{"id":41,"date":"2022-03-22T20:15:24","date_gmt":"2022-03-22T20:15:24","guid":{"rendered":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=41"},"modified":"2022-04-12T17:10:41","modified_gmt":"2022-04-12T17:10:41","slug":"2-huldufolki-og-holfelagi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=41","title":{"rendered":"Hulduf\u00f3lki\u00f0 og h\u00f3lf\u00e9lagi\u00f0"},"content":{"rendered":"\r\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" width=\"887\" height=\"1024\" class=\"wp-image-17\" src=\"https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-HKL-a-Skaldstodum-887x1024.jpg\" alt=\"\" srcset=\"https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-HKL-a-Skaldstodum-887x1024.jpg 887w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-HKL-a-Skaldstodum-600x693.jpg 600w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-HKL-a-Skaldstodum-260x300.jpg 260w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-HKL-a-Skaldstodum-768x887.jpg 768w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-HKL-a-Skaldstodum-1330x1536.jpg 1330w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-HKL-a-Skaldstodum.jpg 1480w\" sizes=\"(max-width: 887px) 100vw, 887px\" \/>\r\n\r\n<\/figure>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrir tveimur \u00e1ratugum var gefin \u00fat h\u00e9r \u00e1 landi b\u00f3kin <em>Reginfj\u00f6ll \u00e1 haustn\u00f3ttum<\/em> eftir Kjartan J\u00fal\u00edusson \u00e1 Sk\u00e1ldst\u00f6\u00f0um efri \u00ed Eyjafir\u00f0i (sj\u00e1 mynd af Kjartani og Halld\u00f3ri Laxness h\u00e9r a\u00f0 ofan). \u00dear er a\u00f0 finna fr\u00e1sagnir Kjartans af \u201eskemtigaungum [hans] um reginfj\u00f6ll \u00e1 s\u00ed\u00f0hausti\u201c en einnig s\u00f6gur af \u201em\u00f6nnum sem lenda \u00ed skr\u00fdtilegum l\u00edfsh\u00e1ska, tam vegna pr\u00edls \u00ed klettum ellegar \u00feeir eru eltir uppi af mann\u00fdgum nautum \u2026 Einnegin \u2026 skr\u00fdtlur um svipi og \u00fdmiskonar spaugelsi sem sveitamanni er t\u00edtt a\u00f0 hafa uppi til a\u00f0 kollvarpa fyrir okkur v\u00edsindum heimsins og umturna n\u00e1tt\u00farufr\u00e6\u00f0inni.\u201c \u00deessi al\u00fe\u00fd\u00f0uma\u00f0ur og afdalab\u00f3ndi bj\u00f3 me\u00f0 innanvi\u00f0 tuttugu kindur, eina k\u00fa og geldk\u00fa af n\u00e6sta b\u00e6 sem \u00fej\u00f3na\u00f0i sem stallsystir e\u00f0a selskapsdama hj\u00e1 B\u00fakollu sem mj\u00f3lka\u00f0i annars ekki sakir myrkf\u00e6lni. Til hli\u00f0ar vi\u00f0 b\u00fast\u00f6rfin setti Kjartan s\u00ed\u00f0an \u00e1 bla\u00f0 fr\u00e1sagnir sem komu \u00fat \u00e1 b\u00f3k fyrir tuttugu \u00e1rum. \u00de\u00e6ttir \u00feessir v\u00e6ru t\u00e6past til umr\u00e6\u00f0u h\u00e9r ef Halld\u00f3r Laxness hef\u00f0i ekki skrifa\u00f0 form\u00e1la a\u00f0 b\u00f3kinni en \u00fear segir N\u00f3belssk\u00e1ldi\u00f0 me\u00f0al annars um h\u00f6fundinn, Kjartan J\u00fal\u00edusson \u00e1 Sk\u00e1ldst\u00f6\u00f0um efri:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Af br\u00e9fum hans, minnisbl\u00f6\u00f0um og skrifu\u00f0um athugunum s\u00e1 \u00e9g a\u00f0 \u00feessi kotb\u00f3ndi haf\u00f0i snemma \u00e1 valdi s\u00ednu fur\u00f0ulega lj\u00f3san hreinan og pers\u00f3nulegan ritst\u00edl, mj\u00f6g hug\u00feekkan, \u00fear sem kostir t\u00fangunnar voru \u00ed h\u00e1marki, blandnir nor\u00f0lenskum innanh\u00e9ra\u00f0sm\u00e1lvenjum sem alt er gullv\u00e6g \u00edslenska; og \u00e9g velti \u00feessu h\u00e1mentab\u00f3km\u00e1li fyrir m\u00e9r af \u00feeirri or\u00f0lausu undrun sem einst\u00f6ku sinnum gr\u00edpur mann gagnvart \u00edslend\u00edngi. \u00dearna skrifa\u00f0i bl\u00e1snau\u00f0ur afdalakall, \u00f3snortinn af sk\u00f3la, svo d\u00f6nskuslettulaust, \u00feeas svo l\u00edtt \u00fer\u00faga\u00f0ur af k\u00fagun fyrri alda, a\u00f0 ma\u00f0ur gat lesi\u00f0 hann af \u00e1l\u00edka \u00f6ryggi og Nj\u00e1lu \u2026 \u00c9g spur\u00f0i hvar hann hef\u00f0i l\u00e6rt a\u00f0 st\u00edlsetja. Hann svara\u00f0i \u00fev\u00ed til a\u00f0 hann hef\u00f0i l\u00edkt eftir skrifu\u00f0u m\u00e1li f\u00f6\u00f0ur s\u00edns. \u00deau rit f\u00e9kk \u00e9g a\u00f0 sj\u00e1 og voru sumpart \u00ed ann\u00e1last\u00edl, sumpart me\u00f0 bl\u00e6 \u00fej\u00f3\u00f0sagna, en sl\u00edkur st\u00edlsm\u00e1ti er alt a\u00f0 \u00fev\u00ed fornm\u00e1l og \u00e1, eins l\u00e1ngt og hann n\u00e6r, innangeingt \u00ed \u00edslend\u00edngas\u00f6gur. \u00deessi \u00f3sj\u00e1lfr\u00e1\u00f0i snildarbl\u00e6r \u00far \u00edslenskri hreint\u00fangustefnu haf\u00f0i geingi\u00f0 a\u00f0 erf\u00f0um fr\u00e1 f\u00f6\u00f0ur til sonar, \u00ed afd\u00f6lum Eyafjar\u00f0ar, hver veit hva\u00f0 leingi, hj\u00e1 m\u00f6nnum sem aldrei h\u00f6f\u00f0u leitt danska b\u00f3k augum n\u00e9 heyrt nokkurn mann sletta d\u00f6nsku; \u00fev\u00ed s\u00ed\u00f0ur komist \u00ed t\u00e6ri vi\u00f0 fyrri t\u00edma heldra f\u00f3lk \u00e1 Akureyri.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r s\u00e9r \u00ed \u00feessum afdalab\u00f3nda fulltr\u00faa fornrar menningar, fagurrar \u00edslensku og n\u00e1tt\u00faruverndarmann a\u00f0 h\u00e6tti n\u00fat\u00edma, eins og hann v\u00edkur a\u00f0 annars sta\u00f0ar \u00ed form\u00e1lanum, en \u00fear segir a\u00f0 sl\u00edkur ma\u00f0ur v\u00e6ri \u201esj\u00e1lfkj\u00f6rinn f\u00e9lagsma\u00f0ur \u00ed n\u00e1tt\u00faru\u00adverndar\u00adhreyf\u00edng\u00adunni og gegn meingun.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kannski eru \u00fea\u00f0 ford\u00f3mar \u2013 en ma\u00f0ur veltir \u00f3neitanlega fyrir s\u00e9r hvernig standi \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 rith\u00f6fundur sem hloti\u00f0 hefur N\u00f3belsver\u00f0launin \u00ed b\u00f3kmenntum skuli sj\u00e1 \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 skrifa form\u00e1la a\u00f0 \u00fe\u00e1ttum \u00edslensks \u201eafdalakalls\u201c; fr\u00e1s\u00f6gnum sem eru einkum og s\u00e9r\u00edlagi um \u00fea\u00f0 sem gerist \u00ed sj\u00e1lfum honum af \u00fev\u00ed a\u00f0 st\u00edga inn \u00ed \u00fe\u00e1 mynd sem hann hefur haft fyrir augum heima \u00e1 b\u00e6jarhellunni. Af hverju er ma\u00f0ur sem skrifa\u00f0 hefur fr\u00e6gar b\u00e6kur a\u00f0 verja d\u00fdrm\u00e6tum t\u00edma s\u00ednum \u00ed sl\u00edk ritst\u00f6rf? Hva\u00f0 s\u00e1 ma\u00f0ur, sem b\u00e6\u00f0i heima og erlendis haf\u00f0i hitt \u00f3t\u00f6lulegan fj\u00f6lda svokalla\u00f0ra st\u00f3rmenna, \u00ed \u00feessum skrifum og h\u00f6fundi \u00feeirra?<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r kallar Kjartan \u201ekunn\u00edngja\u201c \u00ed form\u00e1lanum og mun hafa heims\u00f3tt hann \u00ed afdalakoti\u00f0 nokkrum sinnum \u00e1 fer\u00f0um s\u00ednum um landi\u00f0. \u00c9g held samt a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi ekki veri\u00f0 n\u00f3g a\u00f0 vera kunningi Halld\u00f3rs Laxness til \u00feess a\u00f0 hann skrifa\u00f0i form\u00e1la a\u00f0 b\u00f3k eftir vi\u00f0komandi. \u00c9g held a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00feessum skrifum s\u00e9 s\u00fa a\u00f0 Halld\u00f3ri hafi fundist Kjartan hafa veri\u00f0 af \u201ehulduf\u00f3lks\u00e6ttinni\u201c, \u00feeirri \u00e6tt sem Halld\u00f3r hyllir \u00ed Brekkukotsann\u00e1l. Og hva\u00f0a \u00e6tt er n\u00fa \u00fea\u00f0? kynni einhver a\u00f0 spyrja.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g rakst einhvern t\u00edma \u00e1 hana \u00ed Brekkukotsann\u00e1l en \u00fear segir: \u201eEftirlitsma\u00f0urinn okkar hefur l\u00edklega veri\u00f0 af hulduf\u00f3lks\u00e6ttinni, a\u00f0 minstakosti heyr\u00f0i \u00e9g \u00fev\u00ed aldrei fleygt a\u00f0 hann v\u00e6ri kominn af prestum s\u00fdslum\u00f6nnum og sk\u00e1ldum.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftirlitsma\u00f0urinn er nefndur hulduma\u00f0ur \u00e1 \u00f6\u00f0rum sta\u00f0 \u00ed b\u00f3kinni en a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti er hulduf\u00f3lk ekki nefnt \u00e1 nafn. \u00deessi undarlega hulduf\u00f3lks\u00e6tt hefur fylgt m\u00e9r um skei\u00f0, \u00fe.e.a.s. \u00e9g hef ekki fundi\u00f0 almennilega sk\u00fdringu \u00e1 nafngiftinni, \u00fe\u00f3tt vissulega gruni mann hva\u00f0 \u00feetta merki.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g f\u00f3r a\u00f0 leita \u00ed \u00f6\u00f0rum verkum Halld\u00f3rs a\u00f0 hulduf\u00f3lki \u2013 \u00f6\u00f0ru en \u00fev\u00ed sem byggir kletta og \u00feekkt er \u00far \u00fej\u00f3\u00f0tr\u00fa, enda s\u00fdnist m\u00e9r lj\u00f3st a\u00f0 \u00feessi umr\u00e6dda \u00e6tt er \u00e1 me\u00f0al okkar og af holdi og bl\u00f3\u00f0i. Ekki hefur m\u00e9r tekist a\u00f0 finna \u00feetta f\u00f3lk \u00ed \u00f6\u00f0rum sk\u00e1ldverkum Halld\u00f3rs en \u00ed minningas\u00f6gunni <em>\u00cd t\u00faninu heima<\/em> segir \u00e1 einum sta\u00f0:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Einusinni var \u00e9g \u00e1 fer\u00f0 \u00ed Kaupmannah\u00f6fn og sat \u00fear veislu hj\u00e1 \u00edslend\u00edngum. \u00c1\u00f0ur en bor\u00f0 voru upp tekin reis \u00fang kona \u00far s\u00e6ti og r\u00e9tti m\u00e9r t\u00edmarit \u00fear sem mynd af m\u00f3\u00f0ur minni var prentu\u00f0 \u00e1 fors\u00ed\u00f0u, en h\u00fan var \u00fe\u00e1 l\u00e1tin fyrir fj\u00f3rum \u00e1rum. Fr\u00fain ba\u00f0 mig segja veislugestum eitthva\u00f0 fr\u00e1 m\u00f3\u00f0ur minni.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c9g haf\u00f0i reyndar laungu gleymt \u00feessu atviki og veislunni sj\u00e1lfri a\u00f0 mestu, en var mintur \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00e1 d\u00f6gunum. \u00c9g vitna til \u00feess h\u00e9r eins og fr\u00e1sagnar um altannan mann. M\u00e9r var sagt a\u00f0 fyrst hef\u00f0i \u00e9g horft leingi \u00feegjandi \u00e1 myndina \u00ed s\u00e6ti m\u00ednu og loks \u00feegar \u00e9g st\u00f3\u00f0 upp hafi \u00e9g ekki sagt anna\u00f0 en \u00feetta: \u00cd rauninni \u00feekti \u00e9g aldrei \u00feessa konu. H\u00fan var huldukona. En m\u00e9r hefur \u00fe\u00f3tt v\u00e6nna um hana en a\u00f0rar konur.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einhverjir h\u00e9r inni minnast \u00feess vafalaust a\u00f0 Valger\u00f0ur Benediktsd\u00f3ttir sem s\u00ed\u00f0ast tala\u00f0i h\u00e9r v\u00e9k a\u00f0 hlutverki m\u00e6\u00f0ra og amma al\u00fe\u00fd\u00f0unnar sem \u201ekent hafa b\u00f6rnum s\u00ednum og barnab\u00f6rnum lj\u00f3\u00f0 sk\u00e1ldanna alla \u00fej\u00f3\u00f0ar\u00e6vina, veri\u00f0 jar\u00f0vegur b\u00f3kmenta \u00e1 \u00cdslandi. \u00de\u00e6r hafa veri\u00f0 hinn nafnlausi og dularfulli hulduh\u00e1sk\u00f3li sk\u00e1ldskapar og t\u00fangu,\u201c eins og segir \u00ed greinasafninu Reisub\u00f3karkorni. \u00dearna er bers\u00fdnilega sama hugsun \u00e1 fer\u00f0 hj\u00e1 Halld\u00f3ri.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Annars sta\u00f0ar hef \u00e9g ekki fundi\u00f0 hulduf\u00f3lk af \u00feessari n\u00e1tt\u00faru \u00ed verkum sk\u00e1ldsins. \u00dea\u00f0 er alkunna a\u00f0 hann var st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 punkta hj\u00e1 s\u00e9r \u00ed minniskompur \u00feegar hann vann a\u00f0 sk\u00e1lds\u00f6gum s\u00ednum. Og fyrir nokkrum vikum f\u00e9kk \u00e9g leyfi hj\u00e1 Au\u00f0i Laxness til a\u00f0 bla\u00f0a \u00ed kompum hans fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann var a\u00f0 vinna a\u00f0 <em>Brekkukotsann\u00e1l<\/em>. Og fremst \u00ed b\u00f3kinni kom svari\u00f0 vi\u00f0 leit minni. \u00dear skrifar sk\u00e1ldi\u00f0 hj\u00e1 s\u00e9r hva\u00f0 hann \u00e6tlar s\u00e9r me\u00f0 b\u00f3kinni:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201e<em>Hulduf\u00f3lki\u00f0\u201c hi\u00f0 \u00f3breytta \u201e\u00f3spilta\u201c f\u00f3lk \u2013 og \u00fe\u00f3 svo \u00f3endanlega breyskt ef \u00fea\u00f0 er sko\u00f0a\u00f0 fr\u00e1 sj\u00f3narhorni m\u00f3ralte\u00f3l\u00f3g\u00edunnar e\u00f0a annarra si\u00f0fer\u00f0iskerfa \u2013 b\u00f3kin \u00e1 a\u00f0 vera \u00f3\u00f0ur til \u00feess, s\u00f6nnun \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 er einmitt \u00feetta f\u00f3lk, hi\u00f0 \u00f3breytta f\u00f3lk, sem f\u00f3strar \u00f6ll mannleg fri\u00f0samleg ver\u00f0m\u00e6ti. S\u00f6gupers\u00f3nan \u00e1 r\u00e6tur s\u00ednar \u00ed hinu kyrra dj\u00fapi al\u00fe\u00fd\u00f0unnar, og [\u00fea\u00f0 g\u00f3\u00f0a f\u00f3lk], sem hann m\u00e6tir \u00ed \u00e6sku, ver\u00f0ur \u00feess valdandi a\u00f0 \u00f6ll heimsins d\u00fdr\u00f0 ver\u00f0ur honum einskisver\u00f0 \u00feann dag sem honum stendur h\u00fan til bo\u00f0a \u2013 sakir \u00feeirrar \u00fer\u00e1r sem hann ber til a\u00f0 komast aftur heim, finna hi\u00f0 kyrra dj\u00fap \u00f3breytts mannl\u00edfs \u00e1 n\u00fdaleik.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Brekkukotsann\u00e1ll er me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um hylling \u00e1 \u00fev\u00ed al\u00fe\u00fd\u00f0uf\u00f3lki sem vinnur st\u00f6rf s\u00edn af tr\u00famennsku og st\u00e6rir sig ekki af \u00feeim, \u00f3\u00f0ur til \u00f3breytts mannl\u00edfs og \u00feess f\u00f3lks sem Halld\u00f3ri \u00fe\u00f3tti v\u00e6nna um en anna\u00f0 f\u00f3lk. Og til a\u00f0 hnykkja enn frekar \u00e1 \u00feessu segir nokkru s\u00ed\u00f0ar \u00ed minniskompunni:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Tvennskonar \u00edslend\u00edngar: hinir extr\u00f3vertu fantast\u00edsku, sem eru s\u00edkjaftandi og s\u00edmontandi sig, og setja svip sinn \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0l\u00edfi\u00f0 og stj\u00f3rna h\u00f3lf\u00e9laginu \u2013 og svo hulduf\u00f3lki\u00f0 \u2026 sem hefur flest \u00fea\u00f0 er menn m\u00e1 pr\u00fd\u00f0a, en er me\u00f0 \u00f6llu laust vi\u00f0 s\u00e9rframtr\u00f6nulegheit en \u00fea\u00f0 er kjarninn bakvi\u00f0, \u00fea\u00f0 element sem \u00fev\u00ed hefur r\u00e1\u00f0i\u00f0 a\u00f0 mannl\u00edf er \u00e1 \u00cdslandi enn, \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem vinnur \u00f6ll afrek en aldrei montar sig og ekkert heyrist um og h\u00f3lf\u00e9lagi\u00f0 mun aldrei uppg\u00f6tva.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrir utan or\u00f0i\u00f0 \u201es\u00e9rframtr\u00f6nulegheit\u201c sem sk\u00fdrir sig sj\u00e1lft er l\u00edklega eitt or\u00f0 sem veldur \u00fev\u00ed a\u00f0 menn sperra eyrun: h\u00f3lf\u00e9lagi\u00f0. \u00c1 \u00f6\u00f0rum sta\u00f0 \u00ed minniskompunni er skilgreining \u00e1 \u00fev\u00ed og h\u00fan er svona:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eH\u00f3lf\u00e9lagi\u00f0 \u2013 sam\u00e1byrg\u00f0 m\u00edkr\u00f3sk\u00f3p\u00edskra l\u00f3kalst\u00e6r\u00f0a um a\u00f0 h\u00e6la hver \u00f6\u00f0rum.\u201c H\u00f3lf\u00e9lagi\u00f0 er me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um \u00fea\u00f0 sem gjarnan er nefnt n\u00fa \u00e1 d\u00f6gum skjallbandalag e\u00f0a aulabandalag.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hulduf\u00f3lki\u00f0 er \u00feannig hinn \u00fe\u00f6gli h\u00f3pur sem geymir \u00f6ll \u00feau ver\u00f0m\u00e6ti sem einhvers eru ver\u00f0; al\u00fe\u00fd\u00f0a manna. Vi\u00f0 lestur Brekkukotsann\u00e1ls kemst ma\u00f0ur ekki hj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 tengja vi\u00f0 hana \u00fdmis gildi og sko\u00f0anir. F\u00f3lki\u00f0 \u00ed Brekkukoti lifir reglubundnu l\u00edfi sem er \u00ed f\u00f6stum skor\u00f0um, vir\u00f0ir r\u00e9tt manna til a\u00f0 vera \u00f6\u00f0ruv\u00edsi og s\u00fdnir engum manni \u00e1reitni. \u00dear eru or\u00f0in of d\u00fdr til a\u00f0 ey\u00f0a \u00feeim \u00ed g\u00e1laust hjal, kerskni e\u00f0a lygar; forvitni og stelv\u00edsi eru lag\u00f0ar a\u00f0 j\u00f6fnu. Heimurinn innan vi\u00f0 krosshli\u00f0i\u00f0 er l\u00edkastur Parad\u00eds. \u00dear hafa menn enga tr\u00fa \u00e1 peningum n\u00e9 \u00f6\u00f0rum n\u00fdm\u00e6lum. Amma og afi \u00ed Brekkukoti eru manna ge\u00f0\u00feekkust og standa f\u00f6stum f\u00f3tum \u00ed li\u00f0num t\u00edma. \u00cd huga \u00feeirra er s\u00e1 au\u00f0ur einn sannur sem ekki ver\u00f0ur af m\u00f6nnum tekinn.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftirlitsma\u00f0urinn \u2013 hulduma\u00f0urinn \u2013 er annar fulltr\u00fai \u00feessara vi\u00f0horfa og talar hann n\u00e1nast \u00ed or\u00f0skvi\u00f0um. \u00deegar \u00feeir Gar\u00f0ar H\u00f3lm r\u00e6\u00f0ast vi\u00f0 um n\u00f3tt falla m\u00f6rg gullkorn af v\u00f6rum hans en \u00fear segir hann me\u00f0al annars: \u201eH\u00e1tt og l\u00e1gt vinur \u2026 \u00e9g veit ekki hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er.\u201c Og \u00ed sama samtali: \u201eL\u00edfi\u00f0 hefur \u2026 kent m\u00e9r a\u00f0 gera ekki mun \u00e1 hetju og litlum karli; \u00e1 st\u00f3rt\u00ed\u00f0indum og titl\u00edngask\u00edt. \u00dar m\u00ednum b\u00e6jardyrum eru menn og atbur\u00f0ir nokkurnveginn jafnir.\u201c Hann er gersneyddur allri tilhneigingu til a\u00f0 pr\u00e9dika fyrir \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki. \u00cd augum hans eru allir menn jafn gildir. Breytni hans einkennist af takmarkalausri hj\u00e1lpsemi, samfara r\u00f3tgr\u00f3inni and\u00fa\u00f0 \u00e1 a\u00f0 gr\u00edpa fram fyrir hendurnar \u00e1 \u00f6\u00f0rum e\u00f0a hafa \u00e1hrif \u00e1 \u00f6rl\u00f6g me\u00f0br\u00e6\u00f0ra sinna. \u00deessi gildi hafa menn stundum kennt vi\u00f0 ta\u00f3isma en kjarninn \u00ed ta\u00f3 Halld\u00f3rs felur \u00ed s\u00e9r vir\u00f0ingu fyrir \u00f6llu l\u00edfi, tr\u00fa \u00e1 \u00f3brotinn mannk\u00e6rleika, trygglyndi og hreinlyndi. \u00deessa fyrirmynd mannlegrar breytni sem sett var fram \u00ed k\u00ednversku kveri fyrir \u00fe\u00fasundum \u00e1ra, <em>B\u00f3kinni um veginn<\/em>, finnur Halld\u00f3r me\u00f0al venjulegs \u00edslensks al\u00fe\u00fd\u00f0uf\u00f3lks. \u00deetta \u00f3breytta al\u00fe\u00fd\u00f0uf\u00f3lk \u2013 hulduf\u00f3lki\u00f0 \u2013 er s\u00ed\u00f0an andst\u00e6\u00f0a h\u00f3lf\u00e9lagsins, \u00feeirra sem eru s\u00edfellt a\u00f0 trana s\u00e9r fram \u00e1n \u00feess endilega a\u00f0 hafa innist\u00e6\u00f0u fyrir \u00fev\u00ed.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og Kjartan J\u00fal\u00edusson \u00e1 Sk\u00e1ldst\u00f6\u00f0um efri var \u00e1n efa hluti af \u00feessari undarlegu fj\u00f6lskyldu, hulduf\u00f3lks\u00e6ttinni. \u00dea\u00f0 m\u00e1 \u00fev\u00ed segja a\u00f0 vir\u00f0ing Halld\u00f3rs fyrir \u00feessu f\u00f3lki hafi birst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 hann rita\u00f0i form\u00e1la a\u00f0 b\u00f3k sem nefnist Reginfj\u00f6ll \u00e1 haustn\u00f3ttum og hefur a\u00f0 geyma \u00fej\u00f3\u00f0legan fr\u00f3\u00f0leik eftir al\u00fe\u00fd\u00f0umann og afdalakall. \u00dev\u00ed er gjarnan haldi\u00f0 fram a\u00f0 Halld\u00f3r taki a\u00f0 upphefja \u201ehulduf\u00f3lki\u00f0\u201c, sem vi\u00f0 getum kalla\u00f0 svo, \u00e1 efri \u00e1rum, fr\u00e1 mi\u00f0jum sj\u00f6tta \u00e1ratugnum e\u00f0a \u00fear um bil.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00feessi vir\u00f0ing birtist ekki bara \u00ed <em>Brekkukotsann\u00e1l<\/em> og form\u00e1lanum a\u00f0 b\u00f3k Kjartans \u00e1 Sk\u00e1ldst\u00f6\u00f0um efri, e\u00f0a \u00ed s\u00ed\u00f0ari verkum hans; m\u00e9r s\u00fdnist h\u00fan vera eins og rau\u00f0ur \u00fer\u00e1\u00f0ur \u00ed skrifum hans fr\u00e1 fyrstu t\u00ed\u00f0 og fram \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1r.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd b\u00f3kinni <em>Af menn\u00edngar\u00e1standi<\/em> eru prenta\u00f0ar greinar Halld\u00f3rs Laxness fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1 \u00feri\u00f0ja \u00e1ratugnum. Ein \u00feeirra ber heiti\u00f0 \u201eRafl\u00fds\u00edng sveitanna\u201c. \u00de\u00e1 \u00feegar er hann farinn a\u00f0 taka upp hanskann fyrir al\u00fe\u00fd\u00f0u manna, enda segir hann \u00fear a\u00f0 n\u00famer eitt s\u00e9 a\u00f0 berjast fyrir b\u00e6ttum l\u00edfskj\u00f6rum f\u00e1t\u00e6ks f\u00f3lks: \u201eMenn\u00edng er umfram alt \u00fea\u00f0 a\u00f0 hafa sigrast \u00e1 f\u00e1t\u00e6kt og vesald\u00f3mi, eignast falleg h\u00edb\u00fdli me\u00f0 r\u00famg\u00f3\u00f0um stofum, st\u00f3ran spegil, mj\u00fakan s\u00f3fa, g\u00f3\u00f0an kakal\u00f3n, hagn\u00fdta heimspeki, \u00fe\u00e6gileg f\u00f6t, gott a\u00f0 \u00e9ta, en helst h\u00e6tta a\u00f0 reykja.\u201c Og s\u00ed\u00f0ar \u00ed greininni segir hann:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Ma\u00f0urinn er ekki ur\u00f0ark\u00f6ttur, heldur a\u00f0alborin vera! Hann er skapa\u00f0ur \u00ed gu\u00f0s mynd og \u00e1 a\u00f0 hafa raflj\u00f3s og rafhitun og st\u00f3ran spegil svo a\u00f0 hann geti n\u00f3gu oft virt fyrir s\u00e9r hvernig mynd gu\u00f0s l\u00edtur \u00fat.\u201c \u00cd lok greinarinnar segir s\u00ed\u00f0an: \u201eSannkristna manneskja! \u00de\u00fa \u00e1tt a\u00f0 berjast gegn l\u00fasinni, fyllir\u00edinu og \u00f6rbirg\u00f0inni, rafl\u00fdsa sveitab\u00e6ina og kenna a\u00f0 dansa og s\u00fdngja. <\/em><em>Hva\u00f0 er fegurra og \u00e6\u00f0ra en Kristur og kirkja hans? Ekki neitt; satt er \u00fea\u00f0.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>En primum vivere deinde philosophere, sag\u00f0i gamall prestur \u00e1 lat\u00ednu, sem \u00fe\u00fd\u00f0ir: fyrst er a\u00f0 lifa, s\u00ed\u00f0an a\u00f0 hugsa um heimspeki. F\u00f3lki\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 lifa og Kristur vill a\u00f0 m\u00f6nnunum l\u00ed\u00f0i vel, mun hann hugga \u00fe\u00e1 sem haldnir eru \u00f3l\u00e6knandi meinum. Hann vill a\u00f0 \u00feeir b\u00fai \u00ed r\u00famg\u00f3\u00f0um og \u00feokkalegum h\u00fasakynnum. Hann vill a\u00f0 \u00feeir b\u00fai vi\u00f0 g\u00f3\u00f0 l\u00edfskj\u00f6r og hafi menn\u00edngu.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd raun g\u00e6tu \u00feessi or\u00f0 sta\u00f0i\u00f0 \u00ed <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ub\u00f3kinni<\/em> sem Halld\u00f3r sendi fr\u00e1 s\u00e9r tveimur \u00e1rum eftir a\u00f0 \u00feessi grein birtist. \u00de\u00e1 haf\u00f0i hann dvali\u00f0 \u00ed Bandar\u00edkjunum og sn\u00faist til s\u00f3s\u00edalisma svo sem fr\u00e6gt er en bo\u00f0skapur \u00feeirrar b\u00f3kar um kj\u00f6r mannanna er ekki svo fjarri \u00fev\u00ed sem kemur fram \u00ed \u201eRafl\u00fds\u00edngu sveitanna\u201c. \u00dear hefur hann a\u00f0 v\u00edsu undanskili\u00f0 gu\u00f0 \u00ed bo\u00f0skapnum og segir: \u201eMa\u00f0urinn er fagna\u00f0arbo\u00f0skapur hinnar n\u00fdu menn\u00edngar, ma\u00f0urinn sem hin fullkomnasta l\u00edffr\u00e6\u00f0ileg tegund, ma\u00f0urinn sem f\u00e9lagsleg ein\u00edng, ma\u00f0urinn sem l\u00edfst\u00e1kn og hugsj\u00f3n, hinn eini sanni ma\u00f0ur, \u2013 \u00de\u00fa.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um lei\u00f0 og hann beitir s\u00e9r fyrir b\u00e6ttum kj\u00f6rum hins vinnandi manns talar hann til \u00feessa sama manns \u00ed umv\u00f6ndunart\u00f3ni. Forsenda \u00feess a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 bera vir\u00f0ingu fyrir einhverjum er enda s\u00fa a\u00f0 vi\u00f0komandi beri vir\u00f0ingu fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r. Og Halld\u00f3r Laxness hvetur menn \u00ed <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ub\u00f3kinni<\/em> til a\u00f0 taka sig n\u00fa saman \u00ed andlitinu, ef svo m\u00e1 segja, og tileinka s\u00e9r h\u00e6tti si\u00f0a\u00f0ra manna:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201e\u00de\u00f3tt alkunnugt s\u00e9 a\u00f0 \u00edslend\u00edngar eru n\u00e1tt\u00fara\u00f0ir fyrir \u00f3\u00feverraskap, spillir ekki a\u00f0 \u00e1m\u00e1lga \u00feessa heimsfr\u00e6g\u00f0 vora einu sinni enn. Ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 fyrst a\u00f0 minnast \u00e1 \u00fe\u00e1 \u00f3svinnu sem l\u00fdsir s\u00e9r \u00ed leti \u00feeirra a\u00f0 hir\u00f0a l\u00edkama sinn,\u201c ritar hann \u00ed kaflanum \u201eUm \u00ferifna\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi.\u201c Hann segir a\u00f0 \u00feeim sem stundi erfi\u00f0isvinnu s\u00e9 s\u00e9rst\u00f6k nau\u00f0syn \u00e1 a\u00f0 lauga sig daglega og \u00fea\u00f0 s\u00e9 til h\u00e1borinnar skammar a\u00f0 \u00fea\u00f0 skuli sj\u00e1st verkamannab\u00fasta\u00f0ir til sj\u00e1var og sveita sem ekki eru \u00fatb\u00fanir ba\u00f0herbergi me\u00f0 heitu og k\u00f6ldu vatni. S\u00ed\u00f0an segir Halld\u00f3r: \u201eHreinn l\u00edkami veldur \u00feokkalegu s\u00e1larl\u00edfi. Menn fara a\u00f0 hugsa bjartara; menn fara a\u00f0 vilja fegur. Hreinir menn eru ge\u00f0slegir \u00ed umgeingni. Viti ma\u00f0ur sig ge\u00f0slegan fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r ver\u00f0ur hann \u00f3sj\u00e1lfr\u00e1tt ge\u00f0slegur gagnvart \u00f6\u00f0rum. Ma\u00f0ur sem veit sig \u00f3ge\u00f0slegan me\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r hagar s\u00e9r ruddalega gagnvart \u00f6\u00f0rum. S\u00f3\u00f0askapur og \u00f3kurteisi helst \u00ed hendur.\u201c Hann kvartar undan salernisa\u00f0st\u00f6\u00f0u sem hann segir vera b\u00e6\u00f0i \u00fej\u00f3\u00f0arsk\u00f6mm og allsherjarvi\u00f0bj\u00f3\u00f0 \u00ed senn og spyr sig: \u201e\u2026 til hvers er sk\u00e1ldskapur og fagrar listir me\u00f0an f\u00f3lk hefur ekki smekk til \u00feess a\u00f0 hir\u00f0a sig?\u201c Halld\u00f3r heldur \u00e1fram og sn\u00fdr s\u00e9r n\u00fa a\u00f0 \u201et\u00f6nnunum \u00ed h\u00e1ttvirtum kj\u00f3sendum\u201c: \u201e\u00dea\u00f0 er einn \u00e1takanlegastur misbrestur \u00ed uppeldi \u00edslenskrar al\u00fe\u00fd\u00f0u a\u00f0 h\u00fan l\u00e6rir ekki a\u00f0 hir\u00f0a tennur s\u00ednar.\u201c Fyrir utan \u00fdmsa sj\u00fakd\u00f3ma sem af \u00feessu hlj\u00f3tast nefnir hann a\u00f0 \u201eein ors\u00f6kin til \u00feess hve \u00edslend\u00edngum h\u00e6ttir til a\u00f0 nota andstyggilegan munns\u00f6fnu\u00f0 [s\u00e9] vafalaust me\u00f0vitund \u00feeirra um a\u00f0 munnur \u00feeirra s\u00e9 skemdur og \u00f3hreinn.\u201c Og b\u00e6tir svo vi\u00f0:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Hef\u00f0i \u00e9g efni \u00e1 a\u00f0 gefa \u00f6llum \u00edslend\u00edngum tannbursta, mundi \u00e9g gera \u00fej\u00f3\u00f0inni meira gagn en \u00fe\u00f3tt \u00e9g skrifa\u00f0i handa henni \u00f3dau\u00f0leg lj\u00f3\u00f0. En n\u00fa hef \u00e9g ekki efni \u00e1 a\u00f0 kaupa hundra\u00f0 \u00fe\u00fasund tannbursta, og bi\u00f0 menn a\u00f0 afsaka \u00fea\u00f0. \u00c9g ver\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta n\u00e6gja a\u00f0 skrifa b\u00f3k.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r v\u00edkur einnig a\u00f0 hr\u00e6kingum \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00ed Al\u00fe\u00fd\u00f0ub\u00f3kinni og fer um \u00fe\u00e6r h\u00f6r\u00f0um or\u00f0um sem \u00e9g \u00e6tla ekki a\u00f0 fara n\u00e1nar \u00fat \u00ed h\u00e9r en um \u00e1ratug s\u00ed\u00f0ar, \u00feegar komi\u00f0 er inn \u00ed s\u00ed\u00f0ari heimsstyrj\u00f6ld, heldur hann \u00e1fram \u00e1 svipa\u00f0ri l\u00ednu:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00cdslenskar kirkjur\u00e6sk\u00edngar eru fornfr\u00e6gar \u2013 kirkjuh\u00f3stinn. N\u00fa er ekki \u00fear me\u00f0 sagt a\u00f0 \u00edslend\u00edngar \u00fej\u00e1ist af meiri brj\u00f3sthro\u00f0a en a\u00f0rir menn, \u00fe\u00f3tt \u00feeir elski \u00feetta \u00f3fagra \u201ekropphlj\u00f3\u00f0\u201c heitar. Spurn\u00edngin er a\u00f0eins um mannasi\u00f0i. L\u00e1tum vera a\u00f0 menn stundi \u00feessa \u00ed\u00fer\u00f3tt \u00ed einr\u00fami, en \u00fe\u00e1 keyrir um \u00feverbak \u00feegar menn, sem eiga a\u00f0 flytja al\u00fej\u00f3\u00f0 fr\u00f3\u00f0leik og a\u00f0ra skemtan or\u00f0sins \u00far fj\u00f6lheyr\u00f0ustu r\u00e6\u00f0ust\u00f3lum landsins, einsog td R\u00edkis\u00fatvarpinu, gera s\u00e9r leik a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 li\u00f0ka \u00feessi \u00f3hlj\u00f3\u00f0 \u201el\u00edkt og \u00feeir v\u00e6ru a\u00f0 b\u00faa sig undir a\u00f0 hr\u00e6kja \u00e1 allan landsl\u00fd\u00f0inn\u201c.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar hillir undir \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00cdslendingar segi skili\u00f0 vi\u00f0 d\u00f6nsku kr\u00fanuna skrifar Halld\u00f3r greinina \u201eGagnr\u00fdni og menn\u00edng\u201c, sem prentu\u00f0 var s\u00ed\u00f0ar \u00ed <em>Sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0um hlutum<\/em>. \u00dear segir hann a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0in s\u00e9 a\u00f0 r\u00edsa \u00far \u00f6sku eftir aldalanga erlenda k\u00fagun.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>N\u00fa gerum vi\u00f0 kr\u00f6fu til \u00feess a\u00f0 heita si\u00f0mentu\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 og m\u00f3\u00f0gumst vi\u00f0 hvern \u00feann sem kallar okkur eitthva\u00f0 anna\u00f0 \u2013 en hinu megum vi\u00f0 ekki heldur gleyma, a\u00f0 \u00feessa kr\u00f6fu ver\u00f0um vi\u00f0 fyrst og fremst a\u00f0 gera til okkar sj\u00e1lfra. \u2026 Vi\u00f0 erum a\u00f0 st\u00edga framm\u00ed lj\u00f3s heimss\u00f6gunnar sem sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0 og fullvalda \u00fej\u00f3\u00f0. Hvorki me\u00f0 vopni gulli n\u00e9 h\u00f6f\u00f0at\u00f6lu getum vi\u00f0 skapa\u00f0 okkur vir\u00f0\u00edngu heimsins n\u00e9 vi\u00f0urkenningu sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0is okkar, a\u00f0eins me\u00f0 menn\u00edngu \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. Vesalasta skepna jar\u00f0arinnar er \u00f3si\u00f0a\u00f0ur ma\u00f0ur; og hir\u00f0ulaust \u00f3gagnr\u00fdni\u00f0 f\u00f3lk, lint \u00ed kr\u00f6fum til sj\u00e1lfs s\u00edn, sem kann ekki til verka og unir \u00f3myndarskap, hneigt fyrir sukk og drabb, ver\u00f0skuldar ekki a\u00f0 heita sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 og mun ekki heldur ver\u00f0a \u00fea\u00f0.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar fram l\u00ed\u00f0a stundir dregur \u00far \u00e1herslunni \u00e1 \u00ferif og mannasi\u00f0i \u00ed skrifum Halld\u00f3rs Laxness enda komast \u00feessi m\u00e1l \u00fe\u00e1 v\u00e6ntanlega \u00ed betra horf. Hann hefur \u00fe\u00f3 vakandi auga me\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0inni og gj\u00f6r\u00f0um hennar \u00e1 \u00fdmsum svi\u00f0um, \u00fe\u00f3tt f\u00f3kusinn breytist. Hann s\u00e9r til d\u00e6mis \u00e1st\u00e6\u00f0u til \u00feess \u00ed grein \u00ed <em>Reisub\u00f3karkorni<\/em> fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ari hluta fimmta \u00e1ratugarins a\u00f0 taka upp hanskann fyrir \u00fatigangshross og finnst me\u00f0fer\u00f0in \u00e1 \u00feeim vera blettur \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0l\u00edfinu. Ill me\u00f0fer\u00f0 \u00e1 d\u00fdrum ber ekki a\u00f0eins vott um grimmt og gu\u00f0laust hjarta heldur s\u00e6mir einfaldlega ekki si\u00f0u\u00f0um m\u00f6nnum:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00datig\u00e1ngshrossin eru meira en leifar gamallar vanmenn\u00edngar einsog l\u00fas, \u00feau eru b\u00f3kstaflega sk\u00f6mm \u00e1 \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0l\u00edfi. Menn sem hafa \u00e1n\u00e6gju af a\u00f0 l\u00e1ta \u00feessar vesl\u00edngs skepnur standa \u00fati \u00ed vetrarf\u00e1rvi\u00f0rum, og naga sinu, mold og klaka, eru \u00f3sviknir d\u00fdrakvalarar. \u00cd fornum tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um eru d\u00fdrakvalarar taldir me\u00f0al \u00feeirra sem muni fyrstir brenna \u00ed eil\u00edfum eldi.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00de\u00edngma\u00f0ur einn \u00far einu mesta \u00fatig\u00e1ngshrossah\u00e9ra\u00f0i landsins flutti \u00ed vetur lagafrumvarp um a\u00f0 taka skemtanaskattinn af \u00fej\u00f3\u00f0leikh\u00fassj\u00f3\u00f0i og byggja fyrir hann samkomuh\u00fas og leikh\u00fas \u00ed sveitum. \u00deeir sem hafa me\u00f0 menskum tilfinn\u00edngum horft \u00e1 \u00fatig\u00e1ngshross \u00ed Skagafir\u00f0i skj\u00f6grandi af hor \u00e1 vordegi eftir har\u00f0an l\u00e1ngan vetur munu sannarlega ekki sj\u00e1 eftir f\u00e9 \u00far \u00fej\u00f3\u00f0leikh\u00fassj\u00f3\u00f0i n\u00e9 \u00f6\u00f0rum sj\u00f3\u00f0um til samkomuh\u00fasa \u00ed \u00fev\u00ed h\u00e9ra\u00f0i \u2013 handa \u00fatig\u00e1ngshrossum framar \u00f6llu. Menn\u00edng sveitanna byrjar nefnilega ekki \u00e1 leikh\u00fasi, heldur \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa sk\u00fdli og f\u00f3\u00f0ur handa skepnunum. Menn sem hafa \u00e1n\u00e6gju af a\u00f0 kvelja d\u00fdr eiga ekki a\u00f0 f\u00e1 leikh\u00fas, heldur tukth\u00fas. En menn sem l\u00e1ta skepnur s\u00ednar vera ekki kvaldari \u00e1 \u00feorranum en \u00fe\u00e6r eru \u00e1 sl\u00e6tti munu f\u00e1 \u00f6ll leikh\u00fas b\u00e6\u00f0i \u00feessa heims og annars.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kannski finnst ykkur \u00feessi umr\u00e6\u00f0a \u00f6ll heyra s\u00f6gunni til og \u00f3\u00fearft a\u00f0 rifja upp \u00ed aldarlok. \u00dea\u00f0 kann a\u00f0 vera. N\u00fa \u00fer\u00edfur \u00fej\u00f3\u00f0in sig, b\u00e6\u00f0i hulduf\u00f3lki\u00f0 og h\u00f3lf\u00e9lagi\u00f0, upp \u00e1 hvern dag, burstar tennur, hr\u00e6kir ekki \u00e1 almannaf\u00e6ri, \u00fatvarpsmenn eru a\u00f0 mestu h\u00e6ttir a\u00f0 b\u00faa sig undir a\u00f0 hr\u00e6kja \u00e1 landsl\u00fd\u00f0 og horfallin \u00fatig\u00e1ngshross eru sem betur fer sjalds\u00e9\u00f0ari en \u00e1\u00f0ur \u00fe\u00f3tt vissulega megi \u00fear margt betur fara. \u00c9g hef ekki skemmt ykkur \u00ed \u00feessu spjalli m\u00ednu me\u00f0 tilvitnunum \u00ed greinar Halld\u00f3rs um drykkjuskap \u00cdslendinga, enda v\u00e6ru \u00fe\u00e6r efni \u00ed s\u00e9rstakt erindi. \u00c9g held raunar a\u00f0 f\u00e1ir fari jafn illa \u00fat \u00far sk\u00e1lds\u00f6gum Halld\u00f3rs og ofdrykkjumenn. En \u00fear m\u00e1 kannski segja a\u00f0 vi\u00f0 eigum enn nokku\u00f0 \u00ed land til a\u00f0 n\u00e1 sama \u00fer\u00f3unarstigi og si\u00f0mennta\u00f0ar \u00fej\u00f3\u00f0ir. Mig langar hins vegar a\u00f0 v\u00edkja a\u00f0 umfj\u00f6llun Halld\u00f3rs um umhverfism\u00e1l fr\u00e1 upphafi \u00e1ttunda \u00e1ratugarins. \u00cd greinasafninu Yfirskyg\u00f0ir sta\u00f0ir er grein sem ber heiti\u00f0 Herna\u00f0urinn gegn landinu. \u00deessi grein g\u00e6ti a\u00f0 m\u00f6rgu leyti h\u00e6glega veri\u00f0 skrifu\u00f0 n\u00fana n\u00fdveri\u00f0, jafnvel hafa birst \u00ed Morgunbla\u00f0inu \u00ed dag. H\u00fan hefst me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Af \u00f6fugm\u00e6lan\u00e1tt\u00faru sem \u00edslend\u00edngum er lagin kappkosta sumir okkar n\u00fa a\u00f0 bo\u00f0a \u00fe\u00e1 kenn\u00edngu innan lands og utan, einkum og s\u00e9r\u00edlagi \u00fe\u00f3 \u00ed fer\u00f0aaugl\u00fdsingum og \u00f6\u00f0rum fr\u00f3\u00f0leik handa \u00fatlend\u00edngum, a\u00f0 \u00cdsland s\u00e9 svo landa a\u00f0 \u00fear gefi \u00e1 a\u00f0 l\u00edta \u00f3spilta n\u00e1tt\u00faru. Margur reynir a\u00f0 sv\u00e6fa minnim\u00e1ttarkend me\u00f0 skrumi og m\u00e1 vera a\u00f0 okkur s\u00e9 nokkur vorkunn \u00ed \u00feessum p\u00f3sti. Hi\u00f0 sanna \u00ed m\u00e1linu vita \u00fe\u00f3 allir sem vita vilja, a\u00f0 \u00cdsland er eina landi\u00f0 \u00ed Evr\u00f3pu sem er gerspilt af mannav\u00f6ldum. \u00dev\u00ed hefur veri\u00f0 spilt \u00e1 umli\u00f0num \u00fe\u00fasund \u00e1rum samt\u00edmis \u00fev\u00ed a\u00f0 Evr\u00f3pa hefur veri\u00f0 r\u00e6ktu\u00f0 upp.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann rekur s\u00ed\u00f0an hvernig b\u00fasmali naga\u00f0i ofan \u00ed mold \u00feann gr\u00f3\u00f0ur sem fyrir var \u00ed landinu og vindurinn s\u00e1 s\u00ed\u00f0an um afganginn. \u201eEnn \u00ed dag ver\u00f0ur miklu meira land \u00f6rfoka \u00e1 \u00e1ri hverju en nemur \u00e1rlegri vi\u00f0b\u00f3t \u00ed r\u00e6ktun,\u201c segir \u00fear. N\u00f3belssk\u00e1ldi\u00f0 heldur svo \u00e1fram:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ratugum hafa menn veri\u00f0 ver\u00f0launa\u00f0ir af hinu opinbera fyrir a\u00f0 r\u00e6sa fram m\u00fdrar, l\u00edfseigustu gr\u00f3\u00f0ursv\u00e6\u00f0i landsins, undir yfirskini t\u00fanr\u00e6ktar. Seigar r\u00e6tur m\u00fdrargr\u00f3\u00f0ursins halda glj\u00fapum jar\u00f0veginum saman og vatni\u00f0 n\u00e6rir fj\u00f6lda l\u00edfr\u00e6nna efna \u00ed \u00feessum jar\u00f0vegi og elur sm\u00e1d\u00fdral\u00edf sem a\u00f0 s\u00ednu leyti dregur til s\u00edn fugla. M\u00fdrarnar eru stundum kalla\u00f0ar \u00f6ndunarf\u00e6ri landsins. \u00de\u00fasundir hektara af m\u00fdrum standa n\u00fa me\u00f0 opnum skur\u00f0um sem ristir hafa veri\u00f0 \u00ed \u00feeim tilg\u00e1ngi a\u00f0 draga \u00far landinu alt vatn; s\u00ed\u00f0an ekki s\u00f6guna meir: eftilvill var aldrei mein\u00edngin \u00ed alv\u00f6ru a\u00f0 gera \u00far \u00feessu t\u00fan. Fer ekki a\u00f0 ver\u00f0a m\u00e1l til a\u00f0 ver\u00f0launa menn fyrir a\u00f0 moka ofan\u00ed \u00feetta aftur?<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fana eru starfr\u00e6ktar opinberar nefndir um endurheimt votlendis og veitir v\u00edst ekki af. \u00cd s\u00ed\u00f0ari hluta greinarinnar fjallar Halld\u00f3r s\u00ed\u00f0an um st\u00f3ri\u00f0ju og \u00feau \u00e1form sem uppi voru \u00ed byrjun \u00e1ttunda \u00e1ratugarins. Hann fer h\u00f6r\u00f0um or\u00f0um um \u00fea\u00f0 \u00feegar virkjunarfyrirt\u00e6kjum eru veitt fr\u00edbr\u00e9f til a\u00f0 \u201edarka \u00ed landinu eins og naut \u00ed flagi og jafnvel hyllast til \u00feess a\u00f0 ska\u00f0skemma ellegar leggja \u00ed ey\u00f0i \u00feau s\u00e9rst\u00f6k pl\u00e1ss sem vegna landkosta, n\u00e1tt\u00farud\u00fdr\u00f0ar ellegar sagnhelgi eru ekki a\u00f0eins \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0inni hjartf\u00f3lgin, heldur nj\u00f3ta fr\u00e6g\u00f0ar um v\u00ed\u00f0a ver\u00f6ld sem nokkrir eftirl\u00e6tisgimsteinar jar\u00f0arinnar.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa kynni einhver a\u00f0 segja: Hlj\u00f3mar \u00feetta ekki kunnuglega? Er \u00feessi umr\u00e6\u00f0a ekki enn \u00ed gangi, t\u00e6pum \u00feremur \u00e1ratugum s\u00ed\u00f0ar? \u00c1 \u00feessum t\u00edma var jafnvel r\u00e6tt um a\u00f0 \u00feurrka upp Gullfoss vegna virkjanaframkv\u00e6mda en undanfari\u00f0 hefur Dettifoss veri\u00f0 til umfj\u00f6llunar af sama tilefni og tala\u00f0 um a\u00f0 \u00fea\u00f0 fari saman a\u00f0 virkja fossinn og hafa sem t\u00faristaattraktsj\u00f3n, eins og sagt er. \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 fara me\u00f0 svolitla tilvitnun \u00ed \u00feessa grein, \u201eHerna\u00f0urinn gegn landinu\u201e, og bi\u00f0 ykkur um a\u00f0 setja Dettifoss \u00ed sta\u00f0inn fyrir Gullfoss og J\u00f6kuls\u00e1 \u00e1 Fj\u00f6llum \u00ed sta\u00f0 Hv\u00edt\u00e1r. Halld\u00f3r skrifar:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>M\u00e1lsvari Orkustofnunar l\u00fdsti \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e6ntanleg virkjun fossins [\u00fe.e. Gullfoss] yr\u00f0i framkv\u00e6md \u00feannig a\u00f0 farvegi Hv\u00edt\u00e1r yr\u00f0i breytt en fossst\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00feurka\u00f0. \u00de\u00f3 haf\u00f0i hann \u00ed pokahorninu einkennilega vi\u00f0b\u00f3t vi\u00f0 hugmynd s\u00edna. Hann ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 tilf\u00e6r\u00edngar yr\u00f0u settar \u00ed \u00e1na til a\u00f0 hleypa fossinum \u00e1 aftur ef t\u00faristar k\u00e6mu, svo h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 kr\u00e6la \u00fat\u00far \u00feeim svol\u00edtinn a\u00f0g\u00e1ngseyri. Spurn\u00edng: Hva\u00f0 eigum vi\u00f0 \u00edslend\u00edngar a\u00f0 gera vi\u00f0 alla \u00feessa pen\u00ednga \u00feegar b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 \u00fatanskota fyrir okkur fegurstu st\u00f6\u00f0um landsins? Hugsanlegt svar: Flj\u00faga til Majorku \u00fear sem \u00feeir ku skeinkja rommi\u00f0 \u00f3m\u00e6lt.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd lj\u00f3si alls \u00feessa er kannski ekki a\u00f0 undra a\u00f0 Halld\u00f3r Laxness skuli hafa skrifa\u00f0 form\u00e1la a\u00f0 b\u00f3kinni Reginfj\u00f6ll a\u00f0 haustn\u00f3ttum eftir Kjartan J\u00fal\u00edusson \u00e1 Sk\u00e1ldst\u00f6\u00f0um efri \u00ed Eyjafir\u00f0i. Hann s\u00e1 \u00ed honum fulltr\u00faa hulduf\u00f3lksins sem f\u00f3strar \u00f6ll mannleg fri\u00f0samleg ver\u00f0m\u00e6ti, hefur r\u00e6kta\u00f0 \u00ed s\u00ednum ranni hina s\u00f6nnu \u00edslensku menningu \u00f6ld fram af \u00f6ld; hann s\u00e1 \u00ed honum f\u00f3lki\u00f0 sem hann haf\u00f0i undanfarna \u00e1ratugi veri\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a vi\u00f0 me\u00f0 skrifum s\u00ednum; si\u00f0a til og kenna a\u00f0 bera vir\u00f0ingu fyrir sj\u00e1lfu s\u00e9r, \u00e1samt \u00fev\u00ed a\u00f0 berjast fyrir b\u00e6ttum kj\u00f6rum \u00feess.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Heimurinn innan vi\u00f0 krosshli\u00f0i\u00f0 \u00ed Brekkukoti lei\u00f0 undir lok \u00ed enda s\u00f6gunnar. Hulduf\u00f3lki\u00f0 heldur samt \u00e1fram a\u00f0 lifa en hefur flutt sig um set. Og h\u00f3lf\u00e9lagi\u00f0 l\u00e6tur ekki a\u00f0 s\u00e9r h\u00e6\u00f0a og heldur s\u00ednu striki. \u00dev\u00ed er kannski enn br\u00fdnna en \u00e1\u00f0ur a\u00f0 halda fram \u00feeim gildum sem hulduf\u00f3lki\u00f0 stendur fyrir; a\u00f0 vera tr\u00far yfir litlu, bera vir\u00f0ingu fyrir \u00f6llu \u00fev\u00ed sem l\u00edfsanda dregur; skepnum og m\u00f6nnum og j\u00f6r\u00f0inni sem vi\u00f0 g\u00f6ngum \u00e1.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Laxnessfyrirlestur \u00ed Norr\u00e6na h\u00fasinu 26. febr\u00faar 1998<\/p>\r\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrir tveimur \u00e1ratugum var gefin \u00fat h\u00e9r \u00e1 landi b\u00f3kin Reginfj\u00f6ll \u00e1 haustn\u00f3ttum eftir Kjartan J\u00fal\u00edusson \u00e1 Sk\u00e1ldst\u00f6\u00f0um efri \u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[3],"tags":[],"class_list":["post-41","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-fyrirlestrar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/41","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=41"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/41\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":104043,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/41\/revisions\/104043"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=41"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=41"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=41"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}