{"id":48,"date":"2022-03-22T20:30:09","date_gmt":"2022-03-22T20:30:09","guid":{"rendered":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=48"},"modified":"2022-04-12T17:03:39","modified_gmt":"2022-04-12T17:03:39","slug":"2-islandsklukkan-formali","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=48","title":{"rendered":"\u00cdslandsklukkan \u2013 form\u00e1li"},"content":{"rendered":"\r\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" width=\"755\" height=\"1024\" class=\"wp-image-49\" src=\"https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-HKL-1945-Islandsklukkan-755x1024.jpg\" alt=\"\" srcset=\"https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-HKL-1945-Islandsklukkan-755x1024.jpg 755w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-HKL-1945-Islandsklukkan-600x814.jpg 600w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-HKL-1945-Islandsklukkan-221x300.jpg 221w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-HKL-1945-Islandsklukkan-768x1042.jpg 768w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/2-HKL-1945-Islandsklukkan.jpg 796w\" sizes=\"(max-width: 755px) 100vw, 755px\" \/>\r\n\r\n<\/figure>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Samt\u00edminn, hi\u00f0 i\u00f0andi l\u00edf umhverfis h\u00f6fundinn og \u00ed brj\u00f3sti hans, ney\u00f0ir upp\u00e1 hann yrkisefnum sem hann haf\u00f0i s\u00edst \u00f3ra\u00f0 fyrir, yrkisefnum sem hann hefur kanski fl\u00fai\u00f0 \u00e1rum saman, yrkisefnum sem hann mundi gefa aleigu s\u00edna, \u00fe\u00f3tt hann v\u00e6ri milj\u00f3nam\u00e6r\u00edngur, til a\u00f0 \u00feurfa aldrei a\u00f0 f\u00e6rast \u00ed f\u00e1ng. Til d\u00e6mis veit \u00e9g a\u00f0 h\u00f6fundur einn er n\u00fdbyrja\u00f0ur \u00e1 b\u00f3k sem hann hefur \u00ed \u00e1tj\u00e1n \u00e1r veri\u00f0 a\u00f0 bi\u00f0ja gu\u00f0ina a\u00f0 for\u00f0a s\u00e9r fr\u00e1 a\u00f0 skrifa. H\u00f6fundinum finst s\u00e9r verki\u00f0 ofvaxi\u00f0, hann hryllir vi\u00f0 \u00f6llu \u00feessu str\u00ed\u00f0andi l\u00edfi sem heimtar a\u00f0 hann gefi \u00fev\u00ed m\u00e1l og form, neitar \u00feverneitar og \u00fer\u00e1neitar a\u00f0 leggja sig \u00ed \u00feennan vo\u00f0a \u2013 en hann hefur n\u00fa einu sinni ve\u00f0dregi\u00f0 sig sk\u00f6punar\u00f6flum l\u00edfsins og \u00feau halda \u00e1fram a\u00f0 heimta hann \u00f3skiftan, og honum ver\u00f0ur ekki undankomu au\u00f0i\u00f0.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deannig kemst Halld\u00f3r Laxness a\u00f0 or\u00f0i \u00ed \u00fatvarpserindi \u00e1ri\u00f0 1942 og prenta\u00f0 var \u00ed <em>Vettv\u00e1ngi dagsins<\/em> sama \u00e1r undir nafninu \u201eH\u00f6fundurinn og verk hans\u201c. Enginn \u00fearf a\u00f0 fara \u00ed grafg\u00f6tur me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 h\u00f6fundurinn sem um r\u00e6\u00f0ir er Halld\u00f3r sj\u00e1lfur. Og b\u00f3kin sem hann hefur \u00ed \u00e1tj\u00e1n \u00e1r, e\u00f0a fr\u00e1 1924, viki\u00f0 s\u00e9r undan a\u00f0 skrifa er <em>\u00cdslandsklukkan<\/em>. Sk\u00e1ldverki\u00f0 sem n\u00fa er nefnt <em>\u00cdslandsklukkan<\/em> og prenta\u00f0 er h\u00e9r \u00ed einu lagi kom upphaflega \u00fat \u00ed \u00feremur hlutum en \u00feeir nefndust <em>\u00cdslandsklukkan<\/em> (1943), <em>Hi\u00f0 lj\u00f3sa man<\/em> (1944) og <em>Eldur \u00ed Kaupinhafn<\/em> (1946).<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00cdslandsklukkan<\/em> markar \u00e1kve\u00f0in t\u00edmam\u00f3t \u00e1 ferli Halld\u00f3rs: \u00feetta er s\u00f6guleg sk\u00e1ldsaga en \u00e1\u00f0ur haf\u00f0i hann rita\u00f0 s\u00f6gur \u00far samt\u00edmanum e\u00f0a n\u00e1l\u00e6gri fort\u00ed\u00f0 og fr\u00e1sagnarm\u00e1tinn er annar, hann n\u00e1lgast s\u00f6gu s\u00edna \u00e1 allt annan h\u00e1tt en \u00e1\u00f0ur. A\u00f0 auki m\u00e1 s\u00ed\u00f0an b\u00e6ta \u00fev\u00ed vi\u00f0 innan sviga a\u00f0 \u00feetta var fyrsta verk Laxness sem naut almennrar hylli en hann var \u00fe\u00f3 ekki lengi a\u00f0 splundra samst\u00e6\u00f0um lesendah\u00f3pnum me\u00f0 n\u00e6stu b\u00f3k sinni, <em>At\u00f3mst\u00f6\u00f0inni<\/em> (1948), sem kom eins og sprengja inn \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsumr\u00e6\u00f0una \u00e1 s\u00ednum t\u00edma. M\u00e1 segja a\u00f0 ekki hafi n\u00e1\u00f0st s\u00e1tt um hann \u00e1 n\u00fd fyrr en eftir a\u00f0 hann hlaut N\u00f3belsver\u00f0launin \u00ed b\u00f3kmenntum 1955, \u00e6\u00f0stu vi\u00f0urkenningu sem rith\u00f6fundi getur hlotnast \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legum vettvangi. \u00de\u00f3tt Halld\u00f3r nyti framan af ekki almennrar hylli l\u00e9t \u00fej\u00f3\u00f0in sig verk hans var\u00f0a, menn l\u00e1su \u00feau og t\u00f3ku eindregna afst\u00f6\u00f0u til \u00feeirra. Engum st\u00f3\u00f0 \u00e1 sama um b\u00e6kur Laxness.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00dej\u00f3\u00f0leg sk\u00e1ld og al\u00fej\u00f3\u00f0leg<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00cdslandsklukkan<\/em> gerist \u00e1 17. \u00f6ld, einu mesta ni\u00f0url\u00e6gingarskei\u00f0i \u00edslenskrar \u00fej\u00f3\u00f0ar. Fyrstu verk Halld\u00f3rs, <em>Barn n\u00e1tt\u00farunnar<\/em> (1919) og <em>Undir Helgahn\u00fak<\/em> (1924) eru sveitas\u00f6gur \u00ed g\u00f6mlum st\u00edl en <em>Vefarinn mikli fr\u00e1 Kasm\u00edr<\/em> (1927) var aftur \u00e1 m\u00f3ti n\u00fat\u00edmalegt verk, \u00fear t\u00f3kst sk\u00e1ldi\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 samt\u00edma sinn og hefur jafnvel veri\u00f0 sagt a\u00f0 me\u00f0 verkinu hefjist n\u00fat\u00edminn \u00ed \u00edslenskri sagnager\u00f0. Eftir <em>Vefarann<\/em> skrifar Halld\u00f3r s\u00f6gur \u00far samt\u00edmanum sem kalla m\u00e1 f\u00e9lagslegar s\u00f6gur, <em>S\u00f6lku V\u00f6lku<\/em> (1931\u201332), <em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/em> (1934\u201335) og <em>Heimslj\u00f3s<\/em> (1937\u201340). \u00cd \u00feeim deilir hann hart \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0skipulagi\u00f0 og ranglega skiptingu au\u00f0s, enda var hann \u00fe\u00e1 or\u00f0inn sannf\u00e6r\u00f0ur s\u00f3s\u00edalisti. B\u00e6kur hans fr\u00e1 \u00feessum t\u00edma ver\u00f0a \u00fe\u00f3 aldrei a\u00f0 klisjukenndum \u00e1r\u00f3\u00f0ursb\u00f3kmenntum eins og vins\u00e6ldir \u00feeirra enn \u00ed dag s\u00fdna. \u00cd <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em> sn\u00fdr Halld\u00f3r s\u00e9r hins vegar a\u00f0 fort\u00ed\u00f0inni, r\u00e6\u00f0ir vi\u00f0 samt\u00ed\u00f0 s\u00edna me\u00f0 s\u00f6gum aftan \u00far \u00f6ldum.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar Halld\u00f3r settist ni\u00f0ur til a\u00f0 skrifa s\u00f6guna af J\u00f3ni Hreggvi\u00f0ssyni, Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i \u00cdslandss\u00f3l og Arnasi Arn\u00e6usi geisa\u00f0i heimsstyrj\u00f6ld. Heimurinn var \u00ed b\u00e1li. St\u00f3r\u00fej\u00f3\u00f0ir hern\u00e1mu sm\u00e1\u00fej\u00f3\u00f0ir \u00e1n \u00feess a\u00f0 spyrja k\u00f3ng e\u00f0a prest. R\u00e9ttur einstaklings til l\u00edfs og frelsis var f\u00f3tum tro\u00f0inn. Og str\u00ed\u00f0i\u00f0 ger\u00f0i spurninguna um \u00fea\u00f0 hva\u00f0 ger\u00f0i \u00fej\u00f3\u00f0 a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 enn \u00e1leitnari en fyrr. Bretar hern\u00e1mu \u00cdsland 1940 og sagt var a\u00f0 \u00feeir hef\u00f0u einfaldlega veri\u00f0 \u00e1 undan \u00dej\u00f3\u00f0verjum sem \u00fe\u00e1 h\u00f6f\u00f0u m.a. n\u00e1\u00f0 Noregi og Danm\u00f6rku \u00e1 sitt vald. Jafnframt voru miklar umr\u00e6\u00f0ur um \u00fej\u00f3\u00f0lega list og \u00f3\u00fej\u00f3\u00f0lega \u2013 e\u00f0a al\u00fej\u00f3\u00f0lega \u2013 eftir \u00fev\u00ed hvernig menn litu \u00e1 m\u00e1li\u00f0, enda f\u00f3ru nasistar um \u00feessar mundir sem logi um akur. Halld\u00f3r fjallar \u00ed fyrrnefndri grein um \u00feessi m\u00e1l og segir \u00fear a\u00f0 list s\u00e9 ekki \u00ed e\u00f0li s\u00ednu \u00fej\u00f3\u00f0leg heldur al\u00fej\u00f3\u00f0leg, sam\u00fej\u00f3\u00f0leg. \u201eAndi hvers t\u00edma er ekki einskor\u00f0a\u00f0ur vi\u00f0 s\u00e9rstaka \u00fej\u00f3\u00f0, heldur heil menn\u00edngarsv\u00e6\u00f0i, margar \u00fej\u00f3\u00f0ir.\u201c S\u00ed\u00f0an segir hann:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Stundum r\u00edsa upp \u00feussar og segja a\u00f0 sk\u00e1ld eigi a\u00f0 vera \u00fej\u00f3\u00f0leg en ekki al\u00fej\u00f3\u00f0leg. H\u00e9r er eingin spurn\u00edng um hva\u00f0 eigi a\u00f0 vera, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er sta\u00f0reynd a\u00f0 \u00f6ll almennileg sk\u00e1ld eru b\u00e6\u00f0i \u00fej\u00f3\u00f0leg og al\u00fej\u00f3\u00f0leg \u00ed senn. Aftur\u00e1m\u00f3ti eru ekki til nein sk\u00e1ld sem eru \u00fej\u00f3\u00f0leg og a\u00f0eins \u00fej\u00f3\u00f0leg, einsog fasistar halda fram, og \u00fea\u00f0 er af \u00feeirri einf\u00f6ldu \u00e1st\u00e6\u00f0u a\u00f0 ekki er til neitt mannf\u00f3lk sem h\u00e6gt er a\u00f0 kalla \u00fej\u00f3\u00f0legt og a\u00f0eins \u00fej\u00f3\u00f0legt \u2026 G\u00f3\u00f0 b\u00f3k sem ritu\u00f0 er \u00ed K\u00edna er ritu\u00f0 fyrir \u00cdsland.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r v\u00edkur s\u00ed\u00f0an a\u00f0 str\u00ed\u00f0inu \u00ed framhaldi af \u00feessu og segir: \u201eJafnvel \u00e1 \u00feessum styrjaldart\u00edmum erum vi\u00f0 undir \u00e1hrifum fjarskyldustu og fjarl\u00e6gustu \u00fej\u00f3\u00f0a. Str\u00ed\u00f0 sem er h\u00e1\u00f0 hinumegin \u00e1 hnettinum er einnig vort str\u00ed\u00f0.\u201c \u00deannig m\u00e1 segja a\u00f0 \u00fe\u00f3tt <em>\u00cdslandsklukkan<\/em> s\u00e9 skrifu\u00f0 \u00e1 \u00edslensku um \u00cdslendinga, st\u00f6\u00f0u \u00edslenskrar \u00fej\u00f3\u00f0ar \u00e1 erfi\u00f0um t\u00edmum, \u00fe\u00e1 er h\u00fan l\u00edka al\u00fej\u00f3\u00f0legt verk; a\u00f0rar sm\u00e1\u00fej\u00f3\u00f0ir finna samsvaranir vi\u00f0 eigin s\u00f6gu \u00ed henni; velta fyrir s\u00e9r s\u00f6mu spurningunni um \u00fea\u00f0 hva\u00f0 geri \u00fe\u00e6r a\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ri \u00fej\u00f3\u00f0; einstaklingar finna samsv\u00f6run vi\u00f0 r\u00e9ttleysi mannsins gagnvart valdsm\u00f6nnum; saga elskenda sem er ei skapa\u00f0 nema skilja er ekki bundin \u00cdslandsstr\u00f6ndum og svo m\u00e6tti lengi telja, enda segir Halld\u00f3r \u00ed greininni sem fyrr var vitna\u00f0 til: \u201eT\u00fangurnar eru a\u00f0eins mismunandi ker fyrir hugsanir og hugmyndir sem eru sam\u00fej\u00f3\u00f0legri en nokkru sinni \u00e1\u00f0ur \u00ed s\u00f6gu heimsins.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deannig m\u00e1 segja a\u00f0 heimsstyrj\u00f6ldin s\u00ed\u00f0ari og a\u00f0dragandi hennar hafi \u00e1tt \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 Halld\u00f3r h\u00f3f a\u00f0 skrifa <em>\u00cdslandsklukkuna<\/em> eftir a\u00f0 hafa \u00fdtt henni \u00e1 undan s\u00e9r \u00ed \u00e1tj\u00e1n \u00e1r. Einnig er v\u00edst a\u00f0 sambandsslitin vi\u00f0 Dani hafa haft nokku\u00f0 a\u00f0 segja en \u00feau voru \u00ed brennidepli \u00e1 \u00feessum \u00e1rum og 1944 stofnu\u00f0u \u00cdslendingar l\u00fd\u00f0veldi \u00e1 \u00deingv\u00f6llum. Norr\u00e6n sk\u00e1ld \u00f6nnur leitu\u00f0u einnig \u00e1 vit fort\u00ed\u00f0ar \u00ed s\u00f6gu \u00fej\u00f3\u00f0a sinna \u00e1 styrjaldar\u00e1runum. A\u00f0 hluta til m\u00e1 rekja \u00fea\u00f0 til \u00feess a\u00f0 dulb\u00faa var\u00f0 h\u00e6ttuleg vi\u00f0fangsefni \u00e1 l\u00ed\u00f0andi stund en fjarl\u00e6g\u00f0 \u00ed t\u00edma varpa\u00f0i einnig sk\u00e6rara lj\u00f3si \u00e1 hin \u00fej\u00f3\u00f0legu og sammannlegu ver\u00f0m\u00e6ti sem barist var um. Halld\u00f3r var \u00feannig ekki einn um a\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r a\u00f0 ritun s\u00f6gulegra sk\u00e1ldsagna. Hins vegar er \u00feess a\u00f0 geta a\u00f0 \u00e1 \u00e1runum fyrir s\u00ed\u00f0ari heimsstyrj\u00f6ld var hann \u00feegar farinn a\u00f0 vi\u00f0a a\u00f0 s\u00e9r \u00fdmsu efni sem hann \u00e1tti eftir a\u00f0 nota \u00ed <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em>. Og aldrei er h\u00e6gt a\u00f0 segja a\u00f0 einhverjar \u00e1kve\u00f0nar ytri a\u00f0st\u00e6\u00f0ur \u00ed l\u00edfi h\u00f6fundar, svo sem heimsvi\u00f0bur\u00f0ir og t\u00ed\u00f0arandi, r\u00e1\u00f0i \u00fev\u00ed a\u00f0 hann sest ni\u00f0ur og skrifar um tilteki\u00f0 efni, jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 hafi leita\u00f0 \u00e1 hann h\u00e1tt \u00ed tvo \u00e1ratugi.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Pers\u00f3nurnar og fyrirmyndir \u00feeirra<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r Laxness sty\u00f0st mj\u00f6g vi\u00f0 s\u00f6gulegar heimildir \u00ed <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em> og v\u00edkur \u00ed engu fr\u00e1 s\u00f6gulegum sta\u00f0reyndum svo stingi \u00ed augu, \u00fe\u00f3tt hann t\u00falki fort\u00ed\u00f0ina \u00e1 sinn h\u00e1tt, sveigi hana undir l\u00f6gm\u00e1l sk\u00e1ldskaparins. Og sj\u00e1lfur hefur Halld\u00f3r bent \u00e1 a\u00f0 \u00ed verkinu hafi hann vitna\u00f0 til \u00fdmissa atbur\u00f0a \u201esem vir\u00f0ast t\u00f3mt gr\u00edn og vitleysa\u201c, en s\u00e9u \u00fe\u00f3 s\u00f6gulegir. A\u00f0alpers\u00f3nur <em>\u00cdslandsklukkunnar<\/em> eiga s\u00e9r allar s\u00f6gulegar fyrirmyndir.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Segja m\u00e1 a\u00f0 kveikjan a\u00f0 verkinu s\u00e9 br\u00e9f sem J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson sendi \u00c1rna Magn\u00fassyni \u00e1ri\u00f0 1708 og prenta\u00f0 er aftast \u00ed \u00feessari b\u00f3k \u00fear sem hann l\u00fdsir gl\u00edmu sinni vi\u00f0 r\u00e9ttv\u00edsina. \u00deessa s\u00f6gu kynnti J\u00f3n Helgason pr\u00f3fessor \u00ed Kaupmannah\u00f6fn Halld\u00f3ri \u00feegar \u00e1ri\u00f0 1924 en t\u00edu \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar ger\u00f0i hann svo stutt yfirlit, t\u00edu til tuttugu s\u00ed\u00f0ur, um gang s\u00f6gunnar en h\u00f3fst ekki almennilega handa fyrr en um 1940. Br\u00e9f J\u00f3ns Hreggvi\u00f0ssonar segir merka s\u00f6gu um r\u00e9ttl\u00e6ti \u00e1 \u00cdslandi \u00e1 17. \u00f6ld. Halld\u00f3r fylgir \u00fer\u00e6\u00f0inum hj\u00e1 honum en v\u00edkur til \u00fdmsu til a\u00f0 fella betur a\u00f0 l\u00f6gm\u00e1lum sk\u00e1ldskaparins. J\u00f3ni Hreggvi\u00f0ssyni var \u00feannig \u00ed raun og veru gefi\u00f0 a\u00f0 s\u00f6k a\u00f0 hafa drekkt b\u00f6\u00f0li s\u00ednum, Sigur\u00f0i Snorrasyni, \u00ed forarpytti eftir a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00e1samt s\u00fdslumanni og fleirum or\u00f0i\u00f0 \u201eofdrukknir\u201c og ri\u00f0i\u00f0 \u00fat \u00ed n\u00f3ttina, \u00f3vissir um stefnu og \u00e1ttir. Hann var d\u00e6mdur til dau\u00f0a en slapp \u00far haldi \u00e1 Bessast\u00f6\u00f0um, fl\u00fa\u00f0i til Hollands og \u00fea\u00f0an til Danmerkur \u00fear sem hann f\u00e9kk \u00ed gegn fyrir h\u00e6star\u00e9tti a\u00f0 m\u00e1l hans skyldi aftur upp teki\u00f0 \u00e1 Al\u00feingi. Sigur\u00f0ur Bj\u00f6rnsson l\u00f6gma\u00f0ur og Heideman landf\u00f3geti stungu m\u00e1linu hins vegar undir st\u00f3l, h\u00e6star\u00e9ttarstefnan var aldrei birt \u00ed r\u00e9ttinum og J\u00f3n sendur heim me\u00f0 fyrirskipun um a\u00f0 umgangast a\u00f0ra menn fri\u00f0samlega. Loks eftir tuttugu \u00e1r var Sigur\u00f0i og J\u00f3ni stefnt til Al\u00feingis 1708 \u00ed sambandi vi\u00f0 almenna ranns\u00f3kn \u00e1 r\u00e9ttarfari og vafas\u00f6mum d\u00f3msm\u00e1lum. \u00c1rni Magn\u00fasson og P\u00e1ll V\u00eddal\u00edn voru \u00fear umbo\u00f0sd\u00f3marar og var Sigur\u00f0ur d\u00e6mdur fr\u00e1 \u00e6ru og emb\u00e6tti en J\u00f3ni gert a\u00f0 \u00fatvega s\u00e9r n\u00fdja h\u00e6star\u00e9ttarstefnu. Sigur\u00f0i t\u00f3kst hins vegar a\u00f0 f\u00e1 m\u00e1li\u00f0 teki\u00f0 fyrir \u00ed yfirr\u00e9tti \u00e1 Al\u00feingi 1710 \u00fear sem J\u00f3n var d\u00e6mdur til \u00fer\u00e6lkunar \u00e1 Brimarh\u00f3lmi en \u00c1rna t\u00f3kst a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 d\u00f3minum yr\u00f0i fulln\u00e6gt. 1715 f\u00e9ll svo loks d\u00f3mur \u00fear sem J\u00f3n var s\u00fdkna\u00f0ur af mor\u00f0inu, \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1rum eftir a\u00f0 hann var d\u00e6mdur til dau\u00f0a. \u00d3tr\u00faleg saga en s\u00f6nn um kotb\u00f3nda sem ver\u00f0ur f\u00f3rnarlamb deilna emb\u00e6ttismanna.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1rni \u00c1rnason e\u00f0a Arnas Arn\u00e6us eins og hann er jafnan nefndur \u00ed <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em> \u00e1 s\u00e9r fyrirmyndir \u00ed \u00c1rna Magn\u00fassyni handritasafnara og Sk\u00fala Magn\u00fassyni landf\u00f3geta. \u00c1rni \u00e1tti \u00e1samt P\u00e1li V\u00eddal\u00edn \u00ed bar\u00e1ttu vi\u00f0 Sigur\u00f0 Bj\u00f6rnsson l\u00f6gmann og lauk \u00feeirri gl\u00edmu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Sigur\u00f0ur var a\u00f0 lokum s\u00fdkna\u00f0ur \u00ed h\u00e6star\u00e9tti en P\u00e1ll og \u00c1rni d\u00e6mdir til a\u00f0 grei\u00f0a m\u00e1lskostna\u00f0. \u00cd \u00feessari togstreitu var\u00f0 m\u00e1l J\u00f3ns Hreggvi\u00f0ssonar n\u00e1nast a\u00f0 a\u00f0alatri\u00f0i og \u00fea\u00f0 vir\u00f0ist hafa or\u00f0i\u00f0 \u00c1rna metna\u00f0arm\u00e1l a\u00f0 f\u00e1 J\u00f3n s\u00fdkna\u00f0an til a\u00f0 hefna s\u00edn fyrir ni\u00f0urst\u00f6\u00f0una \u00ed \u00e1t\u00f6kum \u00feeirra l\u00f6gmanns.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deri\u00f0ja a\u00f0alpers\u00f3na s\u00f6gunnar, Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur \u00cdslandss\u00f3l, er hins vegar a\u00f0 mestu leyti sk\u00e1ldskapur. H\u00fan \u00e1 s\u00e9r \u00fe\u00f3 a\u00f0 nokkru leyti fyrirmynd \u00ed \u00de\u00f3rd\u00edsi J\u00f3nsd\u00f3ttur, konu Magn\u00fasar Sigur\u00f0ssonar \u00ed Br\u00e6\u00f0ratungu. \u00de\u00f3rd\u00eds og biskupsfr\u00fain \u00ed Sk\u00e1lholti voru systur en ekki d\u00e6tur l\u00f6gmanns eins og \u00ed s\u00f6gunni. \u00deau \u00c1rni \u00e1ttu a\u00f0 hafa \u00e1tt \u00ed \u00e1starsambandi \u00ed \u00e6sku. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gera Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i a\u00f0 d\u00f3ttur l\u00f6gmannsins eykur h\u00f6fundurinn mj\u00f6g \u00e1 spennuna \u00ed sambandi \u00feeirra Arn\u00e6usar. Sem erindreki konungs d\u00e6mir Arnas f\u00f6\u00f0ur hennar fr\u00e1 \u00e6ru og emb\u00e6tti en Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur heldur m\u00e1linu \u00e1fram stolt og \u00e1kve\u00f0in eftir dau\u00f0a f\u00f6\u00f0ur s\u00edns. Hei\u00f0ur \u00e6ttarinnar krefst \u00feess a\u00f0 Arnasi s\u00e9 komi\u00f0 \u00e1 kn\u00e9. \u00c1stin til hans er s\u00f6m en h\u00fan kemur \u00feessu m\u00e1li ekki vi\u00f0.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fj\u00f6lmargar a\u00f0rar pers\u00f3nur s\u00f6gunnar eiga s\u00e9r s\u00f6gulegar fyrirmyndir og atbur\u00f0ir tengdir \u00feeim ger\u00f0ust \u00ed raun og veru \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 ver\u00f0i ekki t\u00edunda\u00f0 h\u00e9r. Halld\u00f3r hefur \u00fev\u00ed haft \u00far miklum efnivi\u00f0i a\u00f0 mo\u00f0a en \u00fea\u00f0 eitt og s\u00e9r er ekki n\u00f3g, \u2013 \u00fe\u00e1 er eftir a\u00f0 g\u00e6\u00f0a efni\u00f0 l\u00edfi og b\u00faa til \u00far \u00fev\u00ed g\u00f3\u00f0a sk\u00e1lds\u00f6gu. A\u00f0 \u00f6\u00f0rum kosti f\u00e9lli \u00fea\u00f0 dautt ni\u00f0ur \u00e1 fyrstu s\u00ed\u00f0u.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00d3\u00fearfa or\u00f0askak lagt ni\u00f0ur<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r velur \u00ed <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em> fr\u00e1sagnarm\u00e1ta sem hann haf\u00f0i ekki nota\u00f0 \u00e1\u00f0ur \u00ed verkum s\u00ednum. A\u00f0 \u00fev\u00ed leyti var h\u00fan einnig n\u00fdjung \u00e1 h\u00f6fundarferli hans. Hann l\u00fdsir \u00f6llu utan fr\u00e1, \u00fatsk\u00fdrir aldrei hva\u00f0 pers\u00f3num b\u00fdr \u00ed huga, l\u00e6tur \u00fe\u00e6r l\u00fdsa s\u00e9r me\u00f0 or\u00f0um s\u00ednum en beitir einnig umhverfisl\u00fdsingum markvisst \u00ed \u00fev\u00ed skyni. \u00deessa a\u00f0fer\u00f0 \u00feiggur hann \u00ed arf fr\u00e1 \u00feeim er ritu\u00f0u fornar b\u00f3kmenntir okkar. Sj\u00e1lfur segir Halld\u00f3r um \u00feetta \u00ed samtali vi\u00f0 Matth\u00edas Johannessen \u00ed <em>Skeggr\u00e6\u00f0um gegnum t\u00ed\u00f0ina<\/em>:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00deegar \u00e9g skrifa\u00f0i \u00cdslandsklukkuna var \u00e9g kominn \u00e1 \u00fe\u00e1 sko\u00f0un, a\u00f0 nau\u00f0synlegt v\u00e6ri a\u00f0 strika sem mest \u00fat, og s\u00e1, \u00feegar \u00e9g leit \u00ed m\u00ednar g\u00f6mlu b\u00e6kur, a\u00f0 \u00fear var v\u00ed\u00f0a h\u00e6gt a\u00f0 strika \u00fat heilar og h\u00e1lfar setningar, stundum a\u00f0ra hverja setningu, jafnvel heila kap\u00edtula. \u00cdslandsklukkan er dregin saman \u00ed forminu. \u00d3\u00fearfa or\u00f0askak er lagt ni\u00f0ur, aldrei sagt hva\u00f0 ma\u00f0urinn hugsar, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur \u00f3endanlegt ef \u00e1 a\u00f0 l\u00fdsa \u00fat \u00ed \u00e6sar hva\u00f0 allir hugsa, og hl\u00fdtur a\u00f0 enda \u00ed \u00f3skapna\u00f0i sem er andst\u00e6\u00f0ur s\u00f6gu \u2026 \u00cd \u00cdslandsklukkunni reyni \u00e9g a\u00f0 segja me\u00f0 sem f\u00e6stum or\u00f0um, hvernig pers\u00f3nan kemur fram \u00ed hverju atviki, hva\u00f0 h\u00fan talar og hvernig h\u00fan svarar heiminum me\u00f0 heg\u00f0an sinni.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Margslungi\u00f0 verk<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00cdslandsklukkan<\/em> er margslungi\u00f0 verk og h\u00e6gt a\u00f0 t\u00falka \u00fea\u00f0 \u00e1 \u00fdmsan veg, allt eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 hverri a\u00f0alpers\u00f3nanna \u00feriggja vi\u00f0 beinum kastlj\u00f3sinu en \u00ed hverju bindi s\u00f6gunnar er ein alltaf fyrirfer\u00f0armest. \u00cd fyrsta hluta, <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em>, er J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson b\u00f3ndi \u00e1 Rein mest \u00e1berandi, \u00ed \u00f6\u00f0rum hluta, <em>Hinu lj\u00f3sa mani<\/em>, er Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir Eydal\u00edn \u00ed brennidepli og \u00ed \u00feri\u00f0ja og s\u00ed\u00f0asta hluta, <em>Eldi \u00ed Kaupinhafn<\/em>, fer mest fyrir Arnasi Arn\u00e6usi.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson er \u00ed brennidepli er h\u00e6gt a\u00f0 leggja s\u00f6guna \u00fat \u00e1 \u00feann veg a\u00f0 h\u00fan segi fr\u00e1 \u00fev\u00ed hvernig valdi\u00f0 r\u00eds einstaklingi yfir h\u00f6fu\u00f0. Honum ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00e1 a\u00f0 gr\u00edpa sn\u00e6ri og upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed er eins og hann s\u00e9 leiksoppur \u00f6rlaganna. Leit hans a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti ver\u00f0ur l\u00f6ng og str\u00f6ng, hann ver\u00f0ur a\u00f0 pe\u00f0i \u00ed valdatafli \u00fear sem hann sj\u00e1lfur skiptir litlu m\u00e1li eins og Arnas Arn\u00e6us segir vi\u00f0 hann eftir a\u00f0 J\u00f3n er b\u00fainn a\u00f0 hlaupa yfir \u00fea\u00f0 mj\u00faka Holland og kominn til Kaupmannahafnar: \u201e\u00feitt m\u00e1l kemur \u00fe\u00e9r sj\u00e1lfum l\u00edti\u00f0 vi\u00f0 J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson. \u00dea\u00f0 er miklu st\u00e6rra m\u00e1l. Hverjum er borgnara \u00fe\u00f3 h\u00f6fu\u00f0 eins betlara s\u00e9 leyst? Ein \u00fej\u00f3\u00f0 lifir ekki af n\u00e1\u00f0.\u201c Einstaklingurinn skiptir ekki lengur m\u00e1li heldur heildin, hann stendur frammi fyrir valdi sem er \u00f3skiljanlegt og \u00f3\u00e1\u00fereifanlegt. R\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 ver\u00f0ur afst\u00e6tt, Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur spyr hann hvort honum hafi aldrei dotti\u00f0 \u00ed hug a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 og r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 v\u00e6ru fr\u00e6ndsystkin og r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 mi\u00f0a\u00f0i a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tryggja f\u00e1t\u00e6kum manni l\u00edfi\u00f0 en J\u00f3n svarar \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hafi aldrei vita\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti mi\u00f0a a\u00f0 \u00f6\u00f0ru en svipta f\u00e1t\u00e6ka menn l\u00edfinu. Fyrir Arnasi sn\u00fdr m\u00e1li\u00f0 hins vegar \u00f6\u00f0ruv\u00edsi vi\u00f0: Takist r\u00e9tti a\u00f0 sanna gl\u00e6p \u00e1 saklausan mann er hann sekur. \u201e\u00dea\u00f0 er h\u00f6r\u00f0 kenn\u00edng; en \u00e1n hennar mundum vi\u00f0 ekki hafa r\u00e9ttv\u00edsi.\u201c L\u00edf sm\u00e6lingjans er me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um aukaatri\u00f0i, r\u00e9ttarkerfi\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 hafa sinn gang, \u2013 eins \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 kunni a\u00f0 hafa rangt fyrir s\u00e9r. Jafnvel Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur v\u00edkur a\u00f0 \u00fev\u00ed sama: \u201eHafi n\u00fa r\u00e9ttinum skeika\u00f0, og s\u00e9 J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson saklaus, er \u00fe\u00e1 ekki r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 meira vir\u00f0i en h\u00f6fu\u00f0 eins betlara? \u2013 jafnvel \u00fe\u00f3 \u00fev\u00ed kunni a\u00f0 skeika endrum og eins.\u201c \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed kannski ekki a\u00f0 undra \u00fe\u00f3tt J\u00f3ni ver\u00f0i a\u00f0 or\u00f0i: \u201eVont er \u00feeirra r\u00e1ngl\u00e6ti, verra \u00feeirra r\u00e9ttl\u00e6ti.\u201c J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson er jafnframt anna\u00f0 og meira en venjulegur kotb\u00f3ndi, hann ver\u00f0ur \u00ed s\u00f6gunni a\u00f0 t\u00e1kni fyrir \u00ferautseigju \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00e1 erfi\u00f0um t\u00edmum, fulltr\u00fai soltins og illa leikins \u00edslensks almennings sem m\u00e1 s\u00edn einskis gagnvart hinu \u00f3pers\u00f3nulega valdi.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef Arnas Arn\u00e6us er f\u00e6r\u00f0ur \u00ed brennipunkt sj\u00e1um vi\u00f0 allt a\u00f0ra s\u00f6gu \u00ed <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em>. Kristj\u00e1n Karlsson hefur \u00e1 \u00fea\u00f0 bent a\u00f0 l\u00f6gm\u00e1l verksins s\u00e9u l\u00f6gm\u00e1l hins pers\u00f3nubundna harmleiks eins og \u00feau birtast \u00ed gr\u00edskum harmleikjum, leikritum Shakespeare og \u00cdslendingas\u00f6gum. Arnas er \u00fe\u00e1 hin harmr\u00e6na hetja sem form s\u00f6gunnar er bundi\u00f0. Forl\u00f6g hans eru hi\u00f0 \u00fer\u00edtekna h\u00f6fu\u00f0\u00feema \u00fer\u00edleiksins. \u00deetta megin\u00feema er trygg\u00f0rof e\u00f0a svik. Hann sv\u00edkur Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i \u00ferisvar sinnum: fyrst \u00ed <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em> fyrir hinar fornu b\u00e6kur, aftur \u00ed <em>Hinu lj\u00f3sa mani<\/em> fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 og loks fyrir framt\u00ed\u00f0 landsins sj\u00e1lfs \u00ed <em>Eldi \u00ed Kaupinhafn<\/em>. \u00de\u00f3 ver\u00f0ur mikill hluti hinna fornu handrita eldi a\u00f0 br\u00e1\u00f0, r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 glatar merkingu \u00ed pers\u00f3nulegum og p\u00f3lit\u00edskum \u00e1t\u00f6kum og framt\u00ed\u00f0 landsins er ekki bj\u00f6rt \u00ed s\u00f6gulok. Arnas er a\u00f0 lokum sigra\u00f0ur ma\u00f0ur en \u00fea\u00f0 eru einmitt l\u00f6gm\u00e1l harmleiksins; \u00fear fer \u00e6vinlega allt illa a\u00f0 lokum. Ekki stafa forl\u00f6g hans af maklegum m\u00e1lagj\u00f6ldum heldur er \u00fea\u00f0 \u00f3hamingja hans sem r\u00e6\u00f0ur. Algengasta verkf\u00e6ri \u00f6rlaganna \u00ed harmleikjum er ofmetna\u00f0ur, \u00fea\u00f0 sem Grikkir k\u00f6llu\u00f0u \u201ehybris\u201c. Arnas \u00e6tlar s\u00e9r ofurmannlegt hlutverk, sv\u00edkur hi\u00f0 mannlega fyrir \u00e6\u00f0ri tilgang, freistar \u00feess a\u00f0 sveigja forl\u00f6gin undir vilja sinn. \u00dev\u00ed fer sem fer. Hann \u00e1 \u00fe\u00f3 enn \u00feann m\u00f6guleika a\u00f0 skilja \u00f6rl\u00f6g s\u00edn, j\u00e1tast undir \u00feau: \u201eN\u00fa er best go\u00f0in r\u00e1\u00f0i. \u00c9g er \u00fereyttur\u201c, segir Arnas \u00feegar hann situr eftir sigra\u00f0ur ma\u00f0ur. \u00d6rl\u00f6g Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ar m\u00e1 skilja \u00e1 s\u00f6mu forsendum. \u00deegar \u00ed fyrstu b\u00f3k s\u00f6gunnar segist h\u00fan heldur vilja \u00feann versta en \u00feann n\u00e6stbesta. \u00cd lokin gefur h\u00fan sig \u00f6rl\u00f6gunum \u00e1 vald og giftist \u00feeim n\u00e6stbesta.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Segja m\u00e1 a\u00f0 \u00ed Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i \u00cdslandss\u00f3l sameinist allt hi\u00f0 torr\u00e1\u00f0na og torg\u00e6ta \u00ed l\u00edfi \u00fej\u00f3\u00f0arinnar, \u00e6vint\u00fdri\u00f0 og draumurinn ofar dapurlegri r\u00famhelgi. H\u00fan er \u00e1lfkonan, \u00e1lfakroppurinn mj\u00f3i: \u201eMe\u00f0 gullband um sig mi\u00f0ja \u00fear rau\u00f0ur loginn brann\u201c. \u00de\u00f3tt h\u00fan segi a\u00f0 vettvangur dagsins s\u00e9 ekki hennar sta\u00f0ur og sterkir menn r\u00edki yfir deginum \u00fe\u00e1 er h\u00fan engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur \u00fe\u00e1tttakandi \u00ed refsk\u00e1k r\u00e9ttv\u00edsinnar, gl\u00edmir \u00e1 \u00feeim vettvangi vi\u00f0 Arnas \u00fe\u00f3tt h\u00fan elski hann. Stolt hennar krefst \u00feess. H\u00fan er sterk og heilsteypt, \u00fea\u00f0 g\u00f3\u00f0a afl sem fyrirgefur flest, \u201es\u00fa sanna drotn\u00edng alls Nor\u00f0urheims\u201c eins og J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson kemst a\u00f0 or\u00f0i. H\u00fan er s\u00fa sem heldur fram hei\u00f0ri landsins, hann er \u00fea\u00f0 sem allt sn\u00fdst um. H\u00fan sj\u00e1lf skiptir ekki m\u00e1li ef s\u00f3mi lands og \u00e6ttar er \u00ed ve\u00f0i eins og s\u00e9st \u00ed \u00fev\u00ed sem h\u00fan bi\u00f0ur J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson a\u00f0 skila til Arnasar \u00ed Kaupmannah\u00f6fn: \u201eSeg honum ef minn herra geti bjarga\u00f0 s\u00f3ma \u00cdslands, \u00fe\u00f3tt mig \u00e1falli sm\u00e1n, skal \u00fe\u00f3 andlit hans jafnan l\u00fdsa \u00feessu mani.\u201c Raunar er eins og henni finnist einstaklingarnir ekki skipta m\u00e1li heldur or\u00f0st\u00edr lands og \u00fej\u00f3\u00f0ar, \u2013 \u00fej\u00f3\u00f0arstolti\u00f0 er ofar \u00f6llu. \u00deetta s\u00e9st gl\u00f6gglega \u00ed samtali hennar vi\u00f0 Gullinl\u00f3 h\u00f6fu\u00f0smann \u00cdslands:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>M\u00e1vera sigra\u00f0ri \u00fej\u00f3\u00f0 s\u00e9 best a\u00f0 \u00fat\u00feurkast: ekki me\u00f0 or\u00f0i skal \u00e9g bi\u00f0ja \u00edslenskum v\u00e6g\u00f0ar. V\u00e9r \u00edslenskir erum sannarlega ekki ofg\u00f3\u00f0ir a\u00f0 deya. Og l\u00edfi\u00f0 er oss laungu einskisvert. A\u00f0eins eitt getum v\u00e9r ekki mist me\u00f0an einn ma\u00f0ur, hvortheldur r\u00edkur e\u00f0a f\u00e1t\u00e6kur, stendur uppi af \u00feessu f\u00f3lki; og jafnvel dau\u00f0ir getum v\u00e9r ekki veri\u00f0 \u00feess \u00e1n; og \u00feetta er \u00fea\u00f0 sem um er tala\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed gamla kv\u00e6\u00f0i, \u00fea\u00f0 sem v\u00e9r k\u00f6llum or\u00f0st\u00edr \u2026<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kv\u00e6\u00f0i\u00f0 gamla sem h\u00fan v\u00edsar til er H\u00e1vam\u00e1l og hefur h\u00fan vitna\u00f0 til \u00feess fyrr \u00ed samtali \u00feeirra: \u201e\u00fe\u00f3 ma\u00f0ur missi f\u00e9 og fr\u00e6ndur og deyi loks sj\u00e1lfur, \u00fe\u00e1 sakar \u00fea\u00f0 ekki hafi ma\u00f0ur geti\u00f0 s\u00e9r or\u00f0st\u00edr.\u201c Hann er \u00fea\u00f0 sem allt sn\u00fdst um. Af \u00feeim s\u00f6kum er kannski vafasamt a\u00f0 segja a\u00f0 Arnas sv\u00edki e\u00f0a selji Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i \u00ed lokin fyrir framt\u00ed\u00f0 landsins. \u00deau hittast um n\u00f3tt \u00e1 gistih\u00fasi \u00ed Kaupmannah\u00f6fn og hann segir henni a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0verjum hafi bo\u00f0ist \u00cdsland til kaups og \u00feeir vilji f\u00e1 hann fyrir landstj\u00f3ra. Saman byggja \u00feau upp draums\u00fdn um fagurt mannl\u00edf \u00fear sem \u00feau b\u00faa saman \u00e1 Bessast\u00f6\u00f0um, f\u00f3lkinu l\u00ed\u00f0ur vel og \u00feau r\u00ed\u00f0a um landi\u00f0 \u00e1 hv\u00edtum hestum. Loksins er sem elskendurnir geti n\u00e1\u00f0 saman, \u2013 \u00ed skj\u00f3li erlends valds. \u00ddmsir segja a\u00f0 Arnas sj\u00e1i a\u00f0 s\u00e9r, flytji \u00fe\u00fdskum \u00feau skilabo\u00f0 fr\u00e1 sj\u00e1lfum s\u00e9r a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 blekking, hann geti ekki teki\u00f0 vi\u00f0 \u00feessu emb\u00e6tti; s\u00e1 sem bj\u00f3\u00f0i landi\u00f0 falt geti ekki selt \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann s\u00e9 ekki eigandi \u00feess. L\u00fdkur hann r\u00e6\u00f0u sinni me\u00f0 \u00feeim or\u00f0um a\u00f0 spyrja hver v\u00e6ri or\u00f0inn hlutur \u00feeirrar \u00fej\u00f3\u00f0ar sem skrifa\u00f0i fr\u00e6gar b\u00e6kur \u00feegar risnir v\u00e6ru \u00e1 \u00cdslandsstr\u00f6nd \u00fe\u00fdskir fiskib\u00e6ir me\u00f0 \u00fe\u00fdskum k\u00f6stulum og m\u00e1lali\u00f0i? \u201e\u00feeir \u00edslensku mundu \u00fe\u00e1 \u00ed h\u00e6sta lagi ver\u00f0a feitir \u00fej\u00f3nar \u00fe\u00fdsks leppr\u00edkis. Feitur \u00fej\u00f3nn er ekki mikill ma\u00f0ur. Bar\u00f0ur \u00fer\u00e6ll er mikill ma\u00f0ur, \u00fev\u00ed \u00ed hans brj\u00f3sti \u00e1 frelsi\u00f0 heima.\u201c Ef mi\u00f0a\u00f0 er vi\u00f0 a\u00f0 fyrir Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i vaki \u00fea\u00f0 eitt a\u00f0 halda fram hei\u00f0ri landsins, or\u00f0st\u00edr \u00feess, liggur beint vi\u00f0 a\u00f0 \u00e6tla a\u00f0 h\u00fan r\u00edfi ni\u00f0ur draums\u00fdn \u00feeirra, komi Arnasi \u00ed skilning um a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 t\u00f3m blekking en ekki \u00f6fugt. \u00c1 eftir er hann enda eins og rj\u00fakandi r\u00fast, ekkert skiptir hann lengur m\u00e1li \u00ed l\u00edfinu, honum er sama \u00fe\u00f3tt b\u00e6kurnar brenni; allt er hruni\u00f0.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hjartsl\u00e1ttur sk\u00e1lds og l\u00ed\u00f0andi stundar<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deannig er h\u00e6gt a\u00f0 velta fyrir s\u00e9r \u00fdmsum lei\u00f0um til a\u00f0 t\u00falka \u00fea\u00f0 mikla verk <em>\u00cdslandsklukkuna<\/em>. H\u00fan hefur enda veri\u00f0 landsm\u00f6nnum hugleikin allt fr\u00e1 \u00fatkomu hennar en einnig noti\u00f0 vins\u00e6lda erlendis, veri\u00f0 gefin \u00fat \u00ed \u00e1 \u00feri\u00f0ja tug \u00fej\u00f3\u00f0landa. Halld\u00f3r Laxness samdi sj\u00e1lfur leikger\u00f0 upp \u00far verkinu sem nefnd var <em>Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur \u00cdslandss\u00f3l<\/em> og frums\u00fdnd var vi\u00f0 opnun \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins 1950. Leikriti\u00f0 hefur margoft veri\u00f0 sett upp v\u00ed\u00f0a um land. Sagan um J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson b\u00f3nda \u00e1 Rein, Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i \u00cdslandss\u00f3l og Arnas Arn\u00e6us sem str\u00edddi \u00e1 huga Laxness \u00ed \u00e1tj\u00e1n \u00e1r hefur \u00feannig lifa\u00f0 g\u00f3\u00f0u l\u00edfi me\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0inni og mun sj\u00e1lfsagt gera \u00fea\u00f0 um \u00f3komin \u00e1r enda vir\u00f0ist \u00f3tti sk\u00e1ldsins vi\u00f0 a\u00f0 verki\u00f0 v\u00e6ri honum ofvaxi\u00f0 hafa veri\u00f0 me\u00f0 \u00f6llu \u00e1st\u00e6\u00f0ulaus. Efni \u00feess \u00e1 st\u00f6\u00f0ugt erindi vi\u00f0 okkur \u00fev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i sm\u00e1\u00fej\u00f3\u00f0ar hefur aldrei veri\u00f0 sj\u00e1lfsagt. En \u00fea\u00f0 er ekki n\u00f3g a\u00f0 efni verksins s\u00e9 br\u00fdnt, \u00fea\u00f0 h\u00f6f\u00f0a\u00f0i ekki til okkar nema \u00fea\u00f0 v\u00e6ri sett saman af miklum hagleik. Peter Hallberg segir um <em>\u00cdslandsklukkuna<\/em> \u00ed b\u00f3k sinni <em>H\u00fasi sk\u00e1ldsins<\/em>:<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00cd \u00cdslandsklukkunni hefur Halld\u00f3r af \u00f3vi\u00f0jafnanlegri snilld endurl\u00edfga\u00f0 li\u00f0na t\u00ed\u00f0 \u00ed landi s\u00ednu. H\u00fan r\u00eds \u00far grimmum e\u00f0a gr\u00e1tbroslegum hversdagsleika upp til hinnar mestu fegur\u00f0ar og harmbundins mikilleika. En \u00fea\u00f0 m\u00e1 l\u00edka heyra \u00e1kafan hjartsl\u00e1tt sk\u00e1ldsins og l\u00ed\u00f0andi stundar \u00e1 \u00cdslandi \u00ed \u00feessu verki.<\/em><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Form\u00e1li a\u00f0 \u00fatg\u00e1fu V\u00f6ku-Helgafells \u00e1 <em>\u00cdslandsklukkunni<\/em> \u00ed kilju \u00e1ri\u00f0 1994<\/p>\r\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Samt\u00edminn, hi\u00f0 i\u00f0andi l\u00edf umhverfis h\u00f6fundinn og \u00ed brj\u00f3sti hans, ney\u00f0ir upp\u00e1 hann yrkisefnum sem hann haf\u00f0i s\u00edst \u00f3ra\u00f0 fyrir, [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-48","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-formalar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/48","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=48"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/48\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":104032,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/48\/revisions\/104032"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=48"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=48"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=48"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}