{"id":71,"date":"2022-03-23T19:55:08","date_gmt":"2022-03-23T19:55:08","guid":{"rendered":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=71"},"modified":"2022-04-12T17:07:23","modified_gmt":"2022-04-12T17:07:23","slug":"6-sjalfstaett-folk-formali","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=71","title":{"rendered":"Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk \u2013 form\u00e1li"},"content":{"rendered":"\r\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"834\" class=\"wp-image-72\" src=\"https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/6-Halldor_Kiljan_193475-1024x834.jpg\" alt=\"\" srcset=\"https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/6-Halldor_Kiljan_193475-1024x834.jpg 1024w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/6-Halldor_Kiljan_193475-600x489.jpg 600w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/6-Halldor_Kiljan_193475-300x244.jpg 300w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/6-Halldor_Kiljan_193475-768x626.jpg 768w, https:\/\/skaldatimi.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/6-Halldor_Kiljan_193475.jpg 1230w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/>\r\n\r\n<\/figure>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1ri\u00f0 1927 var\u00f0 Halld\u00f3r Laxness hr\u00ed\u00f0tepptur \u00ed koti austur \u00ed J\u00f6kuldalshei\u00f0i sem liggur \u00ed um 500 metra h\u00e6\u00f0 yfir sj\u00e1varm\u00e1li vestur af J\u00f6kuldal. Hann haf\u00f0i lagt af sta\u00f0 \u00far bygg\u00f0um \u00e1rla morguns og \u00e6tla\u00f0 alla lei\u00f0 \u00ed M\u00f6\u00f0rudal en fer\u00f0in s\u00f3ttist seint \u00fear e\u00f0 birtu naut ekki af tungli a\u00f0 kv\u00f6ldinu og sk\u00ed\u00f0af\u00e6ri \u00ed lakara lagi. \u00deessi n\u00e6tursta\u00f0ur var langt fr\u00e1 mannabygg\u00f0um \u2013 a\u00f0 undanskildum nokkrum \u00f6\u00f0rum kotum, sem st\u00f3\u00f0u \u00e1 v\u00ed\u00f0 og dreif um hei\u00f0ina, var daglei\u00f0 til bygg\u00f0a og \u00ferj\u00e1r daglei\u00f0ir \u00ed kaupsta\u00f0, jafnvel a\u00f0 sumarlagi.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r l\u00fdsti \u00feessari heims\u00f3kn \u00ed grein sem nefnist \u201eRafl\u00fds\u00edng sveitanna\u201c og birtist fyrst \u00ed <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu<\/em> \u00ed mars sama \u00e1r. \u00cd form\u00e1la sem fylgdi greininni sag\u00f0i me\u00f0al annars: \u201eH.K.L t\u00f3k s\u00e9r fer\u00f0 \u00e1 hendur \u00e1 s\u00ed\u00f0astli\u00f0nu sumri til a\u00f0 kynnast \u00fej\u00f3\u00f0 og h\u00e1ttum \u00e1 \u00feeim st\u00f6\u00f0um landsins sem liggja fj\u00e6rst Reykjav\u00edkurmenningunni. Hann var \u00ed \u00feessari fer\u00f0 til j\u00f3la og f\u00f3r \u00ed svartasta skammdeginu landveg yfir \u00f6r\u00e6fi Austur- og Nor\u00f0urlands, gekk \u00e1 sk\u00ed\u00f0um af Austfj\u00f6r\u00f0um alla lei\u00f0 nor\u00f0ur \u00e1 Akureyri og gisti hinar afskekktustu sveitir.\u201c Greinin er prentu\u00f0 \u00ed heild sinni \u00ed b\u00f3kinni <em>Af menn\u00edngar\u00e1standi<\/em> (1986) en s\u00e1 hluti hennar sem h\u00e9r er til umfj\u00f6llunar var \u00e1\u00f0ur prenta\u00f0ur \u00ed b\u00f3kinni <em>Daglei\u00f0 \u00e1 fj\u00f6llum<\/em> (1937).<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>A\u00f0 hafa n\u00f3g handa kindunum<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd greinarhlutanum, sem hlaut nafni\u00f0 \u201eSkammdegisn\u00f3tt \u00ed J\u00f6kuldalshei\u00f0inni\u201c, segir Halld\u00f3r Laxness: \u201e\u00dea\u00f0 var ekki sj\u00f3narmunur \u00e1 kotinu og j\u00f6klinum; samfer\u00f0amenn m\u00ednir hittu \u00e1 \u00fea\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 a\u00f0 fylgja s\u00e9rst\u00f6kum mi\u00f0um. Vi\u00f0 geingum m\u00f6rg \u00ferep ni\u00f0ur\u00ed j\u00f6kulinn til a\u00f0 komast inn\u00ed b\u00e6ardyrnar. Ba\u00f0stofukytran var \u00e1 loftinu, ni\u00f0ri var hey og f\u00e9na\u00f0ur. H\u00e9r bj\u00f3 karl og kerl\u00edng, sonur \u00feeirra og m\u00f3\u00f0ir b\u00f3nda, farlama gamalmenni. B\u00f3ndinn \u00e1tti nokkrar kindur, en haf\u00f0i sl\u00e1tra\u00f0 einu k\u00fanni til \u00feess a\u00f0 hafa n\u00f3g handa kindunum. Hann sag\u00f0i a\u00f0 \u00fea\u00f0 ger\u00f0i minna til \u00fe\u00f3tt f\u00f3lki\u00f0 v\u00e6ri mj\u00f3lkurlaust og matarl\u00edti\u00f0, a\u00f0alatri\u00f0i\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 hafa n\u00f3g handa kindunum.\u201c F\u00f3lki\u00f0 \u00ed hei\u00f0inni dr\u00f3 fram allt \u00fea\u00f0 besta handa fer\u00f0al\u00f6ngunum: \u00feeir fengu so\u00f0i\u00f0 beljukj\u00f6t um kv\u00f6ldi\u00f0 og so\u00f0i\u00f0 beljukj\u00f6t morguninn eftir, kaffi og grj\u00f3thar\u00f0ar kleinur.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u201eSl\u00e1 \u00ed gegn\u201c \u00e1 d\u00f6nskunni<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi skammdegisn\u00f3tt \u00ed J\u00f6kuldalshei\u00f0inni \u00e1tti s\u00ed\u00f0ar eftir a\u00f0 bergm\u00e1la \u00ed einu \u00feekktasta verki Halld\u00f3rs Laxness, <em>Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u f\u00f3lki <\/em>(1935-35); s\u00f6gunni um Bjart \u00ed Sumarh\u00fasum sem b\u00fdr \u00ed hei\u00f0inni me\u00f0 fj\u00f6lskyldu sinni en \u00fe\u00f3 \u00f6\u00f0ru fremur me\u00f0 sau\u00f0f\u00e9 og hundt\u00edk. Heims\u00f3knin \u00ed koti\u00f0 \u00e1ri\u00f0 1927 var \u00fe\u00f3 ekki kveikja s\u00f6gunnar. H\u00fan haf\u00f0i brotist lengur um \u00ed huga sk\u00e1ldsins. Fyrsta tilraun Halld\u00f3rs til a\u00f0 gera hinum \u00edslenska kotb\u00f3nda skil, sm\u00e1sagan \u201eThordur i Kalfakot\u201c, birtist \u00e1 s\u00ed\u00f0um danska bla\u00f0sins <em>Berlingske Tidende<\/em> \u00e1ri\u00f0 1920 og var sagan skrifu\u00f0 \u00e1 d\u00f6nsku. Halld\u00f3r dvaldi um \u00fea\u00f0 leyti \u00ed borginni vi\u00f0 Sundin, haf\u00f0i sent fr\u00e1 s\u00e9r s\u00edna fyrstu sk\u00e1lds\u00f6gu, <em>Barn n\u00e1tt\u00farunnar<\/em> (1919) og hug\u00f0ist n\u00fa hasla s\u00e9r v\u00f6ll sem rith\u00f6fundur \u00e1 danska tungu. \u00cd j\u00f3labr\u00e9fi til m\u00f3\u00f0ur sinnar fr\u00e1 \u00e1rinu 1919 sag\u00f0i hann me\u00f0al annars: \u201e\u00e9g hef heiti\u00f0 \u00fev\u00ed, a\u00f0 koma ekki heim fyr, en \u00e9g s\u00e9 b\u00fainn a\u00f0 \u201esl\u00e1 \u00ed gegn\u201c \u00e1 d\u00f6nskunni\u201c. Sagan kom s\u00ed\u00f0ar \u00fat \u00e1 \u00edslensku undir heitinu \u201eK\u00e1lfkot\u00fanga\u00fe\u00e1ttur\u201c. \u00deessi tv\u00f6 verk, <em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/em> og sm\u00e1sagan, eru mj\u00f6g \u00f3l\u00edk en greina \u00fe\u00f3 b\u00e6\u00f0i fr\u00e1 l\u00edfi \u00ed \u00f6rreytiskoti \u00fear sem f\u00e1t\u00e6kt og bjargarleysi r\u00edkja og \u00ed b\u00e1\u00f0um s\u00f6gunum er komi\u00f0 a\u00f0 lifandi afkv\u00e6mi hj\u00e1 l\u00e1tnu foreldri.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Salt jar\u00f0ar<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Verki\u00f0 s\u00f3tti \u00e1fram \u00e1 Halld\u00f3r Laxness og hann gl\u00edmdi stundum \u201eframm\u00e1 n\u00e6tur vi\u00f0 \u00feennan b\u00f3ndadj\u00f6ful sem \u00e9g haf\u00f0i s\u00e6rt upp\u00far j\u00f6r\u00f0inni \u00ed Danm\u00f6rku\u201c, eins og segir \u00ed minningas\u00f6gunni <em>Grikklands\u00e1rinu<\/em> (1980) en n\u00e1\u00f0i ekki utan um efni\u00f0. \u00c1tti verki\u00f0 a\u00f0 heita <em>Salt jar\u00f0ar<\/em>. Dr\u00f6gin ur\u00f0u \u00f6ll eftir hj\u00e1 m\u00f3\u00f0ur hans \u00feegar sk\u00e1ldi\u00f0 h\u00e9lt til meginlands Evr\u00f3pu s\u00ed\u00f0sumars 1921. N\u00fa t\u00f3ku vi\u00f0 mikil m\u00f3tunar\u00e1r hj\u00e1 Halld\u00f3ri. Hann ger\u00f0ist ka\u00fe\u00f3lskur, dvaldi um hr\u00ed\u00f0 \u00ed klaustri \u00fear sem hann skrifa\u00f0i sk\u00e1lds\u00f6guna <em>Undir Helgahn\u00fak<\/em> (1924), var \u00e1 \u00cdtal\u00edu um t\u00edma \u00fear sem hann setti saman <em>Vefarann mikla fr\u00e1 Kasm\u00edr<\/em> (1927) en me\u00f0 \u00feeirri sk\u00e1lds\u00f6gu segist hann hafa skrifa\u00f0 sig fr\u00e1 ka\u00fe\u00f3lskunni, loka\u00f0 klausturportunum a\u00f0 baki s\u00e9r. Eftir \u00feetta h\u00e9lt Halld\u00f3r til Los Angeles \u00fear sem hann reyndi fyrir s\u00e9r \u00ed kvikmyndai\u00f0na\u00f0inum. \u00dear kynntist Halld\u00f3r s\u00f3s\u00edalismanum sem hann hreifst mj\u00f6g af. Og \u00ed lok vistarinnar vestra, \u00e1tta \u00e1rum eftir a\u00f0 hann skildi kotunginn eftir hj\u00e1 m\u00f3\u00f0ur sinni, \u00ed k\u00e6fandi sumarhita \u00ed Kaliforn\u00edu, skaut \u201eb\u00f3ndadj\u00f6fullinn\u201c upp kollinum \u00e1 n\u00fd og Halld\u00f3r f\u00f3r enn a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0 hann. N\u00fa h\u00e9t sagan <em>Hei\u00f0in<\/em>. Enn eina atrennu ger\u00f0i hann a\u00f0 efninu \u00ed Berl\u00edn 1932, eftir a\u00f0 hafa sent <em>S\u00f6lku V\u00f6lku<\/em> fr\u00e1 s\u00e9r (1931-1932), og er Halld\u00f3r kom fr\u00e1 R\u00fasslandi sama \u00e1r small sagan saman og hann skrifa\u00f0i hana \u00e1 tveimur \u00e1rum. B\u00f3kin kom s\u00ed\u00f0an \u00fat \u00ed tveimur hlutum 1934-1935 undir heitinu <em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/em>.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Kon\u00fangleg reisn<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r Laxness var \u00e6vinlega me\u00f0 minniskompur \u00e1 s\u00e9r og hripa\u00f0i ni\u00f0ur \u00ed \u00fe\u00e6r athugasemdir, hugdettur og anna\u00f0 sem skipti m\u00e1li fyrir \u00feau verk sem hann vann a\u00f0 hverju sinni e\u00f0a g\u00e1tu n\u00fdst honum s\u00ed\u00f0ar. \u00cd \u201en\u00f3tissub\u00f3kunum\u201c fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann gl\u00edmdi vi\u00f0 kotb\u00f3ndann m\u00e1 sj\u00e1 margt forvitnilegt. Hann v\u00edsar \u00ed uppkasti\u00f0 fr\u00e1 Berl\u00edn h\u00e9r og hvar en einnig l\u00edtillega \u00ed dr\u00f6gin fr\u00e1 Los Angeles. \u00cd kompunum segir t.d.: \u201e\u00cd \u00feessu mj\u00f6g svo sam\u00fejappa\u00f0a verki \u00e1 a\u00f0 t\u00falkast saga \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0arinnar in nuce [\u00ed hnotskurn]\u201c. \u00c1 einum sta\u00f0 hripar sk\u00e1ldi\u00f0 hj\u00e1 s\u00e9r eins og til \u00e1minningar: \u201eHi\u00f0 \u00f3heyrilega child labor [barna\u00fer\u00e6lkun] \u00e1 \u00edslenskum kotb\u00e6um\u201c. Vi\u00f0 sj\u00e1um \u00ed minnisb\u00f3kunum a\u00f0 nafni\u00f0 \u00e1 a\u00f0als\u00f6guhetjunni, Bjarti, kom ekki strax. Um t\u00edma er tala\u00f0 um P\u00e1lj\u00f3n Sigursteinsson og \u201everaldarstr\u00ed\u00f0\u201c hans, \u00e1 \u00f6\u00f0rum sta\u00f0 heitir hann \u00deorleifur J\u00f3natansson og \u00ed lokin kemur Gu\u00f0bjartur J\u00f3nsson \u2013 Bjartur \u00ed Sumarh\u00fasum. \u00cd kompunum eru dr\u00f6g a\u00f0 k\u00f6flum en einnig \u00e1minning til h\u00f6fundarins \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0: \u201e\u00dearf a\u00f0 lj\u00e1 \u00f6llu f\u00f3lkinu pers\u00f3nulegar (sympat\u00edskar) l\u00ednur, einkanl. konunum og d\u00f3tturinni.\u201c Og \u00e1 \u00f6\u00f0rum sta\u00f0: \u201eLaga samt\u00f6lin \u00e0 la Hemingway\u201c. Einnig: \u201eGleyma aldrei eitt augnablik tilfinn\u00edngum saml\u00ed\u00f0unarinnar \u2013 me\u00f0 \u00f6llu sem er.\u201c Me\u00f0an Bjartur heitir enn\u00fe\u00e1 \u00deorleifur segir \u00e1 einum sta\u00f0: \u201eG\u00e6ta \u00feess ennfr. a\u00f0 l\u00e1ta Leifa aldrei tapa sinni kon\u00fanglegu reisn alt \u00ed gegn um s\u00f6guna, \u2013 \u00feann eiginleik a\u00f0 vera hafinn yfir umhverfi\u00f0.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deannig minnir sk\u00e1ldi\u00f0 sig \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00ed minniskompum s\u00ednum hvernig verki\u00f0 skuli l\u00edta \u00fat, hva\u00f0a dr\u00e1ttum eigi a\u00f0 m\u00e1la pers\u00f3nurnar og hvernig st\u00edllinn skuli vera. \u00dearna er einnig a\u00f0 finna \u00fdmislegt sem ekki rata\u00f0i inn \u00ed hina endanlegu ger\u00f0, a\u00f0 minnsta kosti ekki \u00ed sama formi. \u00c1 einum sta\u00f0 n\u00f3terar sk\u00e1ldi\u00f0 hj\u00e1 s\u00e9r: \u201e\u00deorleifur J\u00f3natansson drap s\u00edn b\u00f6rn \u00e1 hei\u00f0arlegan h\u00e1tt,\u201c sem ekki er a\u00f0 finna \u00ed s\u00f6gunni og \u00e1 \u00f6\u00f0rum stendur: \u201eBjartur vi\u00f0 \u00c1stu S\u00f3llilju: Hj\u00e1 m\u00e9r hefur altaf veri\u00f0 til n\u00f3g a\u00f0 b\u00edta og brenna. Og \u00e9g hef altaf sta\u00f0i\u00f0 \u00ed skilum, b\u00e6\u00f0i vi\u00f0 gu\u00f0 og menn. En \u00e9g hef or\u00f0i\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed \u00f3l\u00e1ni a\u00f0 eiga hjartveikar konur; sem er einsog hver annar gu\u00f0s vilji.\u201c S\u00ed\u00f0ari klausan er \u00ed s\u00f6gunni en \u00ed \u00f6\u00f0ru samhengi, l\u00edtillega breytt og \u00ed tvennu lagi. Fyrri hluti m\u00e1lsgreinarinnar kemur inn \u00ed samtal Bjarts vi\u00f0 oddvitann sem \u00fdjar a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 laus vinnumannssta\u00f0a hj\u00e1 s\u00e9r til a\u00f0 losa kotunginn undan jar\u00f0akaupunum en \u00fe\u00e1 segir Bjartur stoltur og sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ur a\u00f0 hann hafi sta\u00f0i\u00f0 \u201e\u00ed skilum vi\u00f0 gu\u00f0 og menn\u201c. (126) S\u00ed\u00f0ari hlutann er a\u00f0 finna \u00ed samtali Bjarts vi\u00f0 hreppstj\u00f3rann \u00e1 \u00datirau\u00f0sm\u00fdri \u00feegar s\u00e1 s\u00ed\u00f0arnefndi reynir a\u00f0 koma k\u00fa inn \u00e1 f\u00f3lki\u00f0 \u00ed Sumarh\u00fasum en af \u00fev\u00ed tilefni segir b\u00f3ndi: \u201e\u00e9g hef or\u00f0i\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed \u00f3l\u00e1ni a\u00f0 eiga hjartveikar konur, sem er einsog hver annar gu\u00f0s vilji og \u00edlt innr\u00e6ti forsj\u00f3narinnar.\u201c (182)<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>A\u00f0 s\u00e1 \u00ed akur \u00f3vinar s\u00edns allt sitt l\u00edf<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/em> gerist \u00ed upphafi 20. aldar og segir, eins og \u00e1\u00f0ur hefur komi\u00f0 fram, fr\u00e1 Gu\u00f0bjarti J\u00f3nssyni sem l\u00e6tur gamlan draum r\u00e6tast me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kaupa l\u00edti\u00f0 kot sem hann nefnir Sumarh\u00fas. Bjartur er loksins or\u00f0inn sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ur ma\u00f0ur eftir 17 \u00e1ra vinnumennsku, sj\u00e1lfs s\u00edn herra sem \u00fearf ekki a\u00f0 s\u00e6kja neitt til \u00f3kunnugra. Hann berst vi\u00f0 a\u00f0 halda svok\u00f6llu\u00f0u sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i s\u00ednu allt til enda \u2013 ekki s\u00edst gagnvart fyrrum yfirbo\u00f0urum s\u00ednum \u00e1 \u00datirau\u00f0sm\u00fdri og f\u00e6rir fyrir \u00fea\u00f0 \u00f3b\u00e6tanlegar f\u00f3rnir. \u00d6llum hlutum s\u00f6gunnar l\u00fdkur t.d. me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Bjartur missir eitthva\u00f0 og m\u00e1 segja a\u00f0 \u201everaldarstr\u00ed\u00f0\u201c hans kristallist \u00ed eftirfarandi tilvitnun: \u201e\u00dea\u00f0 er til \u00ed \u00fatlendum b\u00f3kum ein heil\u00f6g saga af manni sem var\u00f0 fullkominn af \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e1 \u00ed akur \u00f3vinar s\u00edns eina n\u00f3tt. Sagan af Bjarti \u00ed Sumarh\u00fasum er saga mannsins, sem s\u00e1\u00f0i \u00ed akur \u00f3vinar s\u00edns alt sitt l\u00edf, dag og n\u00f3tt. Sl\u00edk er saga sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0asta mannsins \u00ed landinu.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd minniskompunum hnykkir Halld\u00f3r \u00e1 \u00feessu me\u00f0 eftirfarandi or\u00f0um: \u201eFramtak einstakl\u00edngsins \u00ed \u00fe\u00fasund tilfellum \u00e1 \u00cdslandi: Bjartur \u00ed Sumarh\u00fasum. Hreppstj\u00f3rinn \u00e1 \u00datirau\u00f0sm\u00fdri t\u00e1knar framtak einstakl\u00edngsins \u00ed einu tilfelli af \u00fe\u00fasund.\u201c \u00deannig gerir Halld\u00f3r Bjart a\u00f0 eins konar t\u00e1kni fyrir bar\u00e1ttu \u00edslenskrar al\u00fe\u00fd\u00f0u fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 r\u00e1\u00f0a s\u00e9r sj\u00e1lf \u2013 bar\u00e1ttu sem er d\u00e6md til a\u00f0 mistakast. \u00c1 \u00feessu hnykkir sk\u00e1ldi\u00f0 \u00ed minniskompu sinni: \u201eGu\u00f0bjartur J\u00f3nsson \u00ed Sumarh\u00fasum, sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isma\u00f0ur og frelsishetja, fulltr\u00fai \u00edslensks \u00fej\u00f3\u00f0ernis.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Skopleikur og harmleikur<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd uppkasti a\u00f0 br\u00e9fi til ensks \u00fatgefanda s\u00edns, sem dagsett er 22. okt\u00f3ber 1937, segir Halld\u00f3r honum a\u00f0 kynna Bjart fyrir breskum lesendum sem Don K\u00edk\u00f3ta nor\u00f0ursins \u00fear sem hann s\u00e9 \u201e\u00f3dau\u00f0leg hetja \u00ed n\u00fat\u00edmab\u00faningi sem berst fyrir sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i s\u00ednu og einstaklingshyggju gegn hrikalegu ofurefli illra afla og g\u00f3\u00f0ra og gefur hvergi eftir hvorki fyrir himni n\u00e9 j\u00f6r\u00f0.\u201c Sk\u00e1ldi\u00f0 b\u00e6tir \u00fev\u00ed vi\u00f0 a\u00f0 h\u00e9r s\u00e9 um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u201eskopleik og harmleik einstaklingshyggjunnar\u201c, Bjartur s\u00e9 f\u00fas a\u00f0 l\u00e1ta hva\u00f0eina af hendi og f\u00f3rna jafnvel l\u00edfinu fyrir m\u00e1lsta\u00f0 sinn. Halld\u00f3r bendir \u00fatgefandanum \u00e1 a\u00f0 kynna \u00feennan \u00edslenska \u00fer\u00e1k\u00e1lf fyrir Englendingum me\u00f0 eftirfarandi h\u00e6tti: \u201e\u00deetta er gegnheill Nor\u00f0urlandab\u00fai, v\u00edkingur og sk\u00e1ld, har\u00f0stj\u00f3ri, b\u00fd\u00f0ur gu\u00f0unum byrginn, br\u00fanir hans h\u00e9la\u00f0ar og andliti\u00f0 sem j\u00f6kulbrynja, en innst \u00ed hjarta s\u00ednu er hann hinn harms\u00f6gulegi elskhugi eins l\u00edtils bl\u00f3ms \u2013 eitthva\u00f0 \u00e1 \u00feessa lei\u00f0.\u201c \u00cd sama br\u00e9fi nefnir Halld\u00f3r a\u00f0 \u00e1 \u00edslenskri k\u00e1pu verksins s\u00e9 teikning af hetjunni a\u00f0 bera \u00e1stvinu s\u00edna lengra inn \u00ed einveru fjallanna og s\u00e9 \u00fear v\u00edsa\u00f0 \u00ed h\u00f6ggmynd Einars J\u00f3nssonar, \u00datlagann (sem stendur n\u00fa vi\u00f0 Hringbrautina \u00ed Reykjav\u00edk hj\u00e1 gamla kirkjugar\u00f0inum); Bjartur s\u00e9 \u00feegar \u00f6llu er \u00e1 botninn hvolft \u00fatlagi. (\u00de\u00fd\u00f0ingin \u00e1 \u00feessum brotum \u00far br\u00e9fi Halld\u00f3rs Laxness er eftir dr. \u00c1rna Sigurj\u00f3nsson).<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00e1lega \u00feremur \u00e1ratugum s\u00ed\u00f0ar rifja\u00f0i Halld\u00f3r upp kynni s\u00edn af Bjarti \u00ed Sumarh\u00fasum \u00ed <em>Sk\u00e1ldat\u00edma<\/em> (1963) og sag\u00f0i: \u201e\u00fearna var einsog \u00ed \u00edslend\u00edngas\u00f6gunum veri\u00f0 a\u00f0 \u00fatm\u00e1la hetjuskap manns \u00e1n tillits til m\u00e1lsta\u00f0ar hans. Og m\u00e1lsta\u00f0ur Bjarts var vondur fr\u00e1 h\u00e9rumbil \u00f6llum sj\u00f3narmi\u00f0um nema hetjuskaparins.\u201c<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hlj\u00f3mkvi\u00f0a me\u00f0 m\u00f6rgum stefjum<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd b\u00f3k sinni <em>Fr\u00e1 Ylf\u00edngab\u00fa\u00f0 til Ur\u00f0arsels<\/em> segir dr. \u00c1rni Sigurj\u00f3nsson a\u00f0 <em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/em> s\u00e9 margt \u00ed senn: hetjusaga, \u00e1starsaga, lj\u00f3\u00f0r\u00e6n saga og skopf\u00e6r\u00f0 stj\u00f3rnm\u00e1la\u00e1deila sem s\u00e9 n\u00e1tengd samt\u00edmaatbur\u00f0um. Hann l\u00edkir s\u00f6gunni vi\u00f0 hlj\u00f3mkvi\u00f0u, h\u00fan s\u00e9 ofin \u00far m\u00f6rgum stefjum og sum \u00feeirra \u00feekki lesendur \u00far \u00f6\u00f0rum b\u00f3kum sk\u00e1ldsins. \u00deessi stef eru k\u00e6rleikurinn e\u00f0a saml\u00ed\u00f0unin, sk\u00e1ldskapurinn sem er mikilv\u00e6gur \u00fe\u00e1ttur s\u00f6gunnar, \u00feri\u00f0ja stefi\u00f0 er \u00e1starsagan og \u00fea\u00f0 fj\u00f3r\u00f0a hugmyndafr\u00e6\u00f0in en sagan er beitt gagnr\u00fdni \u00e1 kj\u00f6r \u00edslenskra b\u00e6nda og andsvar gegn upphafningu \u00e1 st\u00f6\u00f0u b\u00f3ndans eins og h\u00fan birtist t.d. hj\u00e1 norska sk\u00e1ldinu Knut Hamsun. Raunar m\u00e1 segja a\u00f0 <em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/em> s\u00e9 svar Halld\u00f3rs vi\u00f0 <em>Gr\u00f3\u00f0ri jar\u00f0ar<\/em> eftir Hamsun. Sk\u00fdrasta d\u00e6mi\u00f0 er kannski a\u00f0 fyrsta or\u00f0i\u00f0 sem \u00cdsak, a\u00f0alpers\u00f3nan \u00ed <em>Gr\u00f3\u00f0ri jar\u00f0ar<\/em>, segir er \u201ej\u00e1\u201c en fyrsta or\u00f0 Bjarts \u00ed <em>Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u f\u00f3lki<\/em> er \u201enei\u201c. B\u00e1\u00f0ir hefja \u00feeir b\u00faskap me\u00f0 tv\u00e6r hendur t\u00f3mar, \u00cdsak ver\u00f0ur \u201er\u00edkisbubbi \u00e1 sveitab\u00faskap\u201c eins og Halld\u00f3r skrifa\u00f0i s\u00ed\u00f0ar \u00ed minningas\u00f6gunni <em>\u00dangur eg var<\/em> (1976), en \u00f6rl\u00f6g Bjarts eru \u00fever\u00f6fug.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Ma\u00f0ur \u00ed st\u00f3rhr\u00ed\u00f0<\/strong><\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00f3 a\u00f0 Bjartur \u00ed Sumarh\u00fasum s\u00e9 \u00cdslendingur \u00ed h\u00fa\u00f0 og h\u00e1r er sagan \u00fe\u00f3 sammannleg eins og vins\u00e6ldir hennar \u00fat um v\u00ed\u00f0a ver\u00f6ld s\u00fdna. Kotb\u00f3ndinn og \u00fer\u00e1k\u00e1lfurinn vir\u00f0ist hafa haft dj\u00fapst\u00e6\u00f0 \u00e1hrif \u00e1 lesendur v\u00ed\u00f0a um heim. Halld\u00f3r sag\u00f0i einhverju sinni fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00feegar hann sat um vetur heima \u00e1 Glj\u00fafrasteini \u00ed Mosfellssveit og bari\u00f0 var a\u00f0 dyrum. \u00dati var st\u00f3rhr\u00ed\u00f0 og enginn \u00e1 ferli nema \u00feeir sem br\u00fdn erindi \u00e1ttu. Fyrir utan st\u00f3\u00f0 ma\u00f0ur og leigub\u00edll bei\u00f0 eftir honum. \u00deetta var Bandar\u00edkjama\u00f0ur \u00e1 lei\u00f0 til Evr\u00f3pu en haf\u00f0i millilent \u00e1 \u00cdslandi til a\u00f0 skipta um flugv\u00e9l. Hann haf\u00f0i n\u00e1\u00f0 s\u00e9r \u00ed leigub\u00edl og be\u00f0i\u00f0 hann um a\u00f0 aka s\u00e9r heim til Halld\u00f3rs Laxness. Eina erindi\u00f0 var a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 taka \u00ed h\u00f6ndina \u00e1 manninum sem skapa\u00f0i Bjart \u00ed Sumarh\u00fasum, f\u00e1 hj\u00e1 honum eiginhandar\u00e1ritun, og segja a\u00f0 \u00e1 Manhattan v\u00e6ru fleiri br\u00e6\u00f0ur Bjarts \u00ed Sumarh\u00fasum en nokkurs sta\u00f0ar annars sta\u00f0ar \u00ed ver\u00f6ldinni. Hann var \u00e1 hra\u00f0fer\u00f0 og taldi sig ekki hafa t\u00edma til a\u00f0 \u00feiggja kaffisopa og hvarf eftir stutta vi\u00f0dv\u00f6l aftur \u00fat \u00ed hr\u00ed\u00f0ina.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/em> hefur n\u00fa komi\u00f0 \u00fat \u00e1 29 tungum\u00e1lum \u00ed h\u00e1tt \u00ed sext\u00edu \u00fatg\u00e1fum. \u00deegar b\u00f3kin var gefin \u00fat \u00ed Bandar\u00edkjunum \u00e1ri\u00f0 1946 var h\u00fan b\u00f3k m\u00e1na\u00f0arins \u00ed st\u00e6rsta b\u00f3kakl\u00fabbi landsins, Book-of-the-Month-Club, og seldist h\u00e1lf millj\u00f3n eintaka af verkinu \u00e1 tveimur vikum. \u00cd kalda str\u00ed\u00f0inu lenti Halld\u00f3r \u00e1 eins konar sv\u00f6rtum lista hj\u00e1 Bandar\u00edkjam\u00f6nnum. Hann var stimpla\u00f0ur komm\u00fanisti og sl\u00edkir h\u00f6fundar \u00e1ttu ekki upp \u00e1 pallbor\u00f0i\u00f0 vestan hafs. \u00dev\u00ed var\u00f0 ekki framhald \u00e1 \u00fatg\u00e1fu \u00e1 verkum hans hj\u00e1 \u00f6flugum b\u00f3kaforl\u00f6gum \u00fear \u00ed landi fyrr en \u00e1ri\u00f0 1997 \u00feegar <em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/em> var gefin \u00fat \u00e1 n\u00fd af sama forlagi og fyrir h\u00e1lfri \u00f6ld. Vi\u00f0t\u00f6kur gagnr\u00fdnenda vi\u00f0 \u00feessari n\u00fdju \u00fatg\u00e1fu voru afar g\u00f3\u00f0ar og s\u00fdna svo ekki ver\u00f0ur um villst a\u00f0 sagan af Bjarti \u00ed Sumarh\u00fasum \u00e1 erindi vi\u00f0 f\u00f3lk hvarvetna \u00ed heiminum og \u00e1 \u00f6llum t\u00edmum; \u00ed henni er sleginn sammannlegur t\u00f3nn. L\u00fdsingar \u00e1 g\u00e6\u00f0um b\u00f3karinnar voru h\u00e1stemmdar, h\u00fan var s\u00f6g\u00f0 minna \u00e1 <em>Hundra\u00f0 \u00e1ra einsemd<\/em> N\u00f3belssk\u00e1ldsins Gabr\u00edel Garcia Marquez og sagt a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ru \u201egle\u00f0ilegir endurfundir\u201c.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deannig er Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk hvorttveggja \u00ed senn eins \u00edslensk saga og hugsast getur en um lei\u00f0 al\u00fej\u00f3\u00f0leg. Me\u00f0 henni t\u00f3kst Halld\u00f3ri a\u00f0 reisa hinum \u00edslenska kotb\u00f3nda \u00f3brotgjarnan minnisvar\u00f0a \u2013 hinum sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0a manni sem \u00ed mi\u00f0jum \u00f3sigri s\u00ednum stendur uppi sem sigurvegari. Honum t\u00f3kst a\u00f0 lokum a\u00f0 sigra sj\u00e1lfan sig.<\/p>\r\n\r\n\r\n\r\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Form\u00e1li a\u00f0 \u00fatg\u00e1fu V\u00f6ku-Helgafells \u00e1 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u f\u00f3lki \u00ed kilju \u00e1ri\u00f0 1998<\/p>\r\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1ri\u00f0 1927 var\u00f0 Halld\u00f3r Laxness hr\u00ed\u00f0tepptur \u00ed koti austur \u00ed J\u00f6kuldalshei\u00f0i sem liggur \u00ed um 500 metra h\u00e6\u00f0 yfir sj\u00e1varm\u00e1li [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-71","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-formalar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/71","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=71"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/71\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":104038,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/71\/revisions\/104038"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=71"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=71"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=71"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}