{"id":51,"date":"2022-03-22T20:33:37","date_gmt":"2022-03-22T20:33:37","guid":{"rendered":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=51"},"modified":"2022-04-12T17:04:09","modified_gmt":"2022-04-12T17:04:09","slug":"3-kristnihald-undir-jokli-formali","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=51","title":{"rendered":"Kristnihald undir J\u00f6kli \u2013 form\u00e1li"},"content":{"rendered":"\r\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" width=\"741\" height=\"1024\" class=\"wp-image-52\" src=\"https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/3-HKL-attundi-aratugurinn-741x1024.jpg\" alt=\"\" srcset=\"https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/3-HKL-attundi-aratugurinn-741x1024.jpg 741w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/3-HKL-attundi-aratugurinn-600x830.jpg 600w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/3-HKL-attundi-aratugurinn-217x300.jpg 217w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/3-HKL-attundi-aratugurinn-768x1062.jpg 768w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/3-HKL-attundi-aratugurinn.jpg 781w\" sizes=\"(max-width: 741px) 100vw, 741px\" \/>\r\n\r\n<\/figure>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1ri\u00f0 1968 sendi Halld\u00f3r Laxness fr\u00e1 s\u00e9r sk\u00e1lds\u00f6guna <em>Kristnihald undir J\u00f6kli<\/em>. Hennar haf\u00f0i veri\u00f0 be\u00f0i\u00f0 me\u00f0 mikilli eftirv\u00e6ntingu \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fd sk\u00e1ldsaga haf\u00f0i ekki komi\u00f0 \u00fat eftir N\u00f3belssk\u00e1ldi\u00f0 um \u00e1tta \u00e1ra skei\u00f0 e\u00f0a fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 <em>Parad\u00edsarheimt<\/em> var gefin \u00fat \u00e1ri\u00f0 1960. M\u00e1 segja a\u00f0 \u00ed upphafi sj\u00f6unda \u00e1ratugarins hafi or\u00f0i\u00f0 \u00e1kve\u00f0in t\u00edmam\u00f3t \u00e1 ferli hans sem rith\u00f6fundar sem h\u00f3fst \u00e1ri\u00f0 1919 me\u00f0 sk\u00e1lds\u00f6gunni <em>Barn n\u00e1tt\u00farunnar<\/em> en \u00fe\u00e1 var Halld\u00f3r a\u00f0eins 17 \u00e1ra a\u00f0 aldri.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1ri\u00f0 1924 kom \u00fat sk\u00e1ldsagan <em>Undir Helgahn\u00fak<\/em>, sem hann skrifa\u00f0i \u00ed klaustri \u00ed L\u00faxemborg, en b\u00e1\u00f0ar \u00feessar s\u00f6gur eru \u00ed g\u00f6mlum st\u00edl og m\u00e6tti flokka sem \u00e6skuverk. Me\u00f0 <em>Vefaranum mikla fr\u00e1 Kasm\u00edr<\/em> (1927) kva\u00f0 hins vegar vi\u00f0 n\u00fdjan t\u00f3n hj\u00e1 sk\u00e1ldinu og segja \u00fdmsir a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 fyrsta n\u00fat\u00edmask\u00e1ldsagan h\u00e9r \u00e1 landi. H\u00fan er \u00fea\u00f0 sem kalla\u00f0 er margradda, e\u00f0a p\u00f3lif\u00f3n\u00edsk, \u2013 h\u00f6fundurinn gerir enga tilraun til a\u00f0 ritst\u00fdra s\u00f6gunni \u00ed \u00fe\u00e1gu neins \u00e1kve\u00f0ins bo\u00f0skapar e\u00f0a pers\u00f3nu. \u00cd s\u00f6gunni birtast fj\u00f6lmargar l\u00edfssko\u00f0anir og er engri \u00feeirra hampa\u00f0 umfram a\u00f0ra.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Segir skili\u00f0 vi\u00f0 alheimsteor\u00edur<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir \u00feetta sag\u00f0i Halld\u00f3r skili\u00f0 vi\u00f0 ka\u00fe\u00f3lska tr\u00fa sem hann haf\u00f0i sk\u00edrst til nokkrum \u00e1rum fyrr og t\u00f3k a\u00f0 skrifa f\u00e9lagslegar s\u00f6gur \u00far samt\u00edmanum: <em>S\u00f6lku V\u00f6lku<\/em> (1931-32), <em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/em> (1934-35) og <em>Heimslj\u00f3s<\/em> (1937-40). \u00c1 fimmta \u00e1ratugnum sendi Halld\u00f3r fr\u00e1 s\u00e9r <em>\u00cdslandsklukkuna<\/em> (1943-46) og <em>At\u00f3mst\u00f6\u00f0ina<\/em> (1948) sem b\u00e1\u00f0ar voru innlegg \u00ed sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isbar\u00e1ttu \u00fej\u00f3\u00f0arinnar, hvor me\u00f0 s\u00ednum h\u00e6tti. \u00d6nnur gerist \u00e1 17. \u00f6ld en hin \u00ed samt\u00ed\u00f0inni. \u00c1ri\u00f0 1952 s\u00fdndi sk\u00e1ldi\u00f0 enn \u00e1 s\u00e9r n\u00fdja hli\u00f0 me\u00f0 <em>Gerplu<\/em> sem gerist \u00e1 s\u00f6gu\u00f6ld og er \u00e1deila \u00e1 str\u00ed\u00f0 og hetjuskap. Eftir a\u00f0 Halld\u00f3r f\u00e9kk N\u00f3belsver\u00f0launin \u00ed b\u00f3kmenntum 1955 sendi hann fr\u00e1 s\u00e9r <em>Brekkukotsann\u00e1l<\/em> (1957) sem er hylling \u00e1 \u00f3breyttu al\u00fe\u00fd\u00f0uf\u00f3lki.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deremur \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar kom s\u00ed\u00f0an <em>Parad\u00edsarheimt<\/em> eins og fyrr greinir. \u00dear segir fr\u00e1 b\u00f3nda sem fer\u00f0ast yfir \u00feveran hn\u00f6ttinn \u00ed leit a\u00f0 fyrirheitna landinu en finnur \u00fea\u00f0 a\u00f0 lokum \u00ed t\u00faninu heima. \u00ddmis l\u00edkindi eru me\u00f0 Halld\u00f3ri Laxness og b\u00f3nda \u00feessum \u00fev\u00ed a\u00f0 hann haf\u00f0i um t\u00edma s\u00e9\u00f0 fyrirheitna landi\u00f0 \u00ed Sov\u00e9tr\u00edkjunum en n\u00fa var eins og hann hef\u00f0i misst tr\u00fana \u00e1 \u00feetta \u201es\u00e6lur\u00edki s\u00f3s\u00edalismans\u201c. Sta\u00f0festingin kom s\u00ed\u00f0an \u00ed <em>Sk\u00e1ldat\u00edma<\/em> (1963) \u00fear sem hann ger\u00f0i upp vi\u00f0 Stal\u00edn og har\u00f0stj\u00f3rn hans. N\u00fa kva\u00f0 vi\u00f0 n\u00fdjan t\u00f3n: hann haf\u00f0i fengi\u00f0 n\u00f3g af \u201ealheimsteor\u00edum\u201c sem \u00f6llu \u00e1ttu a\u00f0 bjarga.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Bo\u00f0flennan \u201ePl\u00fas Ex\u201c<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Parad\u00edsarheimt<\/em> var ellefta sk\u00e1ldsaga Halld\u00f3rs Laxness en sumar s\u00f6gurnar komu reyndar \u00fat \u00ed nokkrum hlutum auk \u00feess sem hann haf\u00f0i skrifa\u00f0 sm\u00e1s\u00f6gur, ritger\u00f0ir og tv\u00f6 leikrit. Sk\u00e1lds\u00f6gurnar voru afar fj\u00f6lbreyttar, s\u00f6gusvi\u00f0i\u00f0 \u00fdmist \u00cdsland e\u00f0a \u00cdsland og Evr\u00f3pa, \u00fe\u00e6r ger\u00f0ust allt fr\u00e1 s\u00f6gu\u00f6ld til n\u00fat\u00edmans, st\u00edllinn var \u00f3l\u00edkur og \u00fear fram eftir g\u00f6tum. Hann kom \u00e6vinlega a\u00f0 lesendum \u00far \u00f3v\u00e6ntri \u00e1tt. N\u00fa br\u00e1 hins vegar svo vi\u00f0 a\u00f0 sk\u00e1ldi\u00f0 sem hloti\u00f0 haf\u00f0i N\u00f3belsver\u00f0launin \u00ed b\u00f3kmenntum fyrir a\u00f0 endurn\u00fdja forna \u00edslenska sagnalist var b\u00fainn a\u00f0 f\u00e1 n\u00f3g af sk\u00e1lds\u00f6gum. Hann einhenti s\u00e9r \u00ed a\u00f0 skrifa leikrit. \u00c1ri\u00f0 1961 var <em>Strompleikurinn<\/em> frums\u00fdndur, <em>Prj\u00f3nastofan S\u00f3lin<\/em> kom \u00fat \u00e1ri s\u00ed\u00f0ar og var frums\u00fdnd 1966, sama \u00e1r og <em>D\u00fafnaveislan<\/em>.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi sinnaskipti sk\u00e1ldsins koma gl\u00f6gglega fram \u00ed ritger\u00f0 hans fr\u00e1 1962 sem prentu\u00f0 er \u00ed greinasafninu <em>Upphaf mann\u00fa\u00f0arstefnu<\/em> (1965) og nefnist \u201ePers\u00f3nulegar minnisgreinar um sk\u00e1lds\u00f6gur og leikrit\u201c. \u00dear segir Halld\u00f3r Laxness: \u201eLeingi hefur s\u00fa spurn\u00edng str\u00edtt \u00e1 \u00feann sem h\u00e9r heldur \u00e1 penna, hversu fari\u00f0 skuli me\u00f0 mann nokkurn sem vi\u00f0 skulum kalla Pl\u00fas Ex. Hver er Pl\u00fas Ex? \u00dea\u00f0 er s\u00fa bo\u00f0flenna me\u00f0 aungu nafni og \u00f3gl\u00f6ggu vegabr\u00e9fi sem \u00e6vinlega er vi\u00f0st\u00f6dd l\u00edkt og gluggag\u00e6gir hvar sem gripi\u00f0 er ofan\u00ed sk\u00e1lds\u00f6gu. \u00deessi herra er aldrei svo sm\u00e1\u00fe\u00e6gur a\u00f0 setjast aftastur \u00ed pers\u00f3nur\u00f6\u00f0inni, heldur s\u00e6ttir sig ekki vi\u00f0 anna\u00f0 en \u00f6ndvegi n\u00e6r mi\u00f0ju fr\u00e1sagnarinnar, jafnvel s\u00f6gu \u00fear sem h\u00f6fundur gerir s\u00e9r \u00fe\u00f3 alt far um a\u00f0 samsama ekki sj\u00e1lfan sig s\u00f6gumanninum.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Pl\u00fas Ex \u00feessi er \u00feannig hin \u00f3s\u00fdnilega h\u00f6nd s\u00f6guh\u00f6fundarins sem lei\u00f0ir lesandann \u00ed gegnum verki\u00f0, s\u00e1 sem leggur \u00fat af or\u00f0um \u201eannarra\u201c pers\u00f3na, setur stundum \u00e1 langar t\u00f6lur um ve\u00f0urfar og landslag e\u00f0a bo\u00f0ar tiltekna hugmyndafr\u00e6\u00f0i.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>S\u00edmagjaldskr\u00e1in til Falklandseyja<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r r\u00e6\u00f0ir um \u00feann \u00f3skunda sem Pl\u00fas Ex gerir \u00ed hverri s\u00f6gu en segir s\u00ed\u00f0an: \u201e\u00dev\u00ed mi\u00f0ur er \u00e9g ekki kominn leingra en svara \u00feessu vandam\u00e1li me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 or\u00f0a spurn\u00ednguna \u00feannig: S\u00e9 P.E. ofauki\u00f0 \u00ed sk\u00e1lds\u00f6gu, er \u00fe\u00e1 ekki sk\u00e1lds\u00f6gunni ofauki\u00f0 \u00ed b\u00f3kmentum yfirleitt? Spurn\u00edngin, \u00feannig or\u00f0u\u00f0, lei\u00f0ir reyndar flj\u00f3tt \u00fat\u00ed fjarst\u00e6\u00f0u. V\u00e6ri \u00fe\u00e1 kanski r\u00e9ttara a\u00f0 or\u00f0a hana \u00f6fugt, og spyrja alment: er h\u00f6fundurinn ekki eini ma\u00f0urinn sem m\u00e1li skiftir, svo \u00ed sk\u00e1lds\u00f6gu sem \u00ed \u00f6\u00f0rum b\u00f3kum?\u201c \u00cd framhaldi af \u00feessu l\u00fdsir sk\u00e1ldi\u00f0 \u00fev\u00ed hvernig \u00feetta vandam\u00e1l hverfur eins og af sj\u00e1lfu s\u00e9r \u00ed leikritum \u2013 \u00fear s\u00e9 ekki r\u00fam fyrir neitt aukreitis og b\u00e6tir vi\u00f0: \u201e\u00deegar veri\u00f0 er a\u00f0 semja sk\u00e1lds\u00f6gu \u00fe\u00e1 er holt a\u00f0 hafa s\u00edmagjaldskr\u00e1na til Falklandseya s\u00e9r til lei\u00f0bein\u00edngar. \u00d3ttinn vi\u00f0 a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 grei\u00f0a undir hvert or\u00f0 eftir gjaldskr\u00e1 mundi for\u00f0a m\u00f6rgum h\u00f6fundi fr\u00e1 m\u00e1laleing\u00edngum. \u2026 Leikrit krefst enn meiri sj\u00e1lfsafneitunar en sk\u00e1ldsaga\u201c. \u00dar or\u00f0um N\u00f3belssk\u00e1ldsins m\u00e1 \u00fev\u00ed n\u00e1nast lesa a\u00f0 sk\u00e1ldsagan s\u00e9 ekki lengur bo\u00f0legur mi\u00f0ill fyrir listr\u00e6na sk\u00f6pun hans \u2013 leikritin s\u00e9u \u00fea\u00f0 sem koma skuli. Hann er h\u00e6ttur sk\u00e1ldsagnager\u00f0 \u00ed bili.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hef\u00f0in sprengd<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r Laxness ber h\u00f6fu\u00f0 og her\u00f0ar yfir a\u00f0ra rith\u00f6funda h\u00e9r \u00e1 landi \u00e1 \u00feessari \u00f6ld. Hann endurn\u00fdja\u00f0i me\u00f0 eftirminnilegum h\u00e6tti \u00edslenska fr\u00e1sagnarlist, tungum\u00e1l hennar og form. \u00ddmsir telja a\u00f0 vegna \u00feessa hafi a\u00f0rir h\u00f6fundar veigra\u00f0 s\u00e9r vi\u00f0 a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast a\u00f0 hinni hef\u00f0bundnu sk\u00e1lds\u00f6gu eins og gerst haf\u00f0i erlendis; uppreisnarafl m\u00f3dernismans haf\u00f0i kollvarpa\u00f0 hinu hef\u00f0bundna lj\u00f3\u00f0formi h\u00e9r \u00e1 landi \u00e1 sj\u00f6tta \u00e1ratugnum en hin ep\u00edska sk\u00e1ldsaga st\u00f3\u00f0 \u00e1fram traustum f\u00f3tum.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdslensk sk\u00e1ldsagnager\u00f0 \u00feykir hafa veri\u00f0 heldur r\u00e1\u00f0villt og m\u00e1ttvana framan af sj\u00f6unda \u00e1ratugnum en s\u00ed\u00f0an t\u00f3ku h\u00f6fundar til vi\u00f0 a\u00f0 sprengja hi\u00f0 hef\u00f0bundna sagnaform. \u00dear f\u00f3ru fremst \u00ed flokki Steinar Sigurj\u00f3nsson, Svava Jakobsd\u00f3ttir, Gu\u00f0bergur Bergsson, Jakob\u00edna Sigur\u00f0ard\u00f3ttir og Thor Vilhj\u00e1lmsson. \u201e\u00dea\u00f0 s\u00fdnir styrk Halld\u00f3rs Laxness a\u00f0 hann skuli ekki sitja um kyrrt \u00ed h\u00e1s\u00e6ti s\u00ednu heldur skrifa sk\u00e1lds\u00f6gu sem er eitt af meginverkum uppreisnarinnar gegn sagnahef\u00f0 sem fari\u00f0 var a\u00f0 kenna \u00e6 meir vi\u00f0 hann sj\u00e1lfan,\u201c sag\u00f0i \u00c1str\u00e1\u00f0ur Eysteinsson \u00ed fyrirlestri sem hann nefnir \u201e\u00cd fuglabjargi sk\u00e1lds\u00f6gunnar\u201c og fluttur var \u00e1 Halld\u00f3rsstefnu 1992 (prenta\u00f0ur \u00ed ritinu <em>Halld\u00f3rsstefna<\/em> er \u00fat kom 1993). \u00deetta verk er <em>Kristnihald undir J\u00f6kli<\/em>.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Prestur, vopnabraskari og kvenmynd eil\u00edf\u00f0arinnar<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Kristnihald undir J\u00f6kli<\/em> greinir fr\u00e1 umbo\u00f0smanni biskups, Umba, sem sendur er undir J\u00f6kul til a\u00f0 kanna st\u00f6\u00f0u m\u00e1la \u00ed s\u00f6fnu\u00f0i einum \u00e1 Sn\u00e6fellsnesi. Tilefni fararinnar er a\u00f0 s\u00e9ra J\u00f3n Pr\u00edmus er talinn vera h\u00e6ttur a\u00f0 sinna emb\u00e6ttiserindum og hj\u00faskaparsta\u00f0a hans heldur \u00f3lj\u00f3s. Umbi \u00e1 a\u00f0 setja saman sk\u00fdrslu um fer\u00f0 s\u00edna: \u201eSkrifa \u00feurt!\u201c segir biskup vi\u00f0 Umba \u00e1\u00f0ur en hann leggur af sta\u00f0.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Umbi heldur undir J\u00f6kul vopna\u00f0ur segulbandi en sk\u00fdrsluger\u00f0in ver\u00f0ur sn\u00fanari eftir \u00fev\u00ed sem \u00e1 l\u00ed\u00f0ur enda fer Umbi a\u00f0 efast mj\u00f6g um r\u00f6kr\u00e6n t\u00f6k s\u00edn \u00e1 \u00feeim heimi sem hann er staddur \u00ed. Hann fl\u00e6kist inn \u00ed ver\u00f6ldina undir J\u00f6kli sem kannski er ekki \u00fea\u00f0 versta heldur \u00f3vissan um e\u00f0li \u00feess veruleika sem hann fl\u00e6kist \u00ed.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nokku\u00f0 hefur veri\u00f0 deilt um \u00fea\u00f0 hver s\u00e9 a\u00f0alpers\u00f3na s\u00f6gunnar. Er \u00fea\u00f0 J\u00f3n Pr\u00edmus? sem er tilefni fararinnar og segir t.d.: \u201eS\u00e1 sem ekki lifir \u00ed sk\u00e1ldskap lifir ekki af h\u00e9r \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni.\u201c Er \u00fea\u00f0 vopnabraskarinn Godman S\u00fdngmann? s\u00e1 mikli \u00f6rlagavaldur \u00ed s\u00f6gunni er segir \u00e1 einum sta\u00f0: \u201eL\u00fdrik er vi\u00f0bj\u00f3\u00f0slegasta rugl sem til er \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni a\u00f0 gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i ekki undanskilinni.\u201c Er \u00daa kannski a\u00f0alpers\u00f3nan? Konan, sem dregur Umba \u00e1 t\u00e1lar og skilur hann eftir r\u00e1\u00f0villtan \u00ed \u00feokunni, er hvorttveggja \u00ed senn d\u00fdrlingur og gle\u00f0ikona, og hefur b\u00e6\u00f0i veri\u00f0 t\u00falku\u00f0 sem hin eil\u00edfa kvenmynd e\u00f0a t\u00e1knmynd l\u00edfsins. E\u00f0a er Umbi a\u00f0alpers\u00f3na verksins \u2013 s\u00e1 sem \u00fearf a\u00f0 velja \u00e1 milli mann\u00fa\u00f0arstefnu og fri\u00f0ar J\u00f3ns Pr\u00edmusar annars vegar og andst\u00e6\u00f0u \u00feessa sem holdgerist \u00ed Godman S\u00fdngmann? Sagan b\u00fd\u00f0ur upp \u00e1 alla \u00feessa t\u00falkunarm\u00f6guleika e\u00f0a jafnvel engan af \u00feeim \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 m\u00e1 l\u00edka segja a\u00f0 sagan leysi upp tv\u00edhyggju \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 velja \u00e1 milli tveggja kosta. Og \u00fea\u00f0 sem meira er: Er Umbi kannski Pl\u00fas Ex, s\u00e1 sem fyrr var nefndur?<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Kallast \u00e1 vi\u00f0 Vefarann<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1str\u00e1\u00f0ur Eysteinsson segir \u00ed fyrrnefndum fyrirlestri a\u00f0 erfitt s\u00e9 a\u00f0 henda rei\u00f0ur \u00e1 helstu pers\u00f3num s\u00f6gunnar, \u00ed \u00feeim birtist \u00e1kve\u00f0i\u00f0 \u00f3samr\u00e6mi sem valdi \u00fev\u00ed a\u00f0 ekki s\u00e9 heiglum hent a\u00f0 h\u00f6ndla \u00fe\u00e6r. S\u00f6guma\u00f0urinn Umbi er \u00feessu marki brenndur, segir \u00c1str\u00e1\u00f0ur. Hann vitnar til or\u00f0a f\u00f3lksins undir J\u00f6kli um a\u00f0 Umbi s\u00e9 ekki a\u00f0eins fulltr\u00fai biskups heldur nefnir \u00fea\u00f0 hann hreinlega biskup og \u00fea\u00f0 sem hann s\u00e9 sj\u00e1lfur, ungur og nettur ma\u00f0ur. \u201eHann er biskupinn pl\u00fas eitthva\u00f0,\u201c segir \u00c1str\u00e1\u00f0ur. \u201eSm\u00e1m saman gufar biskupinn upp og eftir er \u201ea\u00f0eins\u201c \u00feetta pl\u00fas eitthva\u00f0. \u00deetta minnir \u00e1 \u00feann \u00e1g\u00e6ta mann \u201ePl\u00fas Ex\u201c.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hlutverk \u00feessarar bo\u00f0flennu er a\u00f0 lei\u00f0a lesandann inn a\u00f0 mi\u00f0ju fr\u00e1sagnarinnar \u00feannig a\u00f0 merking hennar s\u00e9 lj\u00f3s \u00ed huga hans. Hlutverk Umba v\u00e6ri \u00feannig samkv\u00e6mt \u00feessu a\u00f0 halda \u00ed h\u00f6ndina \u00e1 lesandanum og lei\u00f0a hann \u00ed allan sannleika um \u201er\u00e9ttan\u201c skilning \u00e1 \u00feeim atbur\u00f0um sem \u00fear er l\u00fdst. Eftir \u00fev\u00ed sem Umbi ver\u00f0ur rugla\u00f0ri \u00ed r\u00edminu fl\u00e6kist m\u00e1li\u00f0 fyrir lesandanum uns \u00feeir standa b\u00e1\u00f0ir jafn \u00f3vissir um hva\u00f0 s\u00e9 satt og hva\u00f0 logi\u00f0 undir J\u00f6kli. \u201e\u00dea\u00f0 er gaman a\u00f0 hlusta \u00e1 fuglana kvaka. En \u00fea\u00f0 v\u00e6ri anna\u00f0 en gaman ef fuglarnir v\u00e6ru einl\u00e6gt a\u00f0 kvaka satt,\u201c segir J\u00f3n Pr\u00edmus. Ef \u00feessari t\u00falkun er fylgt tekst Halld\u00f3ri me\u00f0 <em>Kristnihaldi undir J\u00f6kli<\/em> a\u00f0 sn\u00faa \u00e1 \u201ePl\u00fas Ex\u201c; tilraun bo\u00f0flennunnar til a\u00f0 teyma lesandann inn a\u00f0 mi\u00f0ju fr\u00e1sagnarinnar endar einhvers sta\u00f0ar \u00fati \u00ed m\u00f3a \u00fear sem Umbi andvarpar vondaufur \u00fat \u00ed \u00feokuna: \u201eHvar er \u00e9g?\u201c. \u00c1str\u00e1\u00f0ur segir \u00ed fyrirlestri s\u00ednum a\u00f0 sagan s\u00e9 \u201eme\u00f0 skemmtilegustu og athyglisver\u00f0ustu tilraunum til a\u00f0 \u00fath\u00fdsa Pl\u00fas Ex, e\u00f0a varpa honum \u00far \u00fev\u00ed mi\u00f0l\u00e6ga \u00f6ndvegi sem Halld\u00f3r nefnir. Svona verk eru stundum nefnd margradda e\u00f0a \u201ep\u00f3lif\u00f3n\u00edskar\u201c s\u00f6gur og greina m\u00e6tti <em>Kristnihaldi\u00f0<\/em> sem afbrig\u00f0i margr\u00f6ddunar \u00ed sk\u00e1ldsagnager\u00f0.\u201c Hann b\u00e6tir \u00fev\u00ed s\u00ed\u00f0an vi\u00f0 a\u00f0 \u00feetta \u201epl\u00fas eitthva\u00f0\u201c \u00ed Umba og \u00f6\u00f0rum pers\u00f3num s\u00e9 \u00fe\u00e1 alls ekki Pl\u00fas Ex heldur t\u00f3mar\u00fam sem pers\u00f3nan og lesandinn ver\u00f0i a\u00f0 r\u00e1\u00f0a \u00ed \u00e1n lei\u00f0sagnar h\u00f6fundarins.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deannig kallast sagan \u00e1 vi\u00f0 \u00fe\u00e1 b\u00f3k Halld\u00f3rs sem \u00fdmsir telja fyrstu \u00edslensku n\u00fat\u00edmask\u00e1lds\u00f6guna, <em>Vefarann mikla fr\u00e1 Kasm\u00edr<\/em>, sem \u00fat kom fj\u00f3rum \u00e1ratugum fyrr og einkenndist l\u00edka af fj\u00f6lr\u00f6ddun. <em>Kristnihaldi\u00f0<\/em> er margr\u00e6\u00f0 saga sem b\u00fd\u00f0ur upp \u00e1 \u00f3l\u00edkar t\u00falkanir, enda er h\u00e9r f\u00e1tt sem s\u00fdnist.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201e<strong>Einsog a\u00f0 velta ofan Go\u00f0afoss\u201c<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deannig l\u00e9t Halld\u00f3r Laxness ekki sitt eftir liggja vi\u00f0 a\u00f0 endurn\u00fdja sk\u00e1ldsagnaformi\u00f0 \u00fe\u00f3tt kominn v\u00e6ri h\u00e1tt \u00e1 sj\u00f6tugsaldur, heldur sl\u00f3st \u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r miklu yngri h\u00f6fundum vi\u00f0 a\u00f0 grafa undan \u00feeirri sagnahef\u00f0 sem kennd var vi\u00f0 hann.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ritun <em>Kristnihaldsins<\/em> vir\u00f0ist hafa teki\u00f0 mj\u00f6g \u00e1 sk\u00e1ldi\u00f0 og af br\u00e9fum hans fr\u00e1 \u00feessum t\u00edma til Au\u00f0ar, eiginkonu sinnar, m\u00e1 r\u00e1\u00f0a a\u00f0 hann hafi sj\u00e1lfur veri\u00f0 efins um gildi b\u00f3karinnar. 5. okt\u00f3ber 1968 skrifar hann henni fr\u00e1 Kaupmannah\u00f6fn: \u201e\u00e9g er einhvernveginn enn ekki b\u00fainn a\u00f0 safna m\u00e9r saman eftir <em>Kristnihald undir J\u00f6kli<\/em>, \u00fea\u00f0 var d\u00e1l\u00edti\u00f0 einsog a\u00f0 velta ofan Go\u00f0afoss.\u201c Og \u00feann 18. okt\u00f3ber skrifar Halld\u00f3r Au\u00f0i um b\u00f3kina: \u201eh\u00fan \u00e6tla\u00f0i mig lifandi a\u00f0 drepa.\u201c \u00deremur d\u00f6gum s\u00ed\u00f0ar ritar hann henni enn og hefur \u00fe\u00e1 greinilega heyrt af g\u00f3\u00f0um vi\u00f0t\u00f6kum b\u00f3karinnar \u00e1 \u00cdslandi. Honum finnst \u201egaman a\u00f0 \u00fdmsir g\u00f3\u00f0ir menn skuli geta k\u00edngt svona b\u00f3k einsog <em>Kristnihaldinu<\/em> \u00e1n \u00feess a\u00f0 hixta til muna. En einginn veit betur en \u00e9g sj\u00e1lfur \u00ed hve m\u00f6rgu b\u00f3kinni er \u00e1f\u00e1tt; en um \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki leingur a\u00f0 tala.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>N\u00e1\u00f0arg\u00e1fa snillingsins<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r Laxness f\u00e9kk Silfurhestinn, b\u00f3kmenntaver\u00f0laun gagnr\u00fdnenda \u00e1 \u00cdslandi, fyrir <em>Kristnihald undir J\u00f6kli<\/em> og d\u00f3mar voru einkar lofsamlegir. \u00der\u00e1inn Bertelsson sag\u00f0i \u00ed <em>V\u00edsi<\/em> 7. okt\u00f3ber 1968: \u201e\u00dea\u00f0 athyglisver\u00f0asta vi\u00f0 \u00feessa b\u00f3k er, a\u00f0 me\u00f0 henni s\u00fdnir Halld\u00f3r Laxness, a\u00f0 hann b\u00fdr yfir \u00feeirri n\u00e1\u00f0arg\u00e1fu snillingsins a\u00f0 vera s\u00edungur. Hann l\u00e6tur s\u00e9r ekki n\u00e6gja a\u00f0 fylgjast me\u00f0 t\u00edmanum, heldur ver\u00f0ur hann a\u00f0 vera s\u00edungur.\u201c \u00c1rni Bergmann sag\u00f0i viku s\u00ed\u00f0ar \u00ed <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum<\/em>: \u201eVer\u00f6ld b\u00f3karinnar, a\u00f0alkraftur hennar, n\u00e1lgast sm\u00e1tt og sm\u00e1tt, \u00fea\u00f0 er brug\u00f0i\u00f0 upp fur\u00f0ulj\u00f3sum, dularfullu tali og allskyns br\u00f6g\u00f0 h\u00f6f\u00f0 \u00ed frammi \u00f6nnur til a\u00f0 skerpa forvitnina og \u00e6sa upp spurningar. \u2026 Og \u00feetta er bl\u00e1tt \u00e1fram skemmtileg b\u00f3k, sem lengi m\u00e1 tala um fr\u00e1 m\u00f6rgum hli\u00f0um.\u201c \u00deess m\u00e1 geta a\u00f0 \u00feegar <em>Kristnihaldi\u00f0<\/em> kom \u00fat \u00ed kilju \u00ed \u00de\u00fdskalandi 1997 sag\u00f0i <em>Der Stern<\/em> um b\u00f3kina: \u201eLeyndard\u00f3msfull fur\u00f0ufuglasaga sem kemur t\u00e1runum til a\u00f0 hl\u00e6ja.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sagan hefur n\u00fa veri\u00f0 \u00fe\u00fddd \u00e1 t\u00edu tungum\u00e1l og komi\u00f0 \u00fat \u00ed meira en tuttugu \u00fatg\u00e1fum. Sveinn Einarsson sneri s\u00f6gunni \u00ed leikritsform \u00e1ri\u00f0 1970 \u00ed samvinnu vi\u00f0 sk\u00e1ldi\u00f0 og hlaut verki\u00f0 nafn hinnar \u00f3r\u00e6\u00f0u kvenpers\u00f3nu s\u00f6gunnar, <em>\u00daa<\/em>. Leikriti\u00f0 var s\u00fdnt hj\u00e1 Leikf\u00e9lagi\u00f0 Reykjav\u00edkur vi\u00f0 f\u00e1d\u00e6ma vins\u00e6ldir. \u00c1ri\u00f0 1989 var s\u00ed\u00f0an frums\u00fdnd b\u00ed\u00f3mynd eftir s\u00f6gunni sem Gu\u00f0n\u00fd, d\u00f3ttir Halld\u00f3rs, leikst\u00fdr\u00f0i og hefur myndin fengi\u00f0 g\u00f3\u00f0ar vi\u00f0t\u00f6kur v\u00ed\u00f0a um heim \u00feannig a\u00f0 vantr\u00fa sk\u00e1ldsins \u00e1 <em>Kristnihaldi undir J\u00f6kli<\/em> vir\u00f0ist ekki hafa veri\u00f0 \u00e1 r\u00f6kum reist.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Form\u00e1li a\u00f0 \u00fatg\u00e1fu V\u00f6ku-Helgafells \u00e1 <em>Kristnihaldi undir J\u00f6kli<\/em> \u00ed kilju \u00e1ri\u00f0 1998<\/p>\r\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1ri\u00f0 1968 sendi Halld\u00f3r Laxness fr\u00e1 s\u00e9r sk\u00e1lds\u00f6guna Kristnihald undir J\u00f6kli. Hennar haf\u00f0i veri\u00f0 be\u00f0i\u00f0 me\u00f0 mikilli eftirv\u00e6ntingu \u00fev\u00ed a\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-51","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-formalar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/51","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=51"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/51\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":104033,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/51\/revisions\/104033"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=51"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=51"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=51"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}