{"id":45,"date":"2022-03-22T20:28:18","date_gmt":"2022-03-22T20:28:18","guid":{"rendered":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=45"},"modified":"2022-04-12T17:00:51","modified_gmt":"2022-04-12T17:00:51","slug":"1-brekkukotsannall-formali","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=45","title":{"rendered":"Brekkukotsann\u00e1ll \u2013 form\u00e1li"},"content":{"rendered":"\r\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"952\" class=\"wp-image-46\" src=\"https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/1-HKL-med-hundinn-1024x952.jpg\" alt=\"\" srcset=\"https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/1-HKL-med-hundinn-1024x952.jpg 1024w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/1-HKL-med-hundinn-scaled-600x558.jpg 600w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/1-HKL-med-hundinn-300x279.jpg 300w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/1-HKL-med-hundinn-768x714.jpg 768w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/1-HKL-med-hundinn-1536x1428.jpg 1536w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/1-HKL-med-hundinn-2048x1904.jpg 2048w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/1-HKL-med-hundinn-scaled.jpg 2560w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/>\r\n\r\n<\/figure>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d3h\u00e6tt er a\u00f0 segja a\u00f0 menn hafi be\u00f0i\u00f0 me\u00f0 eftirv\u00e6ntingu eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 Halld\u00f3r Laxness sendi fr\u00e1 s\u00e9r n\u00fdja sk\u00e1lds\u00f6gu eftir a\u00f0 hafa hloti\u00f0 N\u00f3belsver\u00f0launin 1955, mestu al\u00fej\u00f3\u00f0legu vi\u00f0urkenningu sem rith\u00f6fundi getur hlotnast.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1st\u00e6\u00f0ur eftirv\u00e6ntingarinnar eru einfaldar. Menn voru forvitnir a\u00f0 sj\u00e1 hvernig sk\u00e1ldi\u00f0 skrifa\u00f0i eftir a\u00f0 hafa hloti\u00f0 \u00feessa miklu upphef\u00f0 a\u00f0 utan og Halld\u00f3r kom lesendum s\u00ednum \u00e6vinlega \u00e1 \u00f3vart me\u00f0 verkum s\u00ednum, var \u00f3hr\u00e6ddur a\u00f0 breyta um st\u00edl og yrkisefni. Verk hans v\u00f6ktu \u00e6vinlega deilur, engum st\u00f3\u00f0 \u00e1 sama um hann, en \u00fe\u00f3 g\u00e1tu menn ekki veri\u00f0 \u00feekktir fyrir anna\u00f0 en a\u00f0 lesa \u00feau, enda sag\u00f0i El\u00edas Mar \u00ed ritd\u00f3mi um <em>Brekkukotsann\u00e1l<\/em>: \u201e\u00deeir \u00cdslendingar, sem ekki lesa n\u00faor\u00f0i\u00f0 hverja n\u00fdja b\u00f3k eftir Laxness strax er h\u00fan kemur \u00fat, eru varla m\u00e6landi m\u00e1lum\u201c.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Deilurnar um Laxness snerust ekki um listr\u00e6nt gildi b\u00f3kanna heldur efni \u00feeirra. Hann kom vi\u00f0 kaunin \u00e1 m\u00f6nnum, skrifa\u00f0i \u00f3hr\u00e6ddur um l\u00fasina og sk\u00edtinn sem landinn neita\u00f0i a\u00f0 kannast vi\u00f0. Og ekki st\u00f3\u00f0 \u00e1 vi\u00f0br\u00f6g\u00f0um \u00cdslendinga. Halld\u00f3r var anna\u00f0hvort hata\u00f0ur e\u00f0a d\u00e1\u00f0ur, \u00fdmist naut hann gestrisni b\u00e6nda \u00e1 fer\u00f0um s\u00ednum um landi\u00f0 e\u00f0a honum var meina\u00f0ur a\u00f0gangur a\u00f0 landareign b\u00f3ndans me\u00f0 riffli!<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Ramm\u00edslenskar en um lei\u00f0 sammannlegar<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 fj\u00f3r\u00f0a \u00e1ratugnum skrifa\u00f0i Halld\u00f3r s\u00f6gur \u00far samt\u00edmanum: <em>S\u00f6lku V\u00f6lku<\/em> (1931-32) um fiskverkunarst\u00falku \u00ed litlu \u00feorpi; <em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/em> (1934-35) um kotunginn Bjart \u00ed Sumarh\u00fasum og <em>Heimslj\u00f3s<\/em> (1937-40) um sk\u00e1ldi\u00f0 \u00d3laf K\u00e1rason Lj\u00f3sv\u00edking. \u00dear deildi Halld\u00f3r \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0skipulagi\u00f0 og rangl\u00e1ta skiptingu au\u00f0s enda var hann \u00fe\u00e1 or\u00f0inn sannf\u00e6r\u00f0ur s\u00f3s\u00edalisti.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e6kur \u00feessar eru \u00fe\u00f3 fr\u00e1leitt einfaldar \u00e1r\u00f3\u00f0ursb\u00f3kmenntir eins og vins\u00e6ldir \u00feeirra \u00fat um allan heim enn \u00feann dag \u00ed dag s\u00fdna. Halld\u00f3r n\u00e6r a\u00f0 gera \u00fe\u00e6r sammannlegar \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00e6r spretti \u00far \u00edslenskum veruleika, t.d. kom Amr\u00edkani eitt sinn a\u00f0 m\u00e1li vi\u00f0 Halld\u00f3r og tj\u00e1\u00f0i honum a\u00f0 \u00ed New York einni v\u00e6ru hundra\u00f0 \u00fe\u00fasund b\u00e6nda sem lif\u00f0u og hr\u00e6r\u00f0ust alla s\u00edna hundst\u00ed\u00f0 undir sams konar si\u00f0fer\u00f0il\u00f6gm\u00e1li og Bjartur \u00ed Sumarh\u00fasum.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00cdslandsklukkan<\/em> (1943-6) um \u00feau J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson, Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i \u00cdslandss\u00f3l og Arnas Arn\u00e6us var fyrsta verk Halld\u00f3rs sem naut almennrar hylli \u00edslenskra lesenda en \u00fear skrifa\u00f0i hann s\u00f6gulega sk\u00e1lds\u00f6gu fr\u00e1 17. \u00f6ld sem bygg\u00f0i a\u00f0 miklu leyti \u00e1 ritu\u00f0um heimildum. Hann var hins vegar ekki lengi a\u00f0 vekja deilur \u00e1 n\u00fd, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed <em>At\u00f3mst\u00f6\u00f0inni<\/em> (1948) t\u00f3k hann \u00e1 afar vi\u00f0kv\u00e6mu m\u00e1li, s\u00f6lu landsins e\u00f0a \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00ed vestr\u00e6nu varnarsamstarfi, eftir \u00fev\u00ed hvar menn skipu\u00f0u s\u00e9r \u00ed fylkingar.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Aftur vakti Halld\u00f3r athygli og deilur me\u00f0 <em>Gerplu<\/em> (1952) \u00fear sem hann h\u00e6ddist a\u00f0 hinni fornu hetjuhugsj\u00f3n \u00cdslendingasagnanna en bo\u00f0skapur s\u00f6gunnar beindist ekki s\u00ed\u00f0ur a\u00f0 n\u00fat\u00edmanum \u00fev\u00ed a\u00f0 tr\u00fain \u00e1 valdi\u00f0 og ofbeldi\u00f0 er enn helsta bjargr\u00e1\u00f0 \u00feeirra landstj\u00f3rnarmanna sem ekkert \u00f3ttast meira en \u00feegna s\u00edna. \u00deeir sem vildu g\u00e1tu s\u00e9\u00f0 \u00fearna deilt \u00e1 Hitler og Stal\u00edn en \u00ed b\u00f3kinni birtist einnig andst\u00e6\u00f0a \u00feeirra samf\u00e9laga \u00fear sem r\u00edkja sterkir lei\u00f0togar e\u00f0a einr\u00e6\u00f0isherrar en sl\u00edkt fyrirmyndarsamf\u00e9lag finnur hann me\u00f0al gr\u00e6nlenskra eskim\u00f3a. N\u00fa\u00edtar, sem sk\u00e1ldi\u00f0 nefnir svo, \u00feekkja ekki anna\u00f0 en a\u00f0 allir s\u00e9u jafnir og lifi \u00ed s\u00e1tt og samlyndi.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Efast um s\u00e6lur\u00edki\u00f0<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 var ekki a\u00f0eins a\u00f0 menn fyndu a\u00f0 Halld\u00f3r v\u00e6ri a\u00f0 feta sig inn \u00e1 n\u00fdjar brautir \u00ed sk\u00e1ldverkum s\u00ednum \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1 \u00feessum \u00e1rum, um og eftir mi\u00f0jan sj\u00f6tta \u00e1ratuginn, m\u00e1tti l\u00edka greina a\u00f0rar \u00e1herslur \u00ed greinaskrifum hans. \u00cd <em>Gj\u00f6rn\u00edngab\u00f3k<\/em> (1959) safnar Halld\u00f3r saman greinum s\u00ednum fr\u00e1 \u00e1runum 1954-58 og koma \u00feessar breytingar \u00fear gl\u00f6gglega fram. \u00c1rin eftir s\u00ed\u00f0ari heimsstyrj\u00f6ld einkenndust af hatr\u00f6mmu k\u00f6ldu str\u00ed\u00f0i \u00fear sem voru \u201evi\u00f0\u201c og \u201e\u00feeir\u201c. Menn skipu\u00f0u s\u00e9r \u00ed tv\u00e6r fylkingar undir merkjum Bandar\u00edkjanna og Sov\u00e9tr\u00edkjanna, \u2013 kap\u00edtalisma og komm\u00fanisma. Halld\u00f3r Laxness haf\u00f0i um \u00e1rabil veri\u00f0 \u00f6tull bar\u00e1ttuma\u00f0ur s\u00f3s\u00edalismans, lofa\u00f0 Sov\u00e9tr\u00edkin \u00ed h\u00e1stert og lei\u00f0toga \u00feeirra, J\u00f3sef Stal\u00edn, en deilt a\u00f0 sama skapi harkalega \u00e1 h\u00f6fu\u00f0v\u00edgi au\u00f0valdsins, Bandar\u00edkin. \u00cd <em>Gj\u00f6rn\u00edngab\u00f3k<\/em> g\u00e6tir hins vegar hvergi heiftarlegra \u00e1r\u00e1sa \u00e1 Bandar\u00edkjamenn og Nato en hann heggur \u00feeim mun oftar \u00ed a\u00f0ra og \u00f3v\u00e6nta \u00e1tt. Hann l\u00fdsir \u00fear \u00feeirri sorg sem s\u00f3s\u00edalistar heimsins fylltust \u00feegar Kr\u00fasjoff, a\u00f0alritari sov\u00e9ska komm\u00fanistaflokksins, fletti ofan af grimmdarverkum Stal\u00edns. Og hann er harmi sleginn yfir innr\u00e1s Sov\u00e9tmanna \u00ed Ungverjaland 1956 til a\u00f0 kve\u00f0a ni\u00f0ur uppreisnina \u00ed B\u00fadapest.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 ber \u00fev\u00ed ekki \u00e1 \u00f6\u00f0ru en Halld\u00f3r s\u00e9 kominn me\u00f0 miklar efasemdir um s\u00e6lur\u00edki s\u00f3s\u00edalismans, Sov\u00e9tr\u00edkin. Og ekki n\u00f3g me\u00f0 \u00fea\u00f0: hann vir\u00f0ist vera b\u00fainn a\u00f0 f\u00e1 sig fullsaddan af kenningum. \u00c1 \u00feri\u00f0ja \u00e1ratugnum a\u00f0hylltist hann ka\u00fe\u00f3lsku og bo\u00f0a\u00f0i hana af miklum krafti. Eftir \u00fea\u00f0 snerist hann til s\u00f3s\u00edalisma og bar\u00f0ist fyrir honum af engu minni \u00e1kafa. Endanlegt uppgj\u00f6r Halld\u00f3rs vi\u00f0 s\u00f3s\u00edalismann og Stal\u00edn f\u00f3r s\u00ed\u00f0an fram \u00ed <em>Sk\u00e1ldat\u00edma<\/em> (1963).<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Af framans\u00f6g\u00f0u m\u00e1 sj\u00e1 a\u00f0 s\u00e1 a\u00f0 Halld\u00f3r Laxness sem sendi fr\u00e1 s\u00e9r <em>Brekkukotsann\u00e1l<\/em> \u00e1 \u00fatm\u00e1nu\u00f0um 1957 var annar Halld\u00f3r en s\u00e1 sem skrifa\u00f0i <em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/em> r\u00famum tveimur \u00e1ratugum \u00e1\u00f0ur \u00fe\u00f3tt segja megi a\u00f0 efni\u00f0 s\u00e9 svipa\u00f0: \u00edslenskur kotb\u00f3ndi \u00e1 fyrri hluta tuttugustu aldar og fj\u00f6lskylda hans. Hann kemur aftur a\u00f0 g\u00f6mlu yrkisefni en \u00e1n \u00feeirra p\u00f3lit\u00edsku vi\u00f0mi\u00f0ana sem settu mark sitt \u00e1 verk hans \u00e1 fj\u00f3r\u00f0a \u00e1ratugnum.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Innan og utan vi\u00f0 krosshli\u00f0i\u00f0<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Brekkukotsann\u00e1ll<\/em> er fr\u00e1s\u00f6gn \u00c1lfgr\u00edms af afa og \u00f6mmu \u00ed Brekkukoti \u00ed Reykjav\u00edk og st\u00f3rs\u00f6ngvaranum Gar\u00f0ari H\u00f3lm. \u00c1lfgr\u00edm langar a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 syngja og finna hinn hreina t\u00f3n. Gar\u00f0ar vir\u00f0ist hafa h\u00f6ndla\u00f0 fr\u00e6g\u00f0ina en ekki er eins v\u00edst a\u00f0 hann hafi fundi\u00f0 t\u00f3ninn hreina. Hann \u00feiggur f\u00e9 af G\u00fa\u00f0m\u00fansen kaupmanni og kemst \u00e1\u00f0ur en l\u00fdkur a\u00f0 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u: \u201eS\u00e1 ma\u00f0ur sem er einhvers vir\u00f0i eignast aldrei gimstein.\u201c Gar\u00f0ar H\u00f3lm ver\u00f0ur \u00c1lfgr\u00edmi a\u00f0 nokkru leyti fyrirmynd og hvatning uns beiskur sannleikurinn um st\u00f3rstj\u00f6rnuna l\u00fdkst upp fyrir honum sm\u00e1tt og sm\u00e1tt.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e6gt er a\u00f0 n\u00e1lgast <em>Brekkukotsann\u00e1l<\/em> me\u00f0 \u00fdmsu m\u00f3ti, t.d. sem b\u00f3k um tvo \u00f3l\u00edka heima, gamlan og n\u00fdjan, sannan og falskan, e\u00f0a sem harms\u00f6gu.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef vi\u00f0 l\u00edtum \u00e1 <em>Brekkukotsann\u00e1l<\/em> sem s\u00f6gu um \u00f3l\u00edka heima, gamlan og n\u00fdjan, markar krosshli\u00f0i\u00f0 \u00ed Brekkukoti landam\u00e6rin, \u201e\u00fear sem skilur tvo heima\u201c.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Innan vi\u00f0 krosshli\u00f0i\u00f0 eru engar kr\u00f6fur ger\u00f0ar, hvorki veraldlegar n\u00e9 andlegar, enda lifir f\u00f3lki\u00f0 l\u00edfi sem hefur \u00fe\u00f3tt n\u00f3gu gott fyrir landsmenn \u00f6ldum saman. F\u00f3lki\u00f0 \u00ed Brekkukoti lifir reglubundnu l\u00edfi sem er \u00ed f\u00f6stum skor\u00f0um, vir\u00f0ir r\u00e9tt annarra til a\u00f0 vera \u00f6\u00f0ruv\u00edsi og s\u00fdnir engum manni \u00e1reitni. \u00dear eru or\u00f0in of d\u00fdr til a\u00f0 ey\u00f0a \u00feeim \u00ed g\u00e1laust hjal, kerskni e\u00f0a lygar; forvitni og stelv\u00edsi lag\u00f0ar a\u00f0 j\u00f6fnu. Heimurinn innan vi\u00f0 krosshli\u00f0i\u00f0 er l\u00edkastur Parad\u00eds. \u00dear er reki\u00f0 \u00f3keypis gistih\u00fas fyrir alla sem vilja. \u00dear hafa menn enga tr\u00fa \u00e1 peningum n\u00e9 \u00f6\u00f0rum n\u00fdm\u00e6lum. Amma og afi \u00ed Brekkukoti eru manna ge\u00f0\u00feekkust og standa f\u00f6stum f\u00f3tum \u00ed li\u00f0num t\u00edma. \u00cd huga \u00feeirra er s\u00e1 au\u00f0ur einn sannur sem ekki ver\u00f0ur af m\u00f6nnum tekinn. Utan vi\u00f0 krosshli\u00f0i\u00f0 er annar heimur, annar t\u00edmi, anna\u00f0 samf\u00e9lag. Brekkukot og G\u00fa\u00f0m\u00fansensb\u00fa\u00f0 eru t\u00e1kn tveggja vi\u00f0horfa \u00ed s\u00f6gunni. Brekkukot t\u00e1knar hreinlyndi, h\u00f3gv\u00e6r\u00f0 og i\u00f0ni \u2013 e\u00f0a hinn hreina t\u00f3n \u2013 en G\u00fa\u00f0m\u00fansensb\u00fa\u00f0 allt hi\u00f0 gagnst\u00e6\u00f0a, \u2013 og hinn n\u00fdja t\u00edma. S\u00fa list sem \u00fear \u00e1 s\u00e9r gri\u00f0asta\u00f0 er ekki s\u00f6nn. Hinn kyrrst\u00e6\u00f0i heimur innan vi\u00f0 krosshli\u00f0i\u00f0 felur \u00ed s\u00e9r d\u00fdrm\u00e6ta menningu, s\u00e9rst\u00e6tt gildismat og b\u00fdr yfir \u00e1kve\u00f0num t\u00f6frum en hann byggir \u00e1 s\u00f6gulegum og f\u00e9lagslegum forsendum sem eru a\u00f0 bresta \u00ed b\u00f3kinni. N\u00fdi t\u00edminn heldur innrei\u00f0 s\u00edna \u00ed Reykjav\u00edk. N\u00fat\u00edminn er a\u00f0 bresta \u00e1 me\u00f0 \u00f6nnur atvinnut\u00e6ki sem skapa a\u00f0rar efnahagslegar forsendur og hugsunarh\u00e1ttur manna og gildismat breytast hratt.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd s\u00ed\u00f0ari b\u00f3kum s\u00ednum kemur Halld\u00f3r aftur og aftur a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 eiginlega skipti litlu m\u00e1li fyrir l\u00edf okkar h\u00e9r \u00e1 j\u00f6r\u00f0 hva\u00f0a tr\u00faarlegar e\u00f0a heimspekilegar form\u00falur vi\u00f0 a\u00f0hyllumst. \u00dea\u00f0 s\u00e9u hinir mannlegu eiginleikar sem \u00farslitum r\u00e1\u00f0i, hin mannlega reisn. Margar pers\u00f3nur b\u00f3ka hans einkennast af \u00feessu. L\u00edf \u00feeirra byggir \u00e1 umbur\u00f0arlyndi gagnvart n\u00e1unganum og er algj\u00f6rlega laust vi\u00f0 hvers kyns ofst\u00e6ki. Hva\u00f0 sem \u00e1 gengur birtir f\u00f3lki\u00f0 s\u00edna s\u00e9rst\u00e6\u00f0u afst\u00f6\u00f0u me\u00f0 \u00f3bifanlegri r\u00f3semi, einungis me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 breyta eins og \u00fev\u00ed er e\u00f0lilegt.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfssko\u00f0un af \u00feessu tagi l\u00edkist mj\u00f6g ta\u00f3isma sem \u00e1 r\u00e6tur a\u00f0 rekja allt austur til K\u00edna. \u00de\u00f3tt Brekkukot s\u00e9 \u00f3neitanlega \u00edslenskt al\u00fe\u00fd\u00f0uheimili sko\u00f0ar h\u00f6fundur s\u00f6gunnar heimilisf\u00f3lki\u00f0 \u00ed lj\u00f3si ta\u00f3s. A\u00f0 v\u00edsu er ta\u00f3 aldrei nefnt \u00e1 nafn en n\u00e1vist \u00feess leynir s\u00e9r ekki, t.d. \u00ed 19. kap\u00edtula \u00fear sem \u00c1lfgr\u00edmur segir fr\u00e1 morgunverkunum me\u00f0 Birni \u00ed Brekkukoti:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201e\u00deessir mornar \u00feegar vi\u00f0 vorum a\u00f0 vitja um hrokkelsin \u00e1 Skerjafir\u00f0i, og \u00feeir voru \u00ed raun og veru allir einn og sami morguninn: alt\u00edeinu eru \u00feeir li\u00f0nir. Stj\u00f6rnur \u00feeirra eru f\u00f6lna\u00f0ar; k\u00ednversku b\u00f3kinni \u00feinni loka\u00f0.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi k\u00ednverska b\u00f3k er B\u00f3kin um veginn eftir spekinginn Lao-tse, eins konar spakm\u00e6lasafn sem l\u00edkist fremur samt\u00edningi en heildst\u00e6\u00f0u hugmyndakerfi.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kostgripir hins vitra manns eru samkv\u00e6mt henni h\u00f3fsemd, sparsemi (\u00ed v\u00ed\u00f0t\u00e6kri merkingu) og l\u00edtill\u00e6ti.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e6r pers\u00f3nur sem eru mest \u00e1berandi \u00ed Brekkukoti eru \u201eafi\u201c og \u201eamma\u201c \u00c1lfgr\u00edms. Amman heldur \u00f6llu saman \u00e1 heimilinu, h\u00fan innir af hendi dagleg st\u00f6rf s\u00edn svo a\u00f0 segja \u00f3s\u00fdnilega, \u00e1n erfi\u00f0ismuna og fyrirgangs og brei\u00f0ir \u00f6ryggiskennd yfir allt sem umhverfis hana er. Sama m\u00e1 segja um Bj\u00f6rn \u00ed Brekkukoti. \u00deau lifa l\u00edfi s\u00ednu \u00e1 \u00f3sj\u00e1lfr\u00e1\u00f0an h\u00e1tt og vir\u00f0ast ekki velta v\u00f6ngum yfir l\u00edfsstefnu sinni e\u00f0a sambandi s\u00ednu vi\u00f0 a\u00f0rar manneskjur e\u00f0a umheiminn.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftirlitsma\u00f0urinn sem b\u00fdr undir sama \u00feaki og \u00feau hefur aftur \u00e1 m\u00f3ti kosi\u00f0 s\u00e9r hlutskipti og hann getur r\u00e6tt um l\u00edfsvi\u00f0horf s\u00edn. Hann var \u00e1\u00f0ur b\u00f3ndi en seldi eigur s\u00ednar til \u00feess a\u00f0 geta hl\u00fdtt \u00feeirri k\u00f6llun sinni a\u00f0 gera salernin vi\u00f0 h\u00f6fnina \u00ed Reykjav\u00edk hrein og ilmandi \u201eeinsog ap\u00f3teki\u00f0 hj\u00e1 \u00feeim danska manni Mikael L\u00fand\u201c og vi\u00f0halda \u00fev\u00ed hreinl\u00e6ti. Hann \u00e6tlar s\u00e9r \u00feannig a\u00f0 gera hi\u00f0 auvir\u00f0ilegasta \u00ed b\u00e6num g\u00f6fugt, upphefja hi\u00f0 l\u00e1ga, en h\u00e1tt og l\u00e1gt eru andst\u00e6\u00f0ur sem skipta hann engu m\u00e1li e\u00f0a eins og segir \u00ed s\u00f6gunni: \u201eH\u00e1tt og l\u00e1gt vinur, sag\u00f0i eftirlitsma\u00f0urinn og skr\u00edkti ofurl\u00edti\u00f0 \u2013 \u00ed hlj\u00f3\u00f0i: \u00e9g veit ekki hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er\u201c.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrir honum er hi\u00f0 h\u00e6rra h\u00e6tt a\u00f0 vera h\u00e6rra og l\u00e6gra h\u00e6tt a\u00f0 vera l\u00e6gra. Hann er gersneyddur allri tilhneigingu til a\u00f0 pr\u00e9dika si\u00f0fr\u00e6\u00f0i fyrir \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki. \u00cd augum hans eru allir menn jafn gildir. Breytni hans einkennist af takmarkalausri hj\u00e1lpsemi, samfara r\u00f3tgr\u00f3inni and\u00fa\u00f0 \u00e1 a\u00f0 gr\u00edpa fram fyrir hendurnar \u00e1 \u00f6\u00f0rum e\u00f0a hafa \u00e1hrif \u00e1 \u00f6rl\u00f6g me\u00f0br\u00e6\u00f0ra sinna. Afsta\u00f0a hans getur virst einkennast af ta\u00f3, \u00fev\u00ed afli er sm\u00fdgur gegnum allt og drottnar yfir \u00f6llu \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 kyrrl\u00e1tt og geri engar kr\u00f6fur, s\u00e9 meira a\u00f0 segja afskiptalaust, en \u00feegar \u00c1lfgr\u00edmur rifjar \u00feetta upp l\u00f6ngu s\u00ed\u00f0ar ber hann \u00feetta saman vi\u00f0 anna\u00f0 si\u00f0g\u00e6\u00f0iskerfi. Honum finnst hann hafa or\u00f0i\u00f0 \u00e1heyrsla \u00feess er fullkominn vinur manna m\u00e6lti or\u00f0um kirkjufe\u00f0ra og heilagra manna en me\u00f0 gagnst\u00e6\u00f0um formerkjum: hann upph\u00f3f manninn me\u00f0an kirkjunnar menn t\u00f6lu\u00f0u af fullkomnum vi\u00f0bj\u00f3\u00f0i um sk\u00f6pun mannsins. Eftirlitsma\u00f0urinn er \u00fe\u00f3 ekki kristinn heldur bl\u00e1tt \u00e1fram laus vi\u00f0 alla gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i enda vi\u00f0urkennir hann ekkert yfirn\u00e1tt\u00farlegt nema t\u00edmann. Hins vegar vir\u00f0ist sl\u00edkur ma\u00f0ur au\u00f0ugri af ta\u00f3 en flestir a\u00f0rir samkv\u00e6mt t\u00falkun Halld\u00f3rs Laxness \u00e1 \u00fev\u00ed hugtaki.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kjarninn \u00ed ta\u00f3 Halld\u00f3rs felur \u00ed s\u00e9r vir\u00f0ingu fyrir \u00f6llu l\u00edfi, tr\u00fa \u00e1 \u00f3brotinn mannk\u00e6rleika, trygglyndi og hreinlyndi. \u00deessa fyrirmynd mannlegrar breytni sem sett var fram \u00ed k\u00ednversku kveri fyrir \u00fe\u00fasundum \u00e1ra finnur hann me\u00f0al venjulegs \u00edslensks al\u00fe\u00fd\u00f0uf\u00f3lks.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r teflir fram \u00feessari angurv\u00e6ru mynd af l\u00edfinu \u00ed Brekkukoti gegn n\u00fat\u00edmanum \u00fear sem \u00f6nnur gildi eru hafin til vegs. \u00cd b\u00f3karlok vitum vi\u00f0 a\u00f0 heimurinn innan vi\u00f0 krosshli\u00f0i\u00f0 er \u00e1 hverfanda hveli. \u00c1lfgr\u00edmur st\u00edgur skrefi\u00f0 til fulls, yfirgefur Brekkukot til a\u00f0 fara \u00fat \u00ed heim til a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 syngja og feta \u00feannig \u00ed f\u00f3tspor st\u00f3rs\u00f6ngvarans Gar\u00f0ars H\u00f3lm<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Algild mannleg harmsaga<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6nnur lei\u00f0 a\u00f0 <em>Brekkukotsann\u00e1l<\/em> en tengist \u00fe\u00f3 \u00feeirri sem n\u00fa hefur veri\u00f0 rakin er a\u00f0 sko\u00f0a s\u00f6guna \u00fat fr\u00e1 sambandi Gar\u00f0ars H\u00f3lm og \u00c1lfgr\u00edms \u00fear sem \u00f6rl\u00f6g s\u00f6ngvarans f\u00e6rast a\u00f0 mi\u00f0ju fr\u00e1sagnarinnar. Ef vi\u00f0 h\u00f6fum \u00fe\u00e1 tvo \u00ed brennidepli m\u00e1 segja a\u00f0 <em>Brekkukotsann\u00e1ll<\/em> s\u00e9 harmsaga \u00ed lj\u00f3si t\u00e6rrar bernsku; hamingja bernskunnar \u00ed skugga \u00f6rlaganornarinnar. Anna\u00f0 b\u00fdr undir kyrru yfirbor\u00f0i endurminninganna. \u00deegar Gar\u00f0ar H\u00f3lm kemur fyrsta sinni heim b\u00fd\u00f0ur lesandann \u00ed grun a\u00f0 ekki s\u00e9 allt sem s\u00fdnist, \u2013 h\u00e9r s\u00e9 harmsaga \u00e1 fer\u00f0.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Helsti stu\u00f0ningsa\u00f0ili Gar\u00f0ars H\u00f3lm \u00e1 \u00cdslandi er G\u00fa\u00f0m\u00fansensb\u00fa\u00f0. G\u00fa\u00f0m\u00fansen kaupma\u00f0ur sem l\u00edta m\u00e1 \u00e1 sem t\u00e1kn reykv\u00edskrar borgarast\u00e9ttar er skringileg pers\u00f3na en um lei\u00f0 aumkunarver\u00f0. Hann er menningarlaus. En hann hefur komist a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00f3tt hann lifi g\u00f3\u00f0u l\u00edfi \u00e1n menningar getur \u201eb\u00fa\u00f0in\u201c ekki komist af \u00e1n hennar \u2013 \u00fea\u00f0 vantar slaufu \u00e1 saltfiskinn \u2013 og \u00fev\u00ed leggur h\u00fan fram f\u00e9 \u00ed \u201efyrirt\u00e6ki\u00f0\u201c Gar\u00f0ar H\u00f3lm. Seinna kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 \u00fea\u00f0 fyrirt\u00e6ki er vafasamt \u00ed meira lagi en \u201eb\u00fa\u00f0in\u201c m\u00e1 ekki vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0urkenna a\u00f0 h\u00fan hafi misreikna\u00f0 sig \u00ed menningarfyrirt\u00e6kinu, h\u00fan reynir a\u00f0 minnsta kosti a\u00f0 skj\u00f3ta \u00feeirri j\u00e1tningu \u00e1 sem lengstan frest. \u00c1 me\u00f0an er meintri fr\u00e6g\u00f0 s\u00f6ngvarans haldi\u00f0 a\u00f0 al\u00fe\u00fd\u00f0u manna, h\u00fan skal tr\u00faa \u00fev\u00ed a\u00f0 Gar\u00f0ar s\u00e9 st\u00f3rs\u00f6ngvari og \u00ed \u00fev\u00ed skyni eru fluttar st\u00f6\u00f0ugar fr\u00e9ttir af sigrum hans \u00e1 erlendri grund. Og \u00feessum blekkingum tr\u00faa menn. Gar\u00f0ar skilur sj\u00e1lfur \u00f6rl\u00f6g s\u00edn, leikur hlutverk sitt me\u00f0an st\u00e6tt er, en veraldarlei\u00f0i hans er einl\u00e6gur og kv\u00f6l hans uppger\u00f0arlaus.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00e6g\u00f0 Gar\u00f0ars er bl\u00e1sin \u00fat en \u00feegar til \u00e1 a\u00f0 taka reynist vera harla l\u00edtil innist\u00e6\u00f0a fyrir henni. Af \u00feessum s\u00f6kum hafa \u00fdmsir velt \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvort Brekkukotsann\u00e1ll s\u00e9 um f\u00e1n\u00fdti fr\u00e6g\u00f0arinnar e\u00f0a hvort fr\u00e6g\u00f0 s\u00e9 \u00fear alls ekkert til umr\u00e6\u00f0u. Vissulega er \u00feetta \u00e1takanleg saga um hinn eil\u00edfa fr\u00e6g\u00f0ardraum landans sem \u00far eymd e\u00f0a f\u00e1sinni leitar utan til a\u00f0 sigra heiminn en kemur aftur sigra\u00f0ur. Sannleikurinn er hins vegar s\u00e1 a\u00f0 Gar\u00f0ar H\u00f3lm er hvort tveggja \u00ed senn fr\u00e6gasti ma\u00f0ur \u00cdslands og \u00f3breyttur sj\u00f3ma\u00f0ur \u00e1 J\u00f3tlandi. \u00deetta eru vitaskuld algj\u00f6rar m\u00f3tsagnir \u00feannig a\u00f0 Gar\u00f0ar ver\u00f0ur kannski ekki r\u00f6kfr\u00e6\u00f0ilega \u201er\u00e9ttur\u201c en Halld\u00f3r Laxness hefur l\u00f6ngum \u00e1liti\u00f0 mikilv\u00e6gara \u00ed verkum s\u00ednum a\u00f0 setja fram tv\u00e6r setningar, tv\u00e6r hli\u00f0ar m\u00e1ls e\u00f0a pers\u00f3nu sem rekast \u00f3\u00feyrmilega \u00e1: sannleikurinn kann \u00fe\u00e1 a\u00f0 birtast \u00ed leiftrinu sem ver\u00f0ur vi\u00f0 \u00e1reksturinn. Af \u00feeim s\u00f6kum er Brekkukotsann\u00e1ll um fr\u00e6g\u00f0ina, \u2013 me\u00f0al annars. Andst\u00e6\u00f0ur t\u00edmans, andst\u00e6\u00f0ur \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsins taka s\u00e9r b\u00fasta\u00f0 \u00ed manninum Georg Hanssyni e\u00f0a Gar\u00f0ari H\u00f3lm. Sem manni eru honum \u00fe\u00e6r andst\u00e6\u00f0ur a\u00f0 lokum ofurefli. Ni\u00f0ursta\u00f0an ver\u00f0ur algild mannleg harmsaga.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c6ska \u00c1lfgr\u00edms er me\u00f0 nokkrum h\u00e6tti endurtekning \u00e1 \u00e6sku Gar\u00f0ars H\u00f3lm. B\u00e1\u00f0ir alast \u00feeir upp vi\u00f0 gamla kirkjugar\u00f0inn, \u00fear syngja \u00feeir b\u00e1\u00f0ir vi\u00f0 sm\u00e6rri jar\u00f0arfarir hj\u00e1 s\u00e9ra J\u00f3hanni d\u00f3mkirkjupresti og stefna b\u00e1\u00f0ir \u00e1 frama \u00ed s\u00f6nglist \u00feegar \u00feeir vaxa \u00far grasi. Saga drengsins er innskot \u00ed s\u00f6gu heimss\u00f6ngvarans en um lei\u00f0 er \u00feetta \u00feroskasaga Gar\u00f0ars. \u00c6vi \u00c1lfgr\u00edms m\u00e1 \u00fe\u00f3 ekki sko\u00f0ast sem einhvers konar yfirn\u00e1tt\u00farleg endurtekning \u00e1 \u00e6vi Gar\u00f0ars.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1lfgr\u00edmi er einmitt frj\u00e1lst a\u00f0 leggja sinn skilning \u00ed hlutverk sitt sem arftaka s\u00f6ngvarans. Harmleikur Gar\u00f0ars er a\u00f0eins ein af m\u00f6gulegum framt\u00ed\u00f0arlei\u00f0um \u00c1lfgr\u00edms. \u00cd lok b\u00f3karinnar ver\u00f0ur hann a\u00f0 velja s\u00e9r vegarnesti \u00e1 listabrautinni. Hann getur fari\u00f0 a\u00f0 d\u00e6mi Georgs Hanssonar og teki\u00f0 vi\u00f0 \u00e1v\u00edsun fr\u00e1 G\u00fa\u00f0m\u00fansensb\u00fa\u00f0. Hann getur l\u00edka vali\u00f0 a\u00f0 hafa me\u00f0 s\u00e9r arfleif\u00f0ina \u00far Brekkukoti, bera vir\u00f0ingu fyrir menningu heimsins fyrir innan krosshli\u00f0i\u00f0 og gildum hans og taka me\u00f0 var\u00fa\u00f0 \u00fev\u00ed sem er fyrir utan \u00fea\u00f0. Framt\u00ed\u00f0 hans veltur \u00e1 \u00fev\u00ed hvorn kostinn hann k\u00fds s\u00e9r.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201e<strong>Gallalausasta verk\u201c Halld\u00f3rs Laxness<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deannig er h\u00e6gt a\u00f0 n\u00e1lgast Brekkukotsann\u00e1l \u00e1 fleiri en einn h\u00e1tt en h\u00e9r hafa a\u00f0eins tv\u00e6r lei\u00f0ir a\u00f0 s\u00f6gunni veri\u00f0 raktar. \u00deetta er ein af \u00e1sts\u00e6lustu sk\u00e1lds\u00f6gum Halld\u00f3rs Laxness og hefur h\u00fan veri\u00f0 \u00fe\u00fddd \u00e1 fj\u00f6lda tungum\u00e1la.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einnig hefur veri\u00f0 ger\u00f0 sj\u00f3nvarpskvikmynd upp \u00far verkinu sem frums\u00fdnd var snemma \u00e1rs 1973. M\u00f6nnum \u00feykir sagan au\u00f0skilin og falleg en undir lygnu yfirbor\u00f0i \u00f3lgar hins vegar \u00feungur straumur sem gefur b\u00f3kinni alvarlegan undirt\u00f3n \u00fer\u00e1tt fyrir k\u00edmnina sem er svo \u00e1berandi \u00ed textanum. Kristj\u00e1n Karlsson sag\u00f0i \u00ed d\u00f3mi um b\u00f3kina \u00feegar h\u00fan kom \u00fat: \u201eM\u00e9r er ekki lj\u00f3st, hvort \u00feessi s\u00e9rkennilega \u00edslenzka harmsaga me\u00f0 hi\u00f0 ind\u00e6la \u00edvaf muni ver\u00f0a talin me\u00f0 mestu verkum Halld\u00f3rs Kiljans Laxness en h\u00fan stendur allt um \u00fea\u00f0 sem \u00f3rengjanleg \u00e1v\u00edsun \u00e1 mannlegar sta\u00f0reyndir.\u201c Sigf\u00fas Da\u00f0ason var hins vegar ekki \u00ed nokkrum vafa \u00ed grein sinni um verki\u00f0 en \u00fear segir hann a\u00f0 \u201e<em>Brekkukotsann\u00e1ll<\/em> s\u00e9 \u201egallalausasta\u201c listaverk Halld\u00f3rs Kiljans Laxness.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Form\u00e1li a\u00f0 kilju\u00fatg\u00e1fu V\u00f6ku-Helgafells \u00e1 Brekkukotsann\u00e1l \u00e1ri\u00f0 1994<\/em><\/p>\r\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d3h\u00e6tt er a\u00f0 segja a\u00f0 menn hafi be\u00f0i\u00f0 me\u00f0 eftirv\u00e6ntingu eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 Halld\u00f3r Laxness sendi fr\u00e1 s\u00e9r n\u00fdja sk\u00e1lds\u00f6gu [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-45","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-formalar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/45","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=45"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/45\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":104029,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/45\/revisions\/104029"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=45"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=45"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=45"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}