{"id":93,"date":"2022-03-23T20:15:22","date_gmt":"2022-03-23T20:15:22","guid":{"rendered":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=93"},"modified":"2022-04-12T20:01:17","modified_gmt":"2022-04-12T20:01:17","slug":"6-klausturportunum-lokad-pic-missing","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/skaldatimi.is\/?p=93","title":{"rendered":"Klausturportunum loka\u00f0"},"content":{"rendered":"<div class=\"wpb-content-wrapper\">[vc_row][vc_column][vc_row_inner][vc_column_inner width=&#8221;1\/1&#8243;][vc_single_image media=&#8221;104072&#8243; media_width_percent=&#8221;100&#8243; uncode_shortcode_id=&#8221;180054&#8243;][\/vc_column_inner][\/vc_row_inner][vc_column_text uncode_shortcode_id=&#8221;112035&#8243;]<\/p>\r\n<p style=\"text-align: justify;\">Sumari\u00f0 1925 sat \u00cdslendingur vi\u00f0 skriftir \u00ed Taorm\u00ednu \u00e1 Sikiley, \u00e1 einum heitasta sta\u00f0 Evr\u00f3pu. Hann haf\u00f0i \u00ferj\u00e1 um tv\u00edtugt. \u00der\u00e1tt fyrir ungan aldur haf\u00f0i hann \u00feegar sent fr\u00e1 s\u00e9r tv\u00e6r sk\u00e1lds\u00f6gur og eitt sm\u00e1sagnasafn, auk kvers um ka\u00fe\u00f3lsk vi\u00f0horf. N\u00fa var hann kominn su\u00f0ur til \u00cdtal\u00edu og var miki\u00f0 ni\u00f0ri fyrir. Oft lag\u00f0i hann n\u00f3tt vi\u00f0 dag, sitjandi vi\u00f0 skrifbor\u00f0i\u00f0 me\u00f0 ekki spj\u00f6r \u00e1 kroppnum utan einglyrni og l\u00e9t pennann skei\u00f0a en h\u00e9lt \u00ed hinni hendi \u00e1 barefli til a\u00f0 verjast skorkvikindum: \u201e\u00dea\u00f0 var einsog einhversta\u00f0ar stendur \u00ed b\u00f3k, aungu l\u00edkara en sk\u00e1ldinu fyndist alt undir \u00fev\u00ed komi\u00f0 a\u00f0 skrifa\u00f0ir yr\u00f0u eins margir b\u00f3kstafir \u00e1 bla\u00f0 og kostur v\u00e6ri \u00e1\u00f0ur en s\u00f3lin t\u00fangli\u00f0 og stj\u00f6rnurnar yr\u00f0u \u00fatm\u00e1\u00f0 af fest\u00edngunni,\u201c sag\u00f0i Halld\u00f3r Laxness s\u00ed\u00f0ar um \u00feennan t\u00edma \u00ed l\u00edfi s\u00ednu er hann rita\u00f0i <em>Vefarann mikla fr\u00e1 Kasm\u00edr<\/em>.<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\"><em>Vefarinn mikli fr\u00e1 Kasm\u00edr<\/em> sprettur upp \u00far \u00fev\u00ed \u00f6ng\u00feveiti sem r\u00edkti \u00ed vestr\u00e6nni menningu \u00e1 fyrstu \u00e1ratugum 20. aldar. Andlegt l\u00edf var \u00ed deiglu. Margir vilja ganga svo langt a\u00f0 kalla byltingu \u00feau umbrot sem \u00fe\u00e1 ur\u00f0u \u00e1 samf\u00e9lagsh\u00e1ttum, heimspekilegri hugsun, si\u00f0fer\u00f0i, \u00ed tr\u00fam\u00e1lum og listum. Svo virtist sem allt v\u00e6ri \u00e1 hverfanda hveli og heimsstyrj\u00f6ldin fyrri 1914-1918 \u00fe\u00f3tti hafa afhj\u00fapa\u00f0 si\u00f0menninguna og um lei\u00f0 manninn. \u00cd <em>Vefaranum mikla<\/em> leitast Halld\u00f3r Laxness vi\u00f0 a\u00f0 tj\u00e1 \u00feennan glundro\u00f0a \u2013 hann gl\u00edmir af einur\u00f0 vi\u00f0 samt\u00edma sinn<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00c1 \u00feessum \u00e1rum leitu\u00f0u menn s\u00e9r athvarfs \u00ed \u00fdmsum hugmyndastefnum og straumum. Sumir leitu\u00f0u til gu\u00f0s alm\u00e1ttugs, skapara himins og jar\u00f0ar. A\u00f0rir t\u00f6ldu daga \u00feess sama gu\u00f0s talda og hr\u00f3pu\u00f0u: \u201eGu\u00f0 er dau\u00f0ur! Ma\u00f0urinn hefur drepi\u00f0 hann me\u00f0 hugsun sinni!\u201c og a\u00f0hylltust ofurmenniskenningar Nietzsches. Hann sag\u00f0i a\u00f0 tilfinningin fyrir jar\u00f0l\u00edfinu yr\u00f0i r\u00edkari ef \u00f6llum hugmyndum um \u00e6\u00f0ri veruleika v\u00e6ri hafna\u00f0. Hann taldi a\u00f0 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i og kenningar kristninnar um n\u00e1ungak\u00e6rleika og sam\u00fa\u00f0 v\u00e6ri \u00fer\u00e6lasi\u00f0fer\u00f0i sem hefti innsta e\u00f0li mannsins. Hi\u00f0 n\u00fdja si\u00f0fer\u00f0i, herrasi\u00f0fer\u00f0i\u00f0, \u00e1tti a\u00f0 byggjast \u00e1 e\u00f0lisl\u00e6gum vilja mannsins til valda og geta af s\u00e9r ofurmenni sem risi af l\u00edfs\u00fer\u00f3tti upp \u00far me\u00f0almennskunni. Margir s\u00e1u ro\u00f0ann \u00ed austri og t\u00f6ldu sameignarstefnuna, komm\u00fanismann, lausn \u00e1 vanda mannkyns. Og svo m\u00e6tti \u00e1fram telja. Menn t\u00f6ldu sig f\u00e1 f\u00f3tfestu \u00ed kenningum af \u00feessu tagi, \u2013 haldreipi \u00ed l\u00edfinu.<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00deegar Halld\u00f3r Laxness st\u00f3\u00f0 \u00e1 tv\u00edtugu, \u00ed byrjun desember 1922, gekk hann \u00ed klaustri\u00f0 Saint Maurice de Clervaux \u00ed L\u00faxemborg og t\u00f3k upp d\u00fdrlingsnafni\u00f0 Kiljan. \u201eMig f\u00fdsti a\u00f0 vita meira um \u00fe\u00e1 einkennilegu kirkju sem \u00f3tal pokaprestar \u00e1 Nor\u00f0url\u00f6ndum h\u00f6f\u00f0u ekki gert anna\u00f0 en fussa vi\u00f0 og sveia \u00ed m\u00edn eyru. \u00c9g var haldinn \u00f3se\u00f0jandi laungun til a\u00f0 kynnast \u00feeim tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um sem platt\u00fe\u00fdskir danak\u00f3ngar myrtu \u00edslend\u00ednga \u00fataf og nefnt var si\u00f0b\u00f3t,\u201c sag\u00f0i Halld\u00f3r s\u00ed\u00f0ar \u00ed b\u00f3k sinni <em>Dagar hj\u00e1 m\u00fankum<\/em> en \u00fear er prentu\u00f0 dagb\u00f3k hans fr\u00e1 klausturt\u00edmanum.<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\">Eftir t\u00e6plega \u00e1rsvist \u00ed klaustrinu, 4. okt\u00f3ber 1923, gerist hann \u201eoblatus secularis\u201c en \u00fea\u00f0 er eitt afbrig\u00f0i munkd\u00f3ms. \u00deeir sem taka sl\u00edka v\u00edgslu skuldbinda sig til a\u00f0 lifa \u00ed anda ka\u00fe\u00f3lskrar tr\u00faar og \u00e1 \u00feessum t\u00edma skrifar hann til vinar s\u00edns, J\u00f3ns Helgasonar \u00ed Kaupmannah\u00f6fn, a\u00f0 hausti\u00f0 eftir \u00e6tli hann a\u00f0 l\u00e1ta loka sig inni til sex \u00e1ra su\u00f0ur \u00ed R\u00f3m. Hann er sta\u00f0r\u00e1\u00f0inn \u00ed a\u00f0 gerast jes\u00fa\u00edt\u00edskur klerkur. Halld\u00f3r vir\u00f0ist hafa fundi\u00f0 s\u00e9r skj\u00f3l \u00ed ka\u00fe\u00f3lskunni \u00ed umbrotum samt\u00edmans.<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\">Hausti\u00f0 1923 er hann kominn \u00ed sk\u00f3la \u00ed Englandi hj\u00e1 kristmunkum \u00fear sem hann byrjar a\u00f0 skrifa b\u00f3kina <em>Heiman eg f\u00f3r<\/em> en h\u00fan \u201evar\u00f0 eitt skrefanna \u00ed \u00e1tt til Vefarans mikla,\u201c sag\u00f0i Halld\u00f3r s\u00ed\u00f0ar. \u00cd lok jan\u00faar 1924 hefur hann sagt skili\u00f0 vi\u00f0 sk\u00f3lann og heldur heim \u00e1 lei\u00f0 en hann \u00e1tti eftir a\u00f0 dvelja aftur \u00ed klaustrinu \u00feegar hann var \u00e1 lei\u00f0inni til \u00cdslands fr\u00e1 Sikiley me\u00f0 <em>Vefarann mikla<\/em> \u00ed farteskinu. \u201eFyrri klausturvist m\u00edn \u00ed Clervaux setti mark sitt \u00e1 \u00feessa sk\u00e1lds\u00f6gu, lag\u00f0i grunn a\u00f0 vangaveltum m\u00ednum um hi\u00f0 kristna gu\u00f0shugtak. Vera m\u00edn \u00ed klaustrinu hi\u00f0 s\u00ed\u00f0ara sinn var\u00f0 enn til a\u00f0 sk\u00fdra l\u00ednur. B\u00f3kin var a\u00f0 s\u00f6nnu fyrsta svar mitt vi\u00f0 himnahugmyndunum; ni\u00f0ursta\u00f0a dj\u00fapra \u00feeink\u00ednga var efahyggja. \u2013 \u00c9g haf\u00f0i me\u00f0 vissum h\u00e6tti skrifa\u00f0 mig fr\u00e1 tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0unum \u00ed Vefaranum og \u00f3beint loka\u00f0 klausturportunum a\u00f0 baki m\u00e9r \u00e1 me\u00f0an \u00e9g sat me\u00f0 einglyrni \u00ed hitasv\u00e6kju su\u00f0ur \u00e1 Sikiley,\u201c segir Halld\u00f3r \u00ed <em>D\u00f6gum hj\u00e1 m\u00fankum<\/em>.<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00c1 \u00feri\u00f0ja \u00e1ratugnum skrifa\u00f0i Halld\u00f3r Laxness fj\u00f6lda greina \u00ed \u00edslensk bl\u00f6\u00f0. \u00cd \u00feeim liggur hann ekki \u00e1 sko\u00f0unum s\u00ednum um \u00edslenskt \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag og menningu. \u00dear tekur hann afst\u00f6\u00f0u me\u00f0 evr\u00f3pskri borgarmenningu gegn \u00edslenskri sveitamenningu. \u00cd einni af greinunum, sem s\u00ed\u00f0ar voru prenta\u00f0ar \u00ed <em>Af menn\u00edngar\u00e1standi<\/em>, segir hann: \u201eS\u00fa t\u00ed\u00f0 er li\u00f0in a\u00f0 b\u00f3ndinn s\u00e9 bur\u00f0arsto\u00f0 \u00edslenskrar menn\u00edngar. \u2013 N\u00fa \u00e1 d\u00f6gum hv\u00edlir \u00edslensk menn\u00edng \u00e1 her\u00f0um menta\u00f0ra vitsmunamanna, v\u00edsindamanna og snill\u00ednga til or\u00f0s, myndar og t\u00f3ns. Fjasi\u00f0 um d\u00e1semdir b\u00e6ndamenn\u00edngar \u00e1 vorum d\u00f6gum er ekki anna\u00f0 en samviskulaust p\u00f3lit\u00edskt skjall.\u201c Svipa\u00f0a sko\u00f0un er a\u00f0 finna hj\u00e1 Steini Elli\u00f0a, a\u00f0alpers\u00f3nunni \u00ed <em>Vefaranum mikla<\/em>, en hann segir um \u00cdslendinga: \u201eHva\u00f0a erindi \u00e1 \u00e9g framar me\u00f0al \u00feessarar sveitamanna\u00fej\u00f3\u00f0ar, innanum ruddalega b\u00fara og au\u00f0sj\u00faka \u00fatvegsb\u00e6ndur, \u00ed \u00feessu landi al\u00fe\u00fd\u00f0uspekinnar, \u00fear sem f\u00e1nasveit menn\u00edngarinnar er skipu\u00f0 fl\u00f6kkurum, \u00f6mmum, sp\u00e1kell\u00edngum og uppgjafahreppstj\u00f3rum.\u201c<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\">Halld\u00f3r kemur \u00ed greinum \u00feessum fram sem bo\u00f0beri n\u00fat\u00edmamenningar \u2013 borgarmenningar \u2013 og vill a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0in komist \u00e1n tafar \u00ed kynni vi\u00f0 hana me\u00f0 kostum og g\u00f6llum, kasti af s\u00e9r hinni fornu sveitamenningu. \u00cd skrifum \u00feessum l\u00fdsir hann einnig n\u00fat\u00edmamanninum og um hann segir sk\u00e1ldi\u00f0: \u201eN\u00fat\u00edmama\u00f0urinn hefur hundra\u00f0ogfimt\u00edu l\u00edfsko\u00f0anir en eingin \u00feeirra er hans eigin. Hans eigin l\u00edfsko\u00f0un er hin eina sem hann ekki hefur.\u201c \u00deessi greinaskrif Halld\u00f3rs Kiljans Laxness v\u00f6ktu mikla \u00f3lgu og margir ur\u00f0u til a\u00f0 andm\u00e6la \u00feeim.<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\"><em>Vefarinn<\/em><em> mikli fr\u00e1 Kasm\u00edr<\/em> segir fr\u00e1 Steini Elli\u00f0a, sem er \u00e1 19. \u00e1ri \u00feegar sagan hefst, og greinir fr\u00e1 nokkrum \u00e1rum \u00ed l\u00edfi hans. Steinn kastast \u00f6fga \u00e1 milli og er \u00f3m\u00f6gulegt a\u00f0 festa hendur \u00e1 sko\u00f0unum hans. Steinn kemur fram sem bo\u00f0beri helstu kenningakerfa samt\u00edmans \u2013 hugmyndir hans eru \u00ed st\u00f6\u00f0ugri endursko\u00f0un. \u00deannig er Steinn Elli\u00f0i hinn d\u00e6miger\u00f0i n\u00fat\u00edmama\u00f0ur eins og Halld\u00f3r l\u00fdsir honum \u00ed <em>Af menn\u00edngar\u00e1standi<\/em>. Hann \u201ehefur hundra\u00f0ogfimt\u00edu l\u00edfsko\u00f0anir en eingin \u00feeirra er hans eigin. Hans eigin l\u00edfsko\u00f0un er hin eina sem hann ekki hefur.\u201c Af h\u00e1lfu h\u00f6fundar er engin tilraun ger\u00f0 til a\u00f0 ritst\u00fdra \u00feessum hugmyndum Steins e\u00f0a annarra s\u00f6gupers\u00f3na b\u00f3karinnar \u00ed \u00fe\u00e1gu \u00e1kve\u00f0ins bo\u00f0skapar og ver\u00f0ur hann ekki dreginn til \u00e1byrg\u00f0ar fyrir \u00fe\u00e6r! <em>Vefarinn mikli<\/em> er m.\u00f6.o. \u00fea\u00f0 sem kalla\u00f0 hefur veri\u00f0 fj\u00f6lradda verk.<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\">Steinn Elli\u00f0i er \u00ed meginatri\u00f0um klofinn milli \u00feess gu\u00f0lega og jar\u00f0neska, andlega og l\u00edkamlega. \u00cd honum togast \u00e1 andst\u00e6\u00f0ur sem vir\u00f0ast \u00f3s\u00e6ttanlegar \u00fev\u00ed a\u00f0 vilji s\u00e1lar og holds er ekki s\u00e1 sami. \u00deessir gagnst\u00e6\u00f0u p\u00f3lar t\u00e1kngerast \u00ed gu\u00f0i og konunni: \u201eKonan er nefnilega hvorki meira n\u00e9 minna en h\u00e6ttulegasti me\u00f0bi\u00f0ill gu\u00f0s og keppinautur \u00fear sem s\u00e1l mannsins er \u00ed tafli,\u201c segir Steinn \u00e1 einum sta\u00f0. Eini ver\u00f0ugi \u201ekeppinautur\u201c gu\u00f0s um s\u00e1l hans er Dilj\u00e1, st\u00falkan sem elskar hann og hann er \u00e1stfanginn af, \u00fe.e.a.s. \u00feegar h\u00fan er ekki \u00edmynd freistarans dj\u00f6fullega: \u201eAlt \u00ed l\u00edfi m\u00ednu er lygi, Dilj\u00e1, gu\u00f0 og dj\u00f6fullinn, himinn og helv\u00edti, alt lygi nema \u00fe\u00fa.\u201c<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\">Segja m\u00e1 a\u00f0 Dilj\u00e1 s\u00e9 fulltr\u00fai skynseminnar, jar\u00f0samband Steins, \u201epers\u00f3nugerv\u00edng hinnar frj\u00f3u moldar\u201c, eins og segir \u00ed <em>Vefaranum mikla<\/em>. Dilj\u00e1 afhj\u00fapar Stein me\u00f0 einf\u00f6ldum spurningum, s\u00e9r \u00ed gegnum hann og bi\u00f0ur hann \u00e1 einum sta\u00f0 a\u00f0 taka af s\u00e9r gr\u00edmuna og \u00e1 \u00fear vi\u00f0 a\u00f0 Steinn sk\u00fdli s\u00e9r st\u00f6\u00f0ugt bak vi\u00f0 kenningar, or\u00f0, sem s\u00e9u ekki hann sj\u00e1lfur heldur gr\u00edma sem for\u00f0i honum fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 l\u00edfi\u00f0. Undir lok verksins, \u00feegar kapphlaup gu\u00f0s og Dilj\u00e1r um s\u00e1l Steins n\u00e6r h\u00e1marki, eru hugrenningar hennar birtar \u00fear sem h\u00fan segir: \u201eHva\u00f0 hann er heilagur og \u00f3gurlegur \u00ed kirkju sinni, \u00feessi gu\u00f0! Kirkja hans er m\u00e1ttugri en l\u00f6gm\u00e1l n\u00e1tt\u00farunnar og kallar til s\u00edn mannss\u00e1lir a\u00f0 austan og vestan, nor\u00f0an og sunnan, kallar \u00fe\u00e6r \u00far \u00f6llum h\u00f6fu\u00f0\u00e1ttum til \u00feess a\u00f0 r\u00edsa gegn e\u00f0li hins skapa\u00f0a og hefja sig \u00far duftinu upp\u00e1vi\u00f0 til eil\u00edf\u00f0arinnar. Jes\u00fas Kristur er skr\u00edngilegur har\u00f0stj\u00f3ri: \u00f3vinir hans krossfestu hann, og hann krossfestir vini s\u00edna \u00ed sta\u00f0inn. Kirkjan er r\u00edki krossfestra. Hva\u00f0 m\u00e1ttu \u00e1stir vesallar skapa\u00f0rar konu gegn hinni heil\u00f6gu kirkju Jes\u00fa Krists, sem er m\u00e1ttugri en sk\u00f6punarverki\u00f0?\u201c<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\">Steinn Elli\u00f0i er ekki einangru\u00f0 pers\u00f3na \u00ed sk\u00e1lds\u00f6gu heldur hefur hann miklu v\u00ed\u00f0t\u00e6kari sk\u00edrskotun, \u2013 hann er t\u00e1kngervingur n\u00fdrra t\u00edma. Gl\u00edma hans vi\u00f0 hinstu r\u00f6k tilverunnar, \u00feegar yfirvofandi er a\u00f0 s\u00f3lin, tungli\u00f0 og stj\u00f6rnurnar ver\u00f0i \u00fatm\u00e1\u00f0 af festingunni, er ekkert einsd\u00e6mi. Steinn \u00e1 s\u00e9r marga \u201ebr\u00e6\u00f0ur\u201c og me\u00f0al \u00feeirra er h\u00f6fundurinn sj\u00e1lfur, enda \u00fe\u00f3tt ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur \u00feeirra geti veri\u00f0 a\u00f0rar en hans. Sagan er \u00ed r\u00edkum m\u00e6li sj\u00e1lfsk\u00f6nnun og er fr\u00f3\u00f0legt a\u00f0 bera saman Halld\u00f3r Kiljan Laxness og Stein Elli\u00f0a, sko\u00f0anir \u00feeirra \u00e1 klausturvist og kristind\u00f3mi, stj\u00f3rnm\u00e1lum og kvenf\u00f3lki, en um hugmyndir sk\u00e1ldsins \u00e1 \u00feessum t\u00edma m\u00e1 me\u00f0al annars lesa \u00ed <em>Af menn\u00edngar\u00e1standi<\/em> sem fyrr var vitna\u00f0 til. Halld\u00f3r l\u00fdsti hins vegar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um <em>Vefarans mikla<\/em> svo \u00ed <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ub\u00f3kinni<\/em> \u00e1ri\u00f0 1929, tveimur \u00e1rum eftir \u00fatkomu hans: \u201e\u201eVefarinn mikli\u201c er ekki sorgarleikur einnar mannss\u00e1lar, heldur ver\u00f0a menn\u00edngarskil \u00fear sem tjaldi\u00f0 er dregi\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed \u201eVefaranum\u201c. \u00dea\u00f0an \u00ed fr\u00e1 eru ekki annars \u00farkostir en hefja n\u00fdan leik, \u2013 \u00e1 n\u00fdrri j\u00f6r\u00f0, undir n\u00fdum himni. Lausn \u201eVefarans\u201c gefur einga von. Frumhugsun kristind\u00f3msins er me\u00f0 \u00f6llu \u00f3samr\u00fdmanleg frumhugsun jar\u00f0nesks l\u00edfs, \u2013 \u00fea\u00f0 er upphaf og endir \u201eVefarans\u201c. S\u00e9 gu\u00f0 alt og ma\u00f0urinn blekk\u00edng ein og h\u00e9g\u00f3mi, \u00fe\u00e1 liggur \u00ed augum uppi a\u00f0 manninum er best a\u00f0 halla s\u00e9r \u00fataf og deya, svo a\u00f0 gu\u00f0 geti veri\u00f0 alt \u00ed fri\u00f0i.\u201c Me\u00f0 \u00feeim or\u00f0um m\u00e1 segja a\u00f0 Halld\u00f3r hafi kvatt hina ka\u00fe\u00f3lsku tr\u00fa, \u201e\u00fe\u00f3 \u00e1n \u00feess a\u00f0 afneita grundvallarhugmynd kirkjunnar\u201c, eins og hann sag\u00f0i h\u00e1lfri \u00f6ld s\u00ed\u00f0ar \u00ed minningab\u00f3k sinni <em>\u00dangur eg var<\/em>. Hann haf\u00f0i loka\u00f0 klausturportunum \u00e1 eftir s\u00e9r.<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\">Halld\u00f3r Kiljan Laxness sneri aftur til \u00cdslands \u00e1 vord\u00f6gum 1926 me\u00f0 <em>Vefarann mikla fr\u00e1 Kasm\u00edr<\/em> \u00ed farteskinu. Honum gekk hins vegar treglega a\u00f0 f\u00e1 b\u00f3kina gefna \u00fat. \u201e\u00c9g held Vefarinn hafi veri\u00f0 bo\u00f0inn \u00f6llum \u00edslenskum \u00fatgefendum sem \u00f6ndin blakti \u00ed, en einginn vildi leggja nafn sitt vi\u00f0 svo l\u00e9lega b\u00f3k; \u00feeir t\u00f6ldu l\u00edka \u00f3hugsandi a\u00f0 nokkur ma\u00f0ur vildi kaupa \u00feetta.\u201c Halld\u00f3r gaf b\u00f3kina \u00fat sj\u00e1lfur \u00e1ri s\u00ed\u00f0ar fyrir eigin reikning \u201eog leig\u00f0i g\u00f6tustr\u00e1ka og s\u00e9rvitr\u00ednga til a\u00f0 selja hana \u00ed heftum vi\u00f0 h\u00fasdyr f\u00f3lks. \u00deetta framtak gaf svo g\u00f3\u00f0a raun a\u00f0 \u00e9g f\u00f3r til Amriku fyrir \u00e1g\u00f3\u00f0ann og dvaldist \u00fear h\u00e1tt \u00e1 \u00feri\u00f0ja \u00e1r,\u201c sag\u00f0i sk\u00e1ldi\u00f0 s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00datg\u00e1fan vakti misj\u00f6fn vi\u00f0br\u00f6g\u00f0. Sumir fundu verkinu flest til for\u00e1ttu, enda sagan harla \u00f3venjuleg \u00e1 \u00feeim t\u00edma. Ritd\u00f3mur Gu\u00f0mundar Finnbogasonar landsb\u00f3kavar\u00f0ar \u00ed t\u00edmaritinu <em>V\u00f6ku<\/em> birtist h\u00e9r \u00ed heild en hann l\u00e9t s\u00e9r n\u00e6gja tv\u00f6 or\u00f0 um <em>Vefarann mikla fr\u00e1 Kasm\u00edr<\/em>: \u201eV\u00e9lstrokka\u00f0 tilberasmj\u00f6r\u201c. \u00d6llu fr\u00e6gari er hins vegar ritd\u00f3mur Kristj\u00e1ns Albertssonar \u00ed sama t\u00edmariti en Kristj\u00e1n var \u00e1hrifamikill \u00ed menningarumr\u00e6\u00f0unni \u00e1 \u00cdslandi \u00e1 \u00feri\u00f0ja \u00e1ratugnum. Hann skrifa\u00f0i: \u201eLoksins, loksins tilkomumiki\u00f0 sk\u00e1ldverk, sem r\u00eds eins og hamraborg upp \u00far flatneskju \u00edslenskrar lj\u00f3\u00f0a- og sagnager\u00f0ar s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ra! \u00cdsland hefur eignast n\u00fdtt st\u00f3rsk\u00e1ld \u2013 \u00fea\u00f0 er bl\u00e1tt \u00e1fram skylda vor a\u00f0 vi\u00f0urkenna \u00fea\u00f0 me\u00f0 f\u00f6gnu\u00f0i.\u201c S\u00e6nski b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ingurinn Peter Hallberg, sem miki\u00f0 rannsaka\u00f0i verk Halld\u00f3rs Laxness, sag\u00f0i s\u00ed\u00f0an \u00ed b\u00f3k sinni um \u00e6skuverk hans a\u00f0 vafam\u00e1l v\u00e6ri hvort nokkru sinni hef\u00f0i komi\u00f0 \u00fat b\u00f3k \u00e1 Nor\u00f0url\u00f6ndum, sem g\u00e6fi jafn sterka og fj\u00f6lskr\u00fa\u00f0uga l\u00fdsingu \u00e1 hugsunarh\u00e6tti eftirstr\u00ed\u00f0s\u00e1ranna og <em>Vefarinn mikli<\/em>.<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00ddmsir telja a\u00f0 me\u00f0 <em>Vefaranum mikla fr\u00e1 Kasm\u00edr<\/em> hefjist n\u00fat\u00edminn \u00ed \u00edslenskri sagnager\u00f0. Vissulega m\u00e1 f\u00e6ra gild r\u00f6k fyrir \u00fev\u00ed \u00fear sem verki\u00f0 er a\u00f0 s\u00f6nnu n\u00fat\u00edmalegt og \u00e1 sinni t\u00ed\u00f0 \u00e1 skj\u00f6n vi\u00f0 flest \u00fea\u00f0 er rita\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 \u00e1 \u00edslenska tungu. Ekki var\u00f0 hins vegar framhald \u00e1 \u00feessari \u00fer\u00f3un a\u00f0 sinni. \u00cdslenskir lesendur \u00feurftu a\u00f0 b\u00ed\u00f0a \u00ed nokkra \u00e1ratugi eftir frekari \u201em\u00f3dernisma\u201c \u00ed \u00edslenskri sk\u00e1ldsagnager\u00f0. Fram\u00farstefnuskei\u00f0i Halld\u00f3rs Laxness var a\u00f0 lj\u00faka \u2013 \u00ed bili. Hann sneri s\u00e9r a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 skrifa st\u00f3r og mikil rauns\u00e6isverk \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 <em>S\u00f6lku V\u00f6lku<\/em>, <em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/em> og <em>Heimslj\u00f3s<\/em>. Me\u00f0 \u00feeim endurn\u00fdja\u00f0i hann kr\u00f6ftuglega \u00edslenska fr\u00e1sagnarlist sem f\u00e6r\u00f0i honum N\u00f3belsver\u00f0launin \u00ed b\u00f3kmenntum \u00e1ri\u00f0 1955.<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\">Helstu heimildir: \u00c1rni Sigurj\u00f3nsson: <em>Laxness og \u00fej\u00f3\u00f0l\u00edfi\u00f0 2. Fr\u00e1 Ylf\u00edngab\u00fa\u00f0 til Ur\u00f0arsels.<\/em> Rv\u00edk 1987. Hallberg, Peter: <em>Halld\u00f3r Laxness<\/em>. Nj\u00f6r\u00f0ur P. Njar\u00f0v\u00edk \u00edslenska\u00f0i. Rv\u00edk 1975. Sami: <em>Vefarinn mikli. Um \u00e6skusk\u00e1ldskap Halld\u00f3rs Laxness<\/em>. Bj\u00f6rn Th. Bj\u00f6rnsson \u00edslenska\u00f0i. Rv\u00edk 1957-60. Halld\u00f3r Gu\u00f0mundsson: <em>\u201eLoksins, Loksins.\u201c Vefarinn mikli og upphaf \u00edslenskra n\u00fat\u00edmab\u00f3kmennta<\/em>. Rv\u00edk 1987. Halld\u00f3r Laxness: <em>Af menn\u00edngar\u00e1standi<\/em>. Rv\u00edk 1986. Sami: <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ub\u00f3kin<\/em>. Rv\u00edk 1929. Sami: <em>Dagar hj\u00e1 m\u00fankum<\/em>. Rv\u00edk. 1987. Sami: <em>Seiseij\u00fa, mikil \u00f3sk\u00f6p<\/em>. Rv\u00edk 1977. Sami: <em>Sk\u00e1ldat\u00edmi<\/em>. Rv\u00edk. 1963. Sami. <em>\u00dangur eg var<\/em>. Rv\u00edk 1976. Sami: <em>Vefarinn mikli fr\u00e1 Kasm\u00edr<\/em>. 2. \u00fatg\u00e1fa 1948. Matth\u00edas Vi\u00f0ar S\u00e6mundsson: <em>Myndir \u00e1 sandi<\/em>. Rv\u00edk 1991. \u00d3lafur Ragnarsson og Valger\u00f0ur Benediktsd\u00f3ttir: <em>L\u00edfsmyndir sk\u00e1lds<\/em>. Rv\u00edk 1992.<\/p>\r\n\r\n<p style=\"text-align: justify;\">(Birt \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu<\/em> 11. apr\u00edl 1997 \u00ed tilefni af uppf\u00e6rslu Leikf\u00e9lags Akureyrar \u00e1 <em>Vefaranum mikla fr\u00e1 Kasm\u00edr<\/em>)<\/p>\r\n\r\n<p>[\/vc_column_text][\/vc_column][\/vc_row]<\/p><\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>[vc_row][vc_column][vc_row_inner][vc_column_inner width=&#8221;1\/1&#8243;][vc_single_image media=&#8221;104072&#8243; media_width_percent=&#8221;100&#8243; uncode_shortcode_id=&#8221;180054&#8243;][\/vc_column_inner][\/vc_row_inner][vc_column_text uncode_shortcode_id=&#8221;112035&#8243;] Sumari\u00f0 1925 sat \u00cdslendingur vi\u00f0 skriftir \u00ed Taorm\u00ednu \u00e1 Sikiley, \u00e1 einum heitasta sta\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[5],"tags":[],"class_list":["post-93","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-pistlar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/93","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=93"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/93\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":104074,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/93\/revisions\/104074"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=93"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=93"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaldatimi.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=93"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}