja a\u00f0 me\u00f0 hverri b\u00f3k hafi hann komi\u00f0 a\u00f0 lesendum s\u00ednum \u00far \u00f3v\u00e6ntri \u00e1tt.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g held a\u00f0 flestir \u00cdslendingar eigi s\u00e9r s\u00edna upp\u00e1halds-Laxnessb\u00f3k. \u00c9g veit ekki me\u00f0 ykkur \u2013 en \u00feegar \u00e9g hef veri\u00f0 spur\u00f0ur um \u00fea\u00f0 hva\u00f0a b\u00f3k Halld\u00f3rs \u00e9g haldi mest upp \u00e1 hefur m\u00e9r gjarnan vafist tunga um h\u00f6fu\u00f0. Oftast hef \u00e9g \u00fe\u00f3 nefnt <em>\u00cdslandsklukkuna<\/em>. Kannski af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta var fyrsta b\u00f3kin sem \u00e9g las eftir hann, kannski af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g las hana eitt sinn \u00e1 \u00deingv\u00f6llum og fannst eins og \u00e9g v\u00e6ri \u00e1horfandi a\u00f0 atbur\u00f0ar\u00e1sinni, \u00e9g s\u00e6i J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson hlaupa undan r\u00e9ttv\u00edsinni nor\u00f0ur \u00ed land. Kannski er \u00fea\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 <em>\u00cdslandsklukkan<\/em> kemur m\u00e9r alltaf \u00e1 \u00f3vart. \u00c9g finn \u00fear \u00e6vinlega eitthva\u00f0 n\u00fdtt.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r skilst a\u00f0 \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 lesi\u00f0 <em>S\u00f6lku V\u00f6lku<\/em> \u00ed fyrra, <em>\u00cdslandsklukkuna<\/em> \u00ed \u00e1r og \u00ed haust muni\u00f0 \u00fei\u00f0 sn\u00faa ykkur a\u00f0 <em>Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u f\u00f3lki<\/em>. Ef \u00fei\u00f0 beri\u00f0 saman <em>S\u00f6lku V\u00f6lku<\/em> og <em>\u00cdslandsklukkuna<\/em> sj\u00e1i\u00f0 \u00fei\u00f0 flj\u00f3tt a\u00f0 \u00fearna er um gj\u00f6r\u00f3l\u00edkar s\u00f6gur a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. \u00dea\u00f0 sem fyrst kemur upp \u00ed hugann er vitaskuld s\u00f6gusvi\u00f0i\u00f0. <em>Salka Valka<\/em> er f\u00e9lagsleg saga \u00far samt\u00edmanum \u2013 eins og Halld\u00f3r einbeitti s\u00e9r a\u00f0 \u00e1 fj\u00f3r\u00f0a \u00e1ratugnum \u2013 en <em>\u00cdslandsklukkan<\/em> s\u00f6guleg sk\u00e1ldsaga og \u00ed <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em> hefur Halld\u00f3r gj\u00f6rbreytt a\u00f0fer\u00f0 sinni fr\u00e1 fyrri b\u00f3kum. Halld\u00f3r velur s\u00e9r \u00fearna annan fr\u00e1sagnarm\u00e1ta en hann nota\u00f0i \u00e1\u00f0ur \u00ed verkum s\u00ednum. Hann l\u00fdsir \u00f6llu utan fr\u00e1, \u00fatsk\u00fdrir aldrei hva\u00f0 pers\u00f3num b\u00fdr \u00ed huga, l\u00e6tur \u00fe\u00e6r l\u00fdsa s\u00e9r me\u00f0 or\u00f0um s\u00ednum en beitir einnig umhverfisl\u00fdsingum markvisst \u00ed \u00fev\u00ed skyni. \u00deessa a\u00f0fer\u00f0 \u00feiggur hann \u00ed arf fr\u00e1 \u00feeim er ritu\u00f0u fornar b\u00f3kmenntir okkar. Sj\u00e1lfur segir Halld\u00f3r um \u00feetta \u00ed samtali vi\u00f0 Matth\u00edas Johannessen \u00ed <em>Skeggr\u00e6\u00f0um gegnum t\u00ed\u00f0ina<\/em>:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00deegar \u00e9g skrifa\u00f0i \u00cdslandsklukkuna var \u00e9g kominn \u00e1 \u00fe\u00e1 sko\u00f0un, a\u00f0 nau\u00f0synlegt v\u00e6ri a\u00f0 strika sem mest \u00fat, og s\u00e1, \u00feegar \u00e9g leit \u00ed m\u00ednar g\u00f6mlu b\u00e6kur, a\u00f0 \u00fear var v\u00ed\u00f0a h\u00e6gt a\u00f0 strika \u00fat heilar og h\u00e1lfar setningar, stundum a\u00f0ra hverja setningu, jafnvel heila kap\u00edtula. \u00cdslandsklukkan er dregin saman \u00ed forminu. \u00d3\u00fearfa or\u00f0askak er lagt ni\u00f0ur, aldrei sagt hva\u00f0 ma\u00f0urinn hugsar, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur \u00f3endanlegt ef \u00e1 a\u00f0 l\u00fdsa \u00fat \u00ed \u00e6sar hva\u00f0 allir hugsa, og hl\u00fdtur a\u00f0 enda \u00ed \u00f3skapna\u00f0i sem er andst\u00e6\u00f0ur s\u00f6gu \u2026 \u00cd \u00cdslandsklukkunni reyni \u00e9g a\u00f0 segja me\u00f0 sem f\u00e6stum or\u00f0um, hvernig pers\u00f3nan kemur fram \u00ed hverju atviki, hva\u00f0 h\u00fan talar og hvernig h\u00fan svarar heiminum me\u00f0 heg\u00f0an sinni.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00cdslandsklukkan<\/em> var fyrsta s\u00f6gulega sk\u00e1ldsaga Halld\u00f3rs \u00fear sem hann bygg\u00f0i \u00e1 ritu\u00f0um heimildum en fleiri \u00e1ttu s\u00ed\u00f0an eftir a\u00f0 b\u00e6tast vi\u00f0. <em>\u00cdslandsklukkan<\/em> kom \u00fat um mi\u00f0jan fimmta \u00e1ratuginn \u00ed \u00feremur hlutum, um \u00fea\u00f0 leyti sem \u00cdslendingar l\u00fdstu yfir stofnun l\u00fd\u00f0veldis og s\u00ed\u00f0ari heimsstyrj\u00f6ldinni lauk. \u00de\u00f3 a\u00f0 nokkur merki megi sj\u00e1 um \u00feessa atbur\u00f0i \u00ed s\u00f6gunni er h\u00fan s\u00f6guleg sk\u00e1ldsaga en \u00f6\u00f0ru fremur t\u00falkun \u00e1 s\u00f6gu \u00fej\u00f3\u00f0arinnar og \u00e6tlu\u00f0 til a\u00f0 br\u00fdna sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isvitun hennar.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mynd Halld\u00f3rs af \u00cdslendingum um 1700 er h\u00f6rmuleg: \u00fea\u00f0 r\u00edkir hungursney\u00f0, dreps\u00f3ttir geisa og einokunarverslunin p\u00ednir landsl\u00fd\u00f0. Klukka landsins er h\u00f6ggvin ni\u00f0ur, l\u00f6gr\u00e9ttuh\u00fas er \u00ed ni\u00f0urn\u00ed\u00f0slu, emb\u00e6ttismenn drukknir vi\u00f0 st\u00f6rf, r\u00e9ttarfar \u00ed molum og svo framvegis. En me\u00f0 einhverjum h\u00e6tti lifir \u00feetta f\u00f3lk af; t\u00e1knmynd \u00feess, J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson, heldur s\u00ednu h\u00f6f\u00f0i hvernig sem allt veltist. Hann stelur sn\u00e6ri svo hann geti veitt s\u00e9r fisk, hann er h\u00fdddur fyrir a\u00f0 h\u00e6\u00f0ast a\u00f0 k\u00f3nginum, \u00e1 heimlei\u00f0inni bendir margt til \u00feess a\u00f0 hann drekki b\u00f6\u00f0li s\u00ednum \u00ed drullupytti og fyrir viki\u00f0 er hann d\u00e6mdur til dau\u00f0a.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson var til, eins og \u00fei\u00f0 viti\u00f0, og kveikjan a\u00f0 s\u00f6gunni var br\u00e9f fr\u00e1 J\u00f3ni til yfirvalda sem Halld\u00f3r komst yfir. Hann velti s\u00f6gu J\u00f3ns fyrir s\u00e9r \u00ed ein \u00e1tj\u00e1n \u00e1r og sag\u00f0i meira a\u00f0 segja \u00ed \u00fatvarpserindi \u00e1ri \u00e1\u00f0ur en b\u00f3kin kom \u00fat:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Samt\u00edminn, hi\u00f0 i\u00f0andi l\u00edf umhverfis h\u00f6fundinn og \u00ed brj\u00f3sti hans, ney\u00f0ir upp\u00e1 hann yrkisefnum sem hann haf\u00f0i s\u00edst \u00f3ra\u00f0 fyrir, yrkisefnum sem hann hefur kanski fl\u00fai\u00f0 \u00e1rum saman, yrkisefnum sem hann mundi gefa aleigu s\u00edna, \u00fe\u00f3tt hann v\u00e6ri milj\u00f3nam\u00e6r\u00edngur, til a\u00f0 \u00feurfa aldrei a\u00f0 f\u00e6rast \u00ed f\u00e1ng. Til d\u00e6mis veit \u00e9g a\u00f0 h\u00f6fundur einn er n\u00fdbyrja\u00f0ur \u00e1 b\u00f3k sem hann hefur \u00ed \u00e1tj\u00e1n \u00e1r veri\u00f0 a\u00f0 bi\u00f0ja gu\u00f0ina a\u00f0 for\u00f0a s\u00e9r fr\u00e1 a\u00f0 skrifa. H\u00f6fundinum finst s\u00e9r verki\u00f0 ofvaxi\u00f0, hann hryllir vi\u00f0 \u00f6llu \u00feessu str\u00ed\u00f0andi l\u00edfi sem heimtar a\u00f0 hann gefi \u00fev\u00ed m\u00e1l og form, neitar \u00feverneitar og \u00fer\u00e1neitar a\u00f0 leggja sig \u00ed \u00feennan vo\u00f0a \u2013 en hann hefur n\u00fa einu sinni ve\u00f0dregi\u00f0 sig sk\u00f6punar\u00f6flum l\u00edfsins og \u00feau halda \u00e1fram a\u00f0 heimta hann \u00f3skiftan, og honum ver\u00f0ur ekki undankomu au\u00f0i\u00f0.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Samt\u00edmaatbur\u00f0ir \u00feessir eru vitaskuld bar\u00e1tta \u00cdslendinga fyrir sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i og heimsstr\u00ed\u00f0i\u00f0 \u00fear sem sm\u00e1\u00fej\u00f3\u00f0ir voru innlima\u00f0ar \u00ed st\u00e6rri r\u00edki \u00e1n fyrirvara.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00cdslandsklukkuna<\/em> m\u00e1 lesa me\u00f0 \u00fdmsum h\u00e6tti. Vi\u00f0 getum lesi\u00f0 hana sem s\u00f6gu um mor\u00f0 \u00fear sem gl\u00e6purinn \u2013 ef hann var \u00fe\u00e1 framinn \u2013 ver\u00f0ur a\u00f0 lokum aukaatri\u00f0i, svo sem n\u00fa er \u00ed t\u00edsku \u00ed gl\u00e6pasagnabransanum. A\u00f0 \u00fev\u00ed leyti m\u00e1 segja a\u00f0 <em>\u00cdslandsklukkan<\/em> s\u00e9 langt \u00e1 undan sinni samt\u00ed\u00f0. \u00dea\u00f0 skiptir ekki m\u00e1li hvort b\u00f6\u00f0ullinn drukkna\u00f0i \u00ed pyttinum \u00ed \u00f6l\u00e6\u00f0i e\u00f0a hvort honum barst \u00f3v\u00e6nt hj\u00e1lp fr\u00e1 sn\u00e6ris\u00fej\u00f3fnum sem hann haf\u00f0i n\u00fdloki\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 h\u00fd\u00f0a. Samskipti pers\u00f3nanna skipta meira m\u00e1li, \u00feau eru notu\u00f0 til a\u00f0 segja st\u00e6rri s\u00f6gu. En hva\u00f0a s\u00f6gu?<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00cdslandsklukkan <\/em>erl\u00edka \u00e1starsaga Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ar \u00cdslandss\u00f3lar og Arnasar. \u00deau hittast \u00feegar h\u00fan er unglingur en hann fullt\u00ed\u00f0a ma\u00f0ur, hann gefur henni hring og \u00feau elska hvort anna\u00f0 upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed. En \u00feeim er ekki \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 eigast. Arnas hefur vari\u00f0 au\u00f0i s\u00ednum til b\u00f3kakaupa og liggur vi\u00f0 gjald\u00feroti. Hann leysir fj\u00e1rhagsvanda sinn me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kv\u00e6nast r\u00edkri ekkju \u00ed Kaupmannah\u00f6fn og \u00fear me\u00f0 ver\u00f0ur draumurinn um hj\u00f3naband \u00feeirra Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ar a\u00f0 engu. \u00de\u00f3 a\u00f0 \u00feau ey\u00f0i s\u00ed\u00f0ar saman sumri og eigi saman n\u00f3tt \u00ed s\u00f6gulok \u00ed Kaupmannah\u00f6fn er saga \u00feeirra trag\u00edsk, me\u00f0al annars vegna \u00feess a\u00f0 makar \u00feeirra hvors um sig eru h\u00e1lfger\u00f0ar \u00f3freskjur, annars vegar kroppinbakurinn danski me\u00f0 munninn \u00e1 mi\u00f0jum maga og hins vegar Magn\u00fas sem er ofdrykkjuma\u00f0ur og selur jar\u00f0ir s\u00ednar og Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i eiginkonu s\u00edna fyrir brenniv\u00edn.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvers vegna geta Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur og Arnas ekki gengi\u00f0 a\u00f0 eiga hvort anna\u00f0? Hva\u00f0 stendur \u00ed vegi fyrir \u00feeim? \u00dev\u00ed m\u00e1 svara me\u00f0 einu or\u00f0i: hugsj\u00f3namennska. Arnas f\u00f3rnar s\u00e9r fyrir b\u00f3kmenntir \u00cdslendinga og \u00fear me\u00f0 fyrir \u00fej\u00f3\u00f0ina. Vi\u00f0 getum sagt a\u00f0 Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur s\u00e9 s\u00e9r me\u00f0vitu\u00f0 um \u00feessa f\u00f3rn og fallist \u00e1 hana. H\u00fan leysir J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson \u00far haldi n\u00f3ttina \u00e1\u00f0ur en \u00e1 a\u00f0 taka hann af l\u00edfi og sendir til Kaupmannahafnar til Arnasar. Skilabo\u00f0in sem h\u00fan sendir \u00e1stmanni s\u00ednum me\u00f0 J\u00f3ni \u00e1samt hringnum sem Arnas gaf henni for\u00f0um eru \u00feau a\u00f0 \u00fe\u00f3 a\u00f0 hann vilji hana ekki og kj\u00f3si a\u00f0 bjarga s\u00f3ma \u00cdslendinga, \u00fe.e.a.s. b\u00f3kum \u00fej\u00f3\u00f0arinnar, og \u00fear me\u00f0 \u00cdslendingum sj\u00e1lfum fremur en nj\u00f3ta \u00e1sta hennar \u00fe\u00e1 muni h\u00fan samt alltaf unna honum.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur ber mikla vir\u00f0ingu fyrir hugsj\u00f3n Arnasar en svo m\u00e1 spyrja: er \u00feessi hugsj\u00f3n ekki grimm? M\u00e1 ekki l\u00edkja hugsj\u00f3n Arnasar vi\u00f0 drykkjus\u00fdki Magn\u00fasar \u00ed Br\u00e6\u00f0ratungu? Hann leggur allt \u00ed s\u00f6lurnar fyrir b\u00e6kur eins og hinn leggur allt \u00ed s\u00f6lurnar fyrir brenniv\u00edn. Arnas selur Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i fyrir handritin me\u00f0an Magn\u00fas selur hana fyrir brj\u00f3stbirtu. Arnas sv\u00edkur a\u00f0 v\u00edsu ekki \u00fej\u00f3\u00f0ina en hann sv\u00edkur Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i, f\u00f3rnar einstaklingnum fyrir heildarhag. \u00cd dag v\u00e6ru \u00feeir Magn\u00fas og Arnas kalla\u00f0ir f\u00edklar hvor \u00e1 sinn h\u00e1tt og v\u00e6ntanlega sendir \u00e1 Vog.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo sn\u00fdst allt \u00ed h\u00f6ndunum \u00e1 Arnasi. Hann ver\u00f0ur s\u00e9rstakur umbo\u00f0sma\u00f0ur Danakonungs \u00e1 \u00cdslandi. Hann berst me\u00f0 \u00fev\u00ed fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti, l\u00e6tur taka upp rangl\u00e1ta d\u00f3ma og setja \u00f3h\u00e6fa emb\u00e6ttismenn af, me\u00f0al annars f\u00f6\u00f0ur Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ar; en ekki fagna \u00feeir sem \u00e1\u00f0ur voru h\u00fdddir og saklausir d\u00e6mdir. B\u00f3kasafni\u00f0 sem hann kemur s\u00e9r upp ver\u00f0ur eldi a\u00f0 br\u00e1\u00f0 \u00ed brunanum mikla \u00ed Kaupmannah\u00f6fn. Hann er or\u00f0inn \u00fereyttur, honum finnst hann sigra\u00f0ur. Samvistir vi\u00f0 kroppinbk, str\u00ed\u00f0 vi\u00f0 kaupmenn og spillta d\u00f3mara hafa sl\u00f6kkt l\u00edfsl\u00f6ngun hans; hann er \u00fatbrunninn.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1st og hugsj\u00f3n takast \u00e1 \u00ed <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em>, r\u00e9tt eins og t.d. \u00ed <em>S\u00f6lku V\u00f6lku<\/em>, \u00fear sem Arnaldur velur frama sinn og hugsj\u00f3n fremur en \u00e1st S\u00f6lku. \u00deannig s\u00e9r ma\u00f0ur hvernig samspil \u00e1star og hugsj\u00f3nar var Halld\u00f3ri Laxness hugleiki\u00f0. \u00dea\u00f0 er engu l\u00edkara en \u00e1st og hugsj\u00f3n geti ekki fari\u00f0 saman.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef vi\u00f0 sko\u00f0um s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0inn \u00ed <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em> a\u00f0eins n\u00e1nar sj\u00e1um vi\u00f0 hversu m\u00f6gnu\u00f0 fl\u00e9ttan er. \u00c1 einum sta\u00f0 k\u00e6rir Magn\u00fas Arnas fyrir \u00f3l\u00f6gleg m\u00f6k vi\u00f0 Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i eiginkonu s\u00edna sumari\u00f0 sem \u00feau \u00e1ttu saman. Arnas k\u00e6rir hann \u00e1 m\u00f3ti fyrir r\u00f3gbur\u00f0 og gerir kr\u00f6fu um a\u00f0 eignir hans ver\u00f0i ger\u00f0ar uppt\u00e6kar. Arnas og Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur skiljast a\u00f0 og fer Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur heim til Magn\u00fasar. J\u00f6r\u00f0 \u00feeirra Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ar haf\u00f0i Magn\u00fas tapa\u00f0 \u00e1 fyller\u00edi en fa\u00f0ir hennar keypt aftur og gefi\u00f0 henni. H\u00fan gefur n\u00fa Magn\u00fasi j\u00f6r\u00f0ina Br\u00e6\u00f0ratungu \u00e1 n\u00fd. \u00deetta segist h\u00fan gera til \u00feess a\u00f0 hann eigi einhverja eign ef hann skyldi ver\u00f0a d\u00e6mdur til eignamissis. Til hvers? spyr ma\u00f0ur sig.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar Arnas neitar a\u00f0 hafa haft m\u00f6k vi\u00f0 Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i afneitar hann henni; en f\u00e1i hann d\u00f3m \u00fev\u00ed til sta\u00f0festingar hefur hann ekki a\u00f0eins afneita\u00f0 henni heldur einnig gert hana eignalausa. Gangi d\u00f3mur aftur \u00e1 m\u00f3ti \u00e1 hinn veginn teljast \u00feau b\u00e6\u00f0i sek um h\u00f3r, sem hef\u00f0i svipt \u00feau \u00e6runni ef ekki \u00f6\u00f0ru og meira; en Magn\u00fas hef\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00e1tt j\u00f6r\u00f0ina, amk. fram a\u00f0 n\u00e6sta fyller\u00edi.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Me\u00f0 \u00feessu gerir Halld\u00f3r Laxness samskipti elskendanna afar \u00feverst\u00e6\u00f0ukennd og full af spennu. Sama er uppi \u00e1 teningnum \u00feegar \u00feau hittast \u00e1 gistih\u00fasi \u00ed Kaupmannah\u00f6fn. Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur hefur \u00fe\u00e1 fengi\u00f0 d\u00f6nsk yfirv\u00f6ld til a\u00f0 \u00f3gilda d\u00f3ma Arnasar og me\u00f0 \u00fev\u00ed raunar r\u00fai\u00f0 hann hei\u00f0rinum; en \u00fe\u00f3 k\u00fds h\u00fan a\u00f0 ey\u00f0a me\u00f0 honum n\u00f3tt og b\u00fd\u00f0st til a\u00f0 r\u00edfa m\u00e1lsskj\u00f6lin. Arnas er kunnugt um \u00feessa tilraun hennar til a\u00f0 ey\u00f0ileggja hann, en kemur \u00fe\u00f3 til hennar engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00fer\u00e1tt fyrir \u00feessar langvarandi orrustur Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ar og Arnasar eru \u00feau eil\u00edflega elskendur. \u00deannig spilar Halld\u00f3r Laxness \u00e1 \u00feverst\u00e6\u00f0ur \u00ed <em>\u00cdslandsklukkunni <\/em>og raunar \u00ed fleiri verkum.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g nefndi \u00e1\u00f0an a\u00f0 \u00e9g s\u00e6i alltaf eitthva\u00f0 n\u00fdtt \u00ed \u00cdslandsklukkunni \u00feegar \u00e9g l\u00e6si hana. \u00dea\u00f0 helgast kannski af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 t\u00falka b\u00f3kina \u00e1 mismunandi h\u00e1tt eftir \u00fev\u00ed \u00e1 hverja af a\u00f0alpers\u00f3nunum ma\u00f0ur leggur \u00e1herslu en \u00ed hverju bindi s\u00f6gunnar er ein alltaf fyrirfer\u00f0armest. \u00cd fyrsta hluta, <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em>, er J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson b\u00f3ndi \u00e1 Rein mest \u00e1berandi, \u00ed \u00f6\u00f0rum hluta, <em>Hinu lj\u00f3sa mani<\/em>, er Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir Eydal\u00edn \u00ed brennidepli og \u00ed \u00feri\u00f0ja og s\u00ed\u00f0asta hluta, <em>Eldi \u00ed Kaupinhafn<\/em>, fer mest fyrir Arnasi Arn\u00e6usi.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson er \u00ed brennidepli er h\u00e6gt a\u00f0 leggja s\u00f6guna \u00fat \u00e1 \u00feann veg a\u00f0 h\u00fan segi fr\u00e1 \u00fev\u00ed hvernig valdi\u00f0 r\u00eds einstaklingi yfir h\u00f6fu\u00f0. Honum ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00e1 a\u00f0 gr\u00edpa sn\u00e6ri og upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed er eins og hann s\u00e9 leiksoppur \u00f6rlaganna. Leit hans a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti ver\u00f0ur l\u00f6ng og str\u00f6ng, hann ver\u00f0ur a\u00f0 pe\u00f0i \u00ed valdatafli \u00fear sem hann sj\u00e1lfur skiptir litlu m\u00e1li eins og Arnas Arn\u00e6us segir vi\u00f0 hann eftir a\u00f0 J\u00f3n: \u201e\u00feitt m\u00e1l kemur \u00fe\u00e9r sj\u00e1lfum l\u00edti\u00f0 vi\u00f0 J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson. \u00dea\u00f0 er miklu st\u00e6rra m\u00e1l. Hverjum er borgnara \u00fe\u00f3 h\u00f6fu\u00f0 eins betlara s\u00e9 leyst? Ein \u00fej\u00f3\u00f0 lifir ekki af n\u00e1\u00f0.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einstaklingurinn skiptir ekki lengur m\u00e1li heldur heildin, hann stendur frammi fyrir valdi sem er \u00f3skiljanlegt og \u00f3\u00e1\u00fereifanlegt. R\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 ver\u00f0ur afst\u00e6tt. Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur spyr J\u00f3n hvort honum hafi aldrei dotti\u00f0 \u00ed hug a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 og r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 v\u00e6ru fr\u00e6ndsystkin og r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 mi\u00f0a\u00f0i a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tryggja f\u00e1t\u00e6kum manni l\u00edfi\u00f0 en J\u00f3n svarar \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hafi aldrei vita\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti mi\u00f0a a\u00f0 \u00f6\u00f0ru en svipta f\u00e1t\u00e6ka menn l\u00edfinu. Fyrir Arnasi sn\u00fdr m\u00e1li\u00f0 hins vegar \u00f6\u00f0ruv\u00edsi vi\u00f0: Takist r\u00e9tti a\u00f0 sanna gl\u00e6p \u00e1 saklausan mann er hann sekur. \u201e\u00fea\u00f0 er h\u00f6r\u00f0 kenn\u00edng; en \u00e1n hennar mundum vi\u00f0 ekki hafa r\u00e9ttv\u00edsi.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edf sm\u00e6lingjans er me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um aukaatri\u00f0i, r\u00e9ttarkerfi\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 hafa sinn gang, \u2013 eins \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 kunni a\u00f0 hafa rangt fyrir s\u00e9r. Jafnvel Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur v\u00edkur a\u00f0 \u00fev\u00ed sama: \u201eHafi n\u00fa r\u00e9ttinum skeika\u00f0, og s\u00e9 J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson saklaus, er \u00fe\u00e1 ekki r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 meira vir\u00f0i en h\u00f6fu\u00f0 eins betlara? \u2013 jafnvel \u00fe\u00f3 \u00fev\u00ed kunni a\u00f0 skeika endrum og eins.\u201c \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed kannski ekki a\u00f0 undra \u00fe\u00f3tt J\u00f3ni ver\u00f0i a\u00f0 or\u00f0i: \u201eVont er \u00feeirra r\u00e1ngl\u00e6ti, verra \u00feeirra r\u00e9ttl\u00e6ti.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson er jafnframt anna\u00f0 og meira en venjulegur kotb\u00f3ndi, hann ver\u00f0ur \u00ed s\u00f6gunni a\u00f0 t\u00e1kni fyrir \u00ferautseigju \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00e1 erfi\u00f0um t\u00edmum, fulltr\u00fai soltins og illa leikins \u00edslensks almennings sem m\u00e1 s\u00edn einskis gagnvart hinu \u00f3pers\u00f3nulega valdi.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef Arnas Arn\u00e6us er f\u00e6r\u00f0ur \u00ed brennipunkt sj\u00e1um vi\u00f0 allt a\u00f0ra s\u00f6gu \u00ed <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em>. Kristj\u00e1n Karlsson hefur \u00e1 \u00fea\u00f0 bent a\u00f0 l\u00f6gm\u00e1l verksins s\u00e9u l\u00f6gm\u00e1l hins pers\u00f3nubundna harmleiks eins og \u00feau birtast \u00ed gr\u00edskum harmleikjum, leikritum Shakespeare og \u00cdslendingas\u00f6gum. Arnas er \u00fe\u00e1 hin harmr\u00e6na hetja sem form s\u00f6gunnar er bundi\u00f0. Forl\u00f6g hans eru hi\u00f0 \u00fer\u00edtekna megin\u00feema \u00fer\u00edleiksins.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta megin\u00feema er trygg\u00f0rof e\u00f0a svik. Hann sv\u00edkur Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i samkv\u00e6mt \u00feessu \u00ferisvar sinnum: fyrst \u00ed <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em> fyrir hinar fornu b\u00e6kur, aftur \u00ed <em>Hinu lj\u00f3sa mani<\/em> fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 og loks fyrir framt\u00ed\u00f0 landsins sj\u00e1lfs \u00ed <em>Eldi \u00ed Kaupinhafn<\/em>. \u00de\u00f3 ver\u00f0ur mikill hluti hinna fornu handrita eldi a\u00f0 br\u00e1\u00f0, r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 glatar merkingu \u00ed pers\u00f3nulegum og p\u00f3lit\u00edskum \u00e1t\u00f6kum og framt\u00ed\u00f0 landsins er ekki bj\u00f6rt \u00ed s\u00f6gulok. Arnas er a\u00f0 lokum sigra\u00f0ur ma\u00f0ur en \u00fea\u00f0 eru einmitt l\u00f6gm\u00e1l harmleiksins; \u00fear fer \u00e6vinlega allt illa a\u00f0 lokum.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ekki stafa forl\u00f6g hans af maklegum m\u00e1lagj\u00f6ldum heldur er \u00fea\u00f0 \u00f3hamingja hans sem r\u00e6\u00f0ur. Algengasta verkf\u00e6ri \u00f6rlaganna \u00ed harmleikjum er ofmetna\u00f0ur, \u00fea\u00f0 sem Grikkir k\u00f6llu\u00f0u \u201ehybris\u201c. Arnas \u00e6tlar s\u00e9r ofurmannlegt hlutverk, sv\u00edkur hi\u00f0 mannlega fyrir \u00e6\u00f0ri tilgang, freistar \u00feess a\u00f0 sveigja forl\u00f6gin undir vilja sinn. \u00dev\u00ed fer sem fer. Hann \u00e1 \u00fe\u00f3 enn \u00feann m\u00f6guleika a\u00f0 skilja \u00f6rl\u00f6g s\u00edn, j\u00e1tast undir \u00feau: \u201eN\u00fa er best go\u00f0in r\u00e1\u00f0i. \u00c9g er \u00fereyttur\u201c, segir Arnas \u00feegar hann situr eftir sigra\u00f0ur ma\u00f0ur. \u00d6rl\u00f6g Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ar m\u00e1 skilja \u00e1 s\u00f6mu forsendum. \u00deegar \u00ed fyrstu b\u00f3k s\u00f6gunnar segist h\u00fan heldur vilja \u00feann versta en \u00feann n\u00e6stbesta. \u00cd lokin gefur h\u00fan sig \u00f6rl\u00f6gunum \u00e1 vald og giftist \u00feeim n\u00e6stbesta.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Segja m\u00e1 a\u00f0 \u00ed Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i \u00cdslandss\u00f3l sameinist \u00e6vint\u00fdri\u00f0 og draumurinn. H\u00fan er \u00e1lfkonan, \u00e1lfakroppurinn mj\u00f3i. \u00de\u00f3tt h\u00fan segi a\u00f0 vettvangur dagsins s\u00e9 ekki hennar sta\u00f0ur og sterkir menn r\u00edki yfir deginum \u00fe\u00e1 er h\u00fan engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur \u00fe\u00e1tttakandi \u00ed refsk\u00e1k r\u00e9ttv\u00edsinnar, gl\u00edmir \u00e1 \u00feeim vettvangi vi\u00f0 Arnas \u00fe\u00f3tt h\u00fan elski hann. Stolt hennar krefst \u00feess. H\u00fan er sterk og heilsteypt, \u00fea\u00f0 g\u00f3\u00f0a afl sem fyrirgefur flest, \u201es\u00fa sanna drotn\u00edng alls Nor\u00f0urheims\u201c eins og J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson kemst a\u00f0 or\u00f0i. H\u00fan er s\u00fa sem heldur fram hei\u00f0ri landsins, hei\u00f0urinn er \u00fea\u00f0 sem allt sn\u00fdst um. H\u00fan sj\u00e1lf skiptir ekki m\u00e1li ef s\u00f3mi lands og \u00e6ttar er \u00ed ve\u00f0i eins og s\u00e9st \u00ed \u00fev\u00ed sem h\u00fan bi\u00f0ur J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson a\u00f0 skila til Arnasar \u00ed Kaupmannah\u00f6fn: \u201eSeg honum ef minn herra geti bjarga\u00f0 s\u00f3ma \u00cdslands, \u00fe\u00f3tt mig \u00e1falli sm\u00e1n, skal \u00fe\u00f3 andlit hans jafnan l\u00fdsa \u00feessu mani.\u201c Raunar er eins og henni finnist einstaklingarnir ekki skipta m\u00e1li heldur or\u00f0st\u00edr lands og \u00fej\u00f3\u00f0ar, \u2013 \u00fej\u00f3\u00f0arstolti\u00f0 er ofar \u00f6llu. \u00deetta s\u00e9st gl\u00f6gglega \u00ed samtali hennar vi\u00f0 Gullinl\u00f3 h\u00f6fu\u00f0smann \u00cdslands:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>M\u00e1vera sigra\u00f0ri \u00fej\u00f3\u00f0 s\u00e9 best a\u00f0 \u00fat\u00feurkast: ekki me\u00f0 or\u00f0i skal \u00e9g bi\u00f0ja \u00edslenskum v\u00e6g\u00f0ar. V\u00e9r \u00edslenskir erum sannarlega ekki ofg\u00f3\u00f0ir a\u00f0 deya. Og l\u00edfi\u00f0 er oss laungu einskisvert. A\u00f0eins eitt getum v\u00e9r ekki mist me\u00f0an einn ma\u00f0ur, hvortheldur r\u00edkur e\u00f0a f\u00e1t\u00e6kur, stendur uppi af \u00feessu f\u00f3lki; og jafnvel dau\u00f0ir getum v\u00e9r ekki veri\u00f0 \u00feess \u00e1n; og \u00feetta er \u00fea\u00f0 sem um er tala\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed gamla kv\u00e6\u00f0i, \u00fea\u00f0 sem v\u00e9r k\u00f6llum or\u00f0st\u00edr \u2026<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kv\u00e6\u00f0i\u00f0 gamla sem h\u00fan v\u00edsar til er H\u00e1vam\u00e1l og hefur h\u00fan vitna\u00f0 til \u00feess fyrr \u00ed samtali \u00feeirra: \u201e\u00fe\u00f3 ma\u00f0ur missi f\u00e9 og fr\u00e6ndur og deyi loks sj\u00e1lfur, \u00fe\u00e1 sakar \u00fea\u00f0 ekki hafi ma\u00f0ur geti\u00f0 s\u00e9r or\u00f0st\u00edr.\u201c Hann er \u00fea\u00f0 sem allt sn\u00fdst um. Af \u00feeim s\u00f6kum er kannski vafasamt a\u00f0 segja a\u00f0 Arnas sv\u00edki e\u00f0a selji Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i \u00ed lokin fyrir framt\u00ed\u00f0 landsins, eins og \u00e9g v\u00e9k a\u00f0 \u00e1\u00f0an.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau hittast um n\u00f3tt \u00e1 gistih\u00fasi \u00ed Kaupmannah\u00f6fn og hann segir henni a\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0verjum hafi bo\u00f0ist \u00cdsland til kaups og \u00feeir vilji f\u00e1 hann fyrir landstj\u00f3ra. Saman byggja \u00feau upp draums\u00fdn um fagurt mannl\u00edf \u00fear sem \u00feau b\u00faa saman \u00e1 Bessast\u00f6\u00f0um, f\u00f3lkinu l\u00ed\u00f0ur vel og \u00feau r\u00ed\u00f0a um landi\u00f0 \u00e1 hv\u00edtum hestum. Loksins er sem elskendurnir geti n\u00e1\u00f0 saman, \u2013 \u00ed skj\u00f3li erlends valds. \u00ddmsir segja a\u00f0 Arnas sj\u00e1i a\u00f0 s\u00e9r, flytji \u00fe\u00fdskum \u00feau skilabo\u00f0 fr\u00e1 sj\u00e1lfum s\u00e9r a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 blekking, hann geti ekki teki\u00f0 vi\u00f0 \u00feessu emb\u00e6tti; s\u00e1 sem bj\u00f3\u00f0i landi\u00f0 falt geti ekki selt \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann s\u00e9 ekki eigandi \u00feess. L\u00fdkur hann r\u00e6\u00f0u sinni me\u00f0 \u00feeim or\u00f0um a\u00f0 spyrja hver v\u00e6ri or\u00f0inn hlutur \u00feeirrar \u00fej\u00f3\u00f0ar sem skrifa\u00f0i fr\u00e6gar b\u00e6kur \u00feegar risnir v\u00e6ru \u00e1 \u00cdslandsstr\u00f6nd \u00fe\u00fdskir fiskib\u00e6ir me\u00f0 \u00fe\u00fdskum k\u00f6stulum og m\u00e1lali\u00f0i? \u201e\u00feeir \u00edslensku mundu \u00fe\u00e1 \u00ed h\u00e6sta lagi ver\u00f0a feitir \u00fej\u00f3nar \u00fe\u00fdsks leppr\u00edkis. Feitur \u00fej\u00f3nn er ekki mikill ma\u00f0ur. Bar\u00f0ur \u00fer\u00e6ll er mikill ma\u00f0ur, \u00fev\u00ed \u00ed hans brj\u00f3sti \u00e1 frelsi\u00f0 heima.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef mi\u00f0a\u00f0 er vi\u00f0 a\u00f0 fyrir Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i vaki \u00fea\u00f0 eitt a\u00f0 halda fram hei\u00f0ri landsins, or\u00f0st\u00edr \u00feess, liggur beint vi\u00f0 a\u00f0 \u00e6tla a\u00f0 h\u00fan r\u00edfi ni\u00f0ur draums\u00fdn \u00feeirra, komi Arnasi \u00ed skilning um a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 t\u00f3m blekking en ekki \u00f6fugt. \u00c1 eftir er hann enda eins og rj\u00fakandi r\u00fast, ekkert skiptir hann lengur m\u00e1li \u00ed l\u00edfinu, honum er sama \u00fe\u00f3tt b\u00e6kurnar brenni; allt er hruni\u00f0.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deannig er h\u00e6gt a\u00f0 velta fyrir s\u00e9r \u00fdmsum lei\u00f0um til a\u00f0 t\u00falka \u00fea\u00f0 mikla verk <em>\u00cdslandsklukkuna<\/em> og munum vi\u00f0 seint komast a\u00f0 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u um \u00fea\u00f0 hver s\u00e9 hinn eini sanni kjarni b\u00f3karinnar. H\u00fan hefur enda veri\u00f0 landsm\u00f6nnum hugleikin allt fr\u00e1 \u00fatkomu hennar en einnig noti\u00f0 vins\u00e6lda erlendis, veri\u00f0 gefin \u00fat \u00ed \u00e1 \u00feri\u00f0ja tug \u00fej\u00f3\u00f0landa.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Atbur\u00f0ir fj\u00f3r\u00f0a \u00e1ratugarins kn\u00fa\u00f0u Halld\u00f3r Laxness til a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 s\u00f6guna um J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson \u00e1 Rein og hans vin og herra, \u00c1rna \u00c1rnason meistara; s\u00f6guna sem str\u00edddi \u00e1 huga hans \u00ed \u00e1tj\u00e1n \u00e1r. Efni hennar er engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur s\u00edgilt \u00fev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i sm\u00e1\u00fej\u00f3\u00f0ar hefur aldrei veri\u00f0 sj\u00e1lfsagt. Og einstaklingurinn er st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 klj\u00e1st vi\u00f0 \u00f3pers\u00f3nulegt vald sem r\u00eds honum gjarnan yfir h\u00f6fu\u00f0. \u00deannig \u00e1 sagan st\u00f6\u00f0ugt erindi vi\u00f0 n\u00fdjar kynsl\u00f3\u00f0ir.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrirlestur fyrir 5. bekkinga \u00ed Verzlunarsk\u00f3la \u00cdslands, 4. mars 1999<\/p>\r\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Um \u00e1ratuga skei\u00f0 sigldi Gullfoss me\u00f0 far\u00feega milli \u00cdslands, Leith \u00ed Skotlandi og Kaupmannahafnar. Fastagestur um bor\u00f0 var Halld\u00f3r Laxness [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[3],"tags":[],"class_list":["post-39","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-fyrirlestrar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/39","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=39"}],"version-history":[{"count":6,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/39\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":104060,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/39\/revisions\/104060"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=39"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=39"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=39"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}